Nýjasta nýtt - 16.03.2010

Morgunverðarfundur um viðskiptagreind, föstudaginn 19. mars

Skýrr býður atvinnulífinu til opins morgunverðarfundar um viðskiptagreind (Business Intelligence) núna á föstudaginn kemur, 19. mars. Á fundinum munu sérfræðingar í viðskiptagreind hjá Landsbanka Íslands og N1 segja reynslusögur um notkun fyrirtækjanna á viðskiptagreind. Einnig munu sérfræðingar hjá Skýrr sýna nokkur af þeim tólum sem helst eru notuð í þessu fagi.

Skýrr býður atvinnulífinu til opins morgunverðarfundar um viðskiptagreind (Business Intelligence) núna á föstudaginn kemur, 19. mars.

Á fundinum munu sérfræðingar í viðskiptagreind hjá Landsbanka Íslands og N1 segja reynslusögur um notkun fyrirtækjanna á viðskiptagreind. Einnig munu sérfræðingar hjá Skýrr sýna nokkur af þeim tólum sem helst eru notuð í þessu fagi.

Viðskiptagreind snýst um að umbreyta gögnum í verðmætar upplýsingar. Nánar tiltekið er þetta aðferðafræði sem er notuð til að draga saman gögn á skipulagðan hátt úr mismunandi kerfum. Þessi gögn eru síðan greind með sjálfvirkum tólum samkvæmt ákveðnum skilgreiningum og miðlað til stjórnenda og starfsfólks fyrirtækja og stofnana. Viðskiptagreind er grundvöllur skilvirkrar ákvarðanatöku í atvinnulífinu.

Fundurinn verður haldinn í ráðstefnusal Skýrr að Ármúla 2 í Reykjavík (gengið inn frá Háaleitisbraut).

Ljúffengur morgunverður að hætti hússins verður framreiddur á föstudaginn frá kl. 8:00. Formleg dagskrá hefst kl. 8:30. Fundarlok eru kl. 10:00. Sjá nánar dagskrá hér að neðan.

Skráning fer fram með því að senda einfaldan tölvupóst til skyrr@skyrr.is.

Fundurinn er öllum opinn, meðan húsrúm leyfir. Þátttaka er gestum að kostnaðarlausu.

 

Dagskrá

 

  • Skýrr býður góðan dag!
    Gestur G. Gestsson, forstjóri Skýrr

  • Notkun viðskiptagreindar hjá Landsbanka Íslands
    Daníel Scheving, sérfræðingur í viðskiptagreind, LÍ

  • Innleiðing viðskiptagreindar hjá N1
    Jóhann Þór Einarsson, sérfræðingur í viðskiptagreind, N1

  • Gagnagaman með Microsoft Business Intelligence
    Ásgeir Gunnarsson, Skýrr

  • Mælaborð smíðað á staðnum með SAP BusinessObjects Xcelsius
    Alejandro Serrano Garcia, Skýrr

  • Fundarstjóri
    Sturla Sigurðsson, Skýrr

 

Fleiri fréttir

Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.