Leiðbeiningar

Hvað getum við aðstoðað með í dag?

VPN

Til að tengjast þeim kerfum Advania sem aðeins eru aðgengileg gegnum VPN tengingu er notast við Cisco AnyConnect

Tvíþátta auðkenning (MFA)

Með tvíþátta auðkenningu Office 365 er markmiðið að tryggja öryggi gagna, notanda og kerfa.

VPN leiðbeiningar

Uppsetning og stillingar

Að lokinni uppsetningu er Cisco AnyConnect forritið opnað, og í fyrsta skipti sem tengst er skal gefa upp slóð að VPN gátt eins og t.d. vpn.hysing.is. Hægt er að nálgast þær upplýsingar hjá Framlínuþjónustu Advania með því að senda póst á hjalp@advania.is eða hringja í 440-9000. Þegar tengst hefur verið í fyrsta skipti man forritið þetta nafn og því óþarfi að slá það inn næst þegar tengst er.

Leiðbeiningar fyrir tvíþátta auðkenningu

Tvíþátta auðkenning

Flest öll þekkjum við rafræn skilríki og algengt að við notum þau til innskráningar inn á t.d heimabanka eða aðrar rafrænar þjónustur.
Tvíþátta auðkenning sem hér er verið að nota veitir samskonar virkni en er þó ekki sama tæknin.

Með tvíþátta auðkenningu Office 365 er markmiðið að tryggja öryggi gagna, notanda og kerfa, þetta er gert m.a með því að kalla eftir staðfestingu notanda um innskráningu og þannig tryggja að gögn lendi ekki í röngum höndum.

Hvað er tvíþátta auðkenning?

Af hverju ætti ég að setja það upp ?
Græði ég eitthvað á því ?
Fær vinnuveitandinn minn aðgang að einkagögnum mínum ?

Þessu öllu og fleiru er svarað hérna í örstuttu myndbandi sem við hvetjum þig til að horfa á áður en þú hefur fyrstu skrefin á uppsetningunni.

Skref 1

Uppsetning á Microsoft Authenticator

iPhone

Taktu mynd af merkinu í símanum þínum.

Android

Taktu mynd af merkinu í símanum þínum.

Leiðbeiningar

Skref 2

Uppsetning á Company Portal

iPhone

Taktu mynd af merkinu í símanum þínum.

Android

Taktu mynd af merkinu í símanum þínum.

Viltu vita meira?

Tölum saman

Ertu í vandræðum. Ekki hika við að hafa samband.