Nýjasta nýtt - 5.12.2018 16:04:00

Landsbjörg fær tölvu sem má fara í uppþvottavél

Advania færði Landsbjörgu eina sterkustu tölvu sem hægt er að finna á landinu, til að nota í björgunarstarfi sínu.

Advania færði Landsbjörgu eina sterkustu tölvu sem hægt er að finna á landinu, til að nota í björgunarstarfi sínu.

Tölvan er af gerðinni Dell Extreme Rugged og er hönnuð fyrir einstaklega krefjandi aðstæður. Hún þolir mikinn raka, kulda, högg og hita. Hún verður hluti af búnaði í færanlegri stjórnstöð landsstjórnar Landsbjargar og Íslensku alþjóðabjörgunarsveitarinnar.

Samkvæmt Guðmundi Zebitz, vörustjóra notendabúnaðar hjá Advania, gæti tölvan farið í uppþvottavél og virkað prýðilega eftir þvottinn. Hann hefur sjálfur gert ýmsar prófanir á þoli tölvunnar og og skellti sér meðal annars með tölvuna í réttir eins og sjá má í meðfylgjandi myndbandi.

Þar lét hann um þúsund kindur hlaupa yfir tölvuna og spúlaði hana því næst með háþrýstidælu. Ekki kom það að sök og virkaði tölvan vel.



„Fyrir björgunarsveitir skiptir miklu máli að búnaður sé sterkur, áreiðanlegur og þoli óblíð náttúruöfl. Landsstjórn björgunarsveita getur þurft að starfa við erfiðustu aðstæður sem Ísland hefur uppá að bjóða og mun búnaðurinn frá Advania nýtast okkur vel,“ segir Guðbrandur Örn Arnarsson sem fer fyrir aðgerðarmálum Landsbjargar.

Dell tölvan uppfyllir kröfur bandaríska varnarmálaráðuneytisins um að standast svokallaðar MIL-STD-810G og MIL-STD-461F prófanir. Hún er með tvöfaldri nettengingu og getur tengst nýjum og gömlum tækjabúnaði björgunarsveitanna.

Mynd: Guðbrandur Örn Arnarsson ( til vinstri) fer fyrir aðgerðarmálum Landsbjargar og tók við tölvunni frá Guðmundi Zebitz, vörustjóra notendabúnaðar hjá Advania.


Fleiri fréttir

Blogg
02.06.2026
Noona hefur lokið innleiðingu á Salesforce í samstarfi við Advania og markar það mikilvægan áfanga í áframhaldandi þróun á þjónustu og samskiptum við viðskiptavini.
Blogg
29.05.2026
Nýverið fengum við í Advania heimsókn frá Stelpur, stálp og tækni sem er verkefni á vegum Háskólans í Reykjavík. Heimsóknin var hvetjandi og vakti mikilvæga spurningu: Hvernig tryggjum við að fleiri sjái sér framtíð í tæknigeiranum?
Fréttir
27.05.2026
Advania hefur nú lokið kaupum á íslenska hugbúnaðarfyrirtækinu Evolv.  Samruninn er mikilvægur þáttur í áframhaldandi framsækni Advania á Íslandi og stórt skref í þeirri stefnu að verða öflugur samstarfsaðili á sviði sjálfvirknivæðingar og gervigreindar á evrópskum markaði.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.