Sneggra kerfi og minni kostnaður með skipulagðri tiltekt
Vilma Kristín Baldvins Svövudóttir
Sérfræðingur, Viðskiptalausnir
Mikilvægur þáttur í góðri rekstrarstjórn viðskiptakerfa er að fylgjast með heilbrigði gagna og magni þeirra. Reglulegt eftirlit og gagnahreinsun er fyrirbyggjandi og getur bætt afköst og minnkað líkur á villum. Í Dynamics 365 Finance and Operations er hægt að notast við innbyggðar keyrslur til að tryggja gagnagæði og auka rekstraröryggi kerfisins.
Dynamics 365 Finance and Operations býður upp á fjölmargar kerfiseiningar og er hægt að sníða notkun kerfisins að hverju fyrirtæki fyrir sig. Með tímanum safnast upp mikið magn af gögnum sem eru mikilvæg rekstrinum en samhliða því geta safnast upp gögn sem eru orðin úrelt eða er óþarfi að halda utan um til framtíðar. Þetta geta verið upplýsingar um eldri keyrslur, atvikaskrár, tímabundnar skrár eða vinnugögn sem skipta ekki máli eftir að keyrslur hafa verið keyrðar. Óþarfa gagnasöfnun getur hægt á kerfinu.
Mikill ávinningur bæði í tíma og minni kostnaði
Reglulegt eftirlit og gagnahreinsun getur stytt leitartíma, bætt afköst kerfisins og stytt vinnslutíma. Þannig getur tekið styttri tíma að taka út skýrslur eða keyra keyrslur. Þetta á einnig við um keyrslur sem keyrðar eru í bakgrunni í runuvinnslu, þannig að ef nóttin dugar ekki lengur til að keyra þungar keyrslur gæti tiltekt hjálpað til. Gagnatiltekt hægir á vexti gagnagrunna og minnkar þannig kostnað við gagnageymslur. Minni gagnagrunnum fylgir einfaldara viðhald og auðveldari uppfærslur, afritun og endurheimt.
Dynamics 365 Finance & Operations leyfi innihalda ákveðið magn gagnageymslu. Ef gagnamagn fer yfir þau mörk getur Microsoft rukkað fyrir viðbótargeymslu, sem gerir reglulega gagnatiltekt að mikilvægum þætti í hagkvæmum rekstri kerfisins
Við mælum með að öll fyrirtæki sem nota Dynamics AX eða Dynamics 365 Finance and Operations í daglegum rekstri taki upp reglulega gagnahreinsun og eftirfylgni til að tryggja hraðvirkara viðmót, betri notendaupplifun og betri gæði gagna. Einnig er mælt með því að tryggja réttmæti gagna og eyða óþarfa gögnum áður en fyrirtæki hyggja á uppfærslur í nýrri útgáfur eða önnur kerfi til að auðvelda uppfærslur gagna á milli útgáfna/kerfa.
Hver eru fyrstu skref við gagnatiltekt?
Áður en byrjað er að keyra gagnatiltektir mælum við hjá Advania með að skilgreina stefnu um varðveislu gagna. Greina þarf hvaða gögn þarf að varðveita, hvaða gögn má færa og hvaða gögnum má eyða. Taka þarf tillit til ýmissa atriða og til að fá sem mestan ávinning getur þurft að byrja tiltekt í skrefum og fjölga tiltektarkeyrslum með tímanum. Mikilvægt er að vinna gagnatiltekt á skipulagðan hátt og reglulega, því mælum við með að skipulag viðhalds og keyrslna sé skilgreint og skráð.
Ráðgjafar Advania geta aðstoðað fyrirtæki við að greina umfang og eðli gagna, móta skýra varðveislustefnu og skipuleggja og framkvæma tiltektir á öruggan og markvissan hátt. Við getum einnig sett upp reglubundnar keyrslur sem hreinsa gögn sjálfvirkt samkvæmt fyrirfram skilgreindum tiltektar- og varðveislureglum. Þannig verður gagnaviðhald hluti af reglulegum rekstri í stað þess að vera viðbragð þegar gagnamagn, afköst eða kostnaður eru þegar farin að skapa áskoranir.
Hafðu samband við okkur til að fá mat á stöðu gagnanna og tillögu að næstu skrefum. Saman getum við mótað tiltektaráætlun sem styður við betri afköst, aukið rekstraröryggi og hagkvæmari rekstur Dynamics 365 Finance and Operations.