Blogg - 16.2.2026 07:00:00

Einfaldir og ódýrir erindrekar með Copilot Studio

Síðan gervigreindarbyltingin hófst hafa stjórnendur fyrirtækja og stofnana keppst við að finna út hvernig hægt sé að nýta þessa tækni til að auka framleiðni og ánægju starfsfólks með sjálfvirknivæðingu og „útrýmingu“ endurtekinna verkefna.

Högni Hallgrímsson
forstöðumaður viðskiptalausna hjá Advania

Þrátt fyrir að tæknin hafi þróast hratt hafa mörg fyrirtæki ekki náð að komast af stað og eru enn ekki byrjuð að nýta gervigreind í rekstri. Það getur verið erfitt að taka fyrstu skrefin, sérstaklega þegar fjárfesta þarf tíma og fjármunum til að byggja nýjar lausnir frá grunni. Copilot Studio frá Microsoft breytir þessu með því að gera þér kleift að setja upp gervigreindarerindreka (e. AI agents) hratt, ódýrt og á öruggan hátt. Þannig verða fyrstu skrefin auðveldari og viðráðanlegri með Copilot Studio.

Af hverju Copilot Studio?

Copilot Studio er hluti af Microsoft Power Platform, sem þýðir að fyrirtæki fá:

  • Innbyggt öryggi sem uppfyllir strangar kröfur um gagnavernd og persónuvernd.
  • Stjórnað og rekjanlegt umhverfi, þannig að öll virkni erindreka er sýnileg og auðveld í umsýslu.
  • Lowcode nálgun, sem gerir verkefni hraðari, ódýrari og sveigjanlegri — allt að 70% lægri þróunarkostnaður miðað við hefðbundnar þróunaraðferðir.

Fyrsta skrefið í gervigreind – einfaldara en þú heldur

Með Copilot Studio er hægt að smíða einfalda og öfluga erindreka á örskotsstundu. Þeir fara fljótt í notkun og hægt er að byggja ofan á þá eftir þörfum.

  • Ódýrir erindrekar sem leysa af hendi endurtekin verkefni.
  • Traustur grunnur fyrir frekari sjálfvirknivæðingu.
  • Full stjórn og yfirsýn þegar lausnunum fjölgar.

Öryggi er innbyggt frá fyrsta degi, þannig að erindrekarnir geta sinnt jafnvel viðkvæmum og mikilvægum verkum.

Hraðari, ódýrari og öruggari innleiðing gervigreindar

Ef þú vilt komast hratt af stað, á ódýran máta með öryggið að leiðarljósi þá er Copilot Studio ein besta leiðin til að hefja ferðalagið.

Láttu fyrstu skrefin verða einföld og byggðu framtíðina á sterkum grunni frá Microsoft.

Fleiri fréttir

Blogg
17.02.2026
Advania hélt vel sóttan morgunverðarfund þar sem við kynntum nýjustu lausnir Verkada á sviði öryggis- og aðgangsstýringar. Áherslan að þessu sinni var sérstaklega lögð á aðgangsstýringu, samþættingu hennar við aðrar vörur Verkada og þann ávinning sem fyrirtæki fá þegar öll öryggistækni er komin inn í eitt, heilstætt og skýjabundið umhverfi.
Fréttir
16.02.2026
Á Viðskiptakerfadegi Advania þann 11. mars næstkomandi koma saman sérfræðingar Advania, viðskiptavinir og fulltrúar Microsoft til að ræða framtíð viðskiptakerfa, gervigreindar og sjálfvirkni. Viðburðurinn fer fram á Hilton Reykjavík Nordica og opnar húsið klukkan 12:30.
Blogg
16.02.2026
Síðan gervigreindarbyltingin hófst hafa stjórnendur fyrirtækja og stofnana keppst við að finna út hvernig hægt sé að nýta þessa tækni til að auka framleiðni og ánægju starfsfólks með sjálfvirknivæðingu og „útrýmingu“ endurtekinna verkefna.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.