Nýjasta nýtt - 08.03.2010

Morgunverðarfundur 12. mars: Árangur og hagnaður með CRM

Skýrr býður atvinnulífinu til morgunverðarfundar um viðskiptatengsl með CRM núna á föstudaginn kemur, 12. mars.

Á fundinum munu fjórir sérfræðingar í CRM fjalla um bættan árangur og aukinn hagnað í rekstri með notkun aðferðafræði og tóla CRM-viðskiptengsla til að stýra markvisst samskiptum, verkefnum og tengslum við viðskiptavini. Auk þess verða kynntar rannsóknir fræðifólks um ávinning innleiðingar CRM.

Fundurinn verður haldinn í ráðstefnusal Skýrr að Ármúla 2 í Reykjavík (gengið inn frá Háaleitisbraut).


Ljúffengur morgunverður að hætti hússins verður framreiddur á föstudaginn frá kl. 8:00, en formleg dagskrá hefst kl. 8:30. Fundarlok eru kl. 10:00. Sjá nánar dagskrá hér að neðan.

Skráðu þig með því að senda póst á skyrr@skyrr.is

Þátttaka er gestum að kostnaðarlausu. Fundurinn er öllum opinn, meðan húsrúm leyfir.

Dagskrá


  • Skýrr býður góðan dag!
  • Gestur G. Gestsson, forstjóri Skýrr
  • Áhrif CRM-innleiðingar á hagnað: Hvað segja fræðin?
  • Friðrik Eysteinsson, aðjúnkt við Háskóla Íslands
  • Áskriftakerfi 365 miðla: Tugþúsundir viðskiptavina? CRM leysir málið!
  • Ágúst Valgeirsson, framkvæmdastjóri tæknisviðs 365 miðla
  • Innleiðing CRM hjá Vodafone: Samþætting CRM við önnur upplýsingakerfi
  • Einar Þórarinsson, forstöðumaður stoðkerfa hjá tæknisviði Vodafone
  • CRM-innleiðingar: Hvað ber að varast?
  • Erlendur Eyvindarson, ráðgjafi hjá Skýrr
  • Fundarstjóri
  • Bjarmi Guðlaugsson, ráðgjafi hjá Skýrr

Fleiri fréttir

Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.