Nýjasta nýtt - 09.02.2015

Þriggja stiga samstarf!

Körfuknattleikssamband Íslands og Advania hafa gert með sér samstarfssamning til þriggja ára.

Körfuknattleikssamband Íslands og Advania hafa gert með sér samstarfssamning til þriggja ára. Markmiðið er að efla körfuknattleiksíþróttina á Íslandi og auka útbreiðslu hennar.

Stærsta landsliðsárið framundan
„Það er mikilvægt fyrir okkur í íþróttahreyfingunni að hafa öfluga samstarfsaðila eins og Advania enda hjálpa þeir okkur við að gefa okkar afreksfólki tækifæri hér heima og á stórmótum erlendis. Framundan er eitt stærsta landsliðsár KKÍ frá upphafi og því er þessi samningur sérstaklega mikilvægur. Við hjá KKÍ erum ánægð og stolt að Adavania hefur ákveðið að vinna með okkur næstu árin“ segir Hannes Jónsson formaður KKÍ.

Með samstarfinu mun KKÍ geta nýtt sér fjölbreytta þjónustu Advania í upplýsingatækni á öllum sviðum eins og hugbúnaðar, vélbúnaðar og ráðgjafar.

Spilum með þeim bestu
„Eins og alþjóð veit tryggði karlalandslið í körfubolta sér réttinn til að keppa á meðal þeirra bestu á lokamóti Eurobasket 2015 sem haldin verður í Berlín næsta haust.  Við viljum gjarnan spila með þeim bestu og því er það ánægjulegt að gera þennan samning við KKÍ,“ segir Gestur G. Gestsson forstjóri Advania.

 

 

 

 

 

 

Fleiri fréttir

Fréttir
24.04.2026
Ársreikningur Advania á Íslandi hefur verið samþykktur fyrir árið 2025.
Fréttir
24.04.2026
Árs- og sjálfbærniskýrsla Advania Group kom út í dag en í skýrslunni er dregin upp heildstæð mynd af rekstri samstæðunnar, stefnu hennar og sjálfbærnimarkmiðum.
Blogg
24.04.2026
Því hefur verið spáð í nokkur ár að það sé einungis tímaspursmál hvenær nútíma gervigreindarmódel nái því þroskastigi að geta framkvæmt heildstæðar netárásir og nýtt sér alla árásárkeðjuna svokölluðu sem netglæpamenn hafa haft að leiðarljósi í áratugi.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.