Arnheiður Árnadóttir

Er verkefnastjóri í hugbúnaðarlausnum og þjónustar mörg af stærstu fyrirtækjum landsins.

Hvernig spilar þjónustan inn í þitt starf?

Stærstur hluti starfs míns felst í að þjónusta viðskiptavini Vinnustundar og Matráðs í gegnum málakerfið Service Now. Að mínu mati er það góð þjónusta að aðstoða viðskiptavini kerfanna eins hratt og kostur er, af kurteisi og virðingu.

Í mínum hópi leggja starfsmenn metnað sinn í að veita góða þjónustu. Samvinnan innan hópsins er mjög góð. Við eigum líka gott samstarf við Oracle-hópinn sem vinnur að tengdum kerfum.

Arnheiður Árnadóttir hjá Advania fær 11 af 10 stigum mögulegum fyrir ítarlegar upplýsingar og þolinmæði!

Anna María Magnúsdóttir forstöðumaður og sjúkraliði á Blönduósi

Hvað hjálpar þér að veita góða þjónustu?

Við notum sérstakt kerfi sem heldur utan um alla þjónustu sem við veitum. Þannig sjáum við til þess að allir fái svar við sínum beiðnum sem fyrst og ekki leiki neinn vafi á hvað þurfi að gera. Í sama kerfi geta viðskiptavinir veitt okkur endurgjöf og jafnvel skrifað okkur skilaboð ef þeir vilja. Við stöndum okkur bara nokkuð vel, þó ég segi sjálf frá og oft fáum við fullt hús stiga. Það er mjög gaman að fá strax endurgjöf á því hvernig maður stendur sig.

Kynntu þér þjónustvegferð Advania

Ein áhrifamesta umbótin á þjónustu Advania var ákvörðunin um að gera jafn miklar kröfur um árangur í þjónustu og rekstri. Það þýddi að í hvert sinn sem árangur fyrirtækisins var mældur, var horft til upplifunar viðskiptavina af fyrirtækinu.

Sjáðu hvernig við náðum árangri í þjónustu