Nýjasta nýtt - 31.03.2014

Stjórn Advania endurkjörin á aðalfundi félagsins

Stjórn Advania hf. var endurkjörin á aðalfundi félagsins 27. mars 2014.

Stjórn Advania endurkjörin á aðalfundi félagsins

Stjórn Advania hf. var endurkjörin á aðalfundi félagsins 27. mars 2014. Aðalmenn eru Anna Rún Ingvarsdóttir, Finnbogi Jónsson, Katarina Burton, Kristinn Pálmason og Þór Hauksson. Varastjórn skipa Erna Eiríksdóttir og Kristján Ágústsson, sem kom nýr inn. Finnbogi Jónsson er eftir sem áður stjórnarformaður.
 

Kynjahlutfall í stjórn

Stjórn og varastjórn Advania uppfylla ákvæði laga um kynjahlutföll í stjórnum hlutafélaga. Konur eru 40% stjórnarmanna í aðalstjórn og 50% í varastjórn. Konur eru í dag tæplega þriðjungur 
starfsfólks og stjórnenda hjá Advania. Það er nokkuð hátt hlutfall, en hefðbundið hlutfall kvenna í upplýsinga-tæknifyrirtækjum er 10-15% samkvæmt upplýsingum frá Félagi kvenna í upplýsingatækni. Advania hefur virka jafnréttisstefnu og konum hefur fjölgað hjá fyrirtækinu um 4% undanfarin tvö ár.

Katarina Burton, Erna Eiríksdóttir og Anna Rún Ingvarsdóttir


Eigendur Advania

Aðaleigandi Advania er Framtakssjóður Íslands með um 74% eignarhlut. Framtakssjóður Íslands er í eigu sextán lífeyrissjóða og Landsbanka Íslands. Aðrir hluthafar eru 50, þeirra stærstur er fjárfestingafélagið Títan með rúmlega 5% hlut.

 

Fleiri fréttir

Fréttir
24.04.2026
Ársreikningur Advania á Íslandi hefur verið samþykktur fyrir árið 2025.
Fréttir
24.04.2026
Árs- og sjálfbærniskýrsla Advania Group kom út í dag en í skýrslunni er dregin upp heildstæð mynd af rekstri samstæðunnar, stefnu hennar og sjálfbærnimarkmiðum.
Blogg
24.04.2026
Því hefur verið spáð í nokkur ár að það sé einungis tímaspursmál hvenær nútíma gervigreindarmódel nái því þroskastigi að geta framkvæmt heildstæðar netárásir og nýtt sér alla árásárkeðjuna svokölluðu sem netglæpamenn hafa haft að leiðarljósi í áratugi.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.