Þórður Ingi Guðmundsson forstöðumaður Gervigreindarseturs Advania. Viðar Pétur Styrkársson vörustjóri gervigreindar hjá Advania og Ljósbrá Logadóttir forstöðumaður hjá Innviðalausnum Advania. Ljósmynd: Jón Snær Ragnarsson

Fréttir - DD.02.YYYY

Leiðandi í ábyrgri nýtingu gervigreindar

Sylvía Rut Sigfúsdóttir
samskiptastjóri Advania

„Hvað ætlar þitt fyrirtæki að gera í gervigreind?“ er líklega algengasta spurningin sem stjórnendur fyrirtækja hafa spurt og verið spurðir að síðastliðið ár. Gervigreindarsetur Advania hefur farið af stað með 90 daga hraðal þar sem markmiðið er að fyrirtæki taki skýr skref í átt að virðisaukandi nýtingu gervigreindar í rekstri.

„Við höfum lagt mikið upp úr því að vera til staðar fyrir viðskiptavini okkar og er gervigreind engin undantekning þar á. Advania býr yfir mikilli bandvídd og getur veitt fyrirtækjum víðtæka aðstoð og þjónustu við að ná utan um þetta mikilvæga viðfangsefni. Við höfum stofnað okkar frábæra Gervigreindarsetur þar sem við tökum á móti fyrirtækjum sem vilja ná utan um hver er staðan í þeirra fyrirtæki og hvar liggja tækifæri í að nýta gervigreind,“ segir Þórður Ingi Guðmundsson forstöðumaður Gervigreindarseturs Advania.

Líkt og með allar stórar tæknibyltingar þá er erfitt að átta sig á hvað um ræðir og hversu mikið gervigreindarbyltingin mun breyta fyrirtækjum og heiminum.

„Við erum með gríðarlega sterkt lausnateymi sem getur aðstoðað fyrirtæki við að teikna upp arkitektúr vélbúnaðar sem þarf til að hefja þessa vegferð. Fyrirtæki þurfa ekki að byrja stórt, en það er mikilvægt að ná utan um verkefnin, hvað muni skila fyrirtækjum virði og hvaða hugbúnað og vélbúnað þurfi til að ná þeim árangri,“ segir Ljósbrá

Advania verður á sýningarsvæði UTmessunnar á föstudag og laugardag þar sem gestir geta rætt við sérfræðinga í gervigreind og fengið svör við spurningum sem á þeim brenna.

NVIDIA AI Advisor

Advania hefur síðustu misseri verið í þéttu samstarfi með NVIDIA og einnig haldið með tæknirisanum fjölda viðburða og námskeiða hér á landi. Fulltrúar NVIDIA voru á Haustráðstefnu Advania í september og sögðu frá því helsta úr heimi gervigreindar.

„Teymi frá Advania Íslandi tók svo þátt í sérstöku NVIDIA Advisor námskeiði í München, en alls voru þar 30 sérfræðingar frá Advania samstæðunni. Þjálfunin miðar að því að efla hæfni og stefnumótun fyrirtækja í innleiðingu gervigreindar. Markmiðið er að styrkja samstarf Advania og NVIDIA og nýta sameiginlega þekkingu til að hraða upptöku gervigreindar á Norðurlöndunum og styðja við ábyrga og markvissa notkun gervigreindar hjá viðskiptavinum. Þátttaka Advania Íslands í NVIDIA AI Advisor er liður í stærri stefnu um að hraða gervigreindarumbreytingu íslensks atvinnulífs og styðja við samkeppnishæfni landsins,“ segir Þórður Ingi.

„Advania og NVIDIA munu áfram vinna saman að því að innleiða nýjustu lausnir í gervigreind, styðja við menntun og efla samstarf innan Norðurlandanna.
Þetta samstarf markar enn eitt skrefið í vegferð Advania til að vera leiðandi í ábyrgri nýtingu gervigreindar í þjónustu við fyrirtæki og stofnanir. Samstarf Advania og NVIDIA hefur á skömmum tíma orðið gríðarlega  öflugt. Með aðgangi að nýjustu tækni, sérfræðingum beggja fyrirtækja og innviðum Advania geta fyrirtæki og stofnanir á Norðurlöndunum nýtt gervigreind til að auka framleiðni, bæta þjónustu og nýta gögn á ábyrgan hátt,“ segir Ljósbrá Logadóttir forstöðumaður hjá Innviðalausnum Advania.

Læra á gervigreind með réttum búnaði

Nú eru mörg fyrirtæki farin að taka sín fyrstu skref í að nýta gervigreind í sinni starfsemi.

„Á þessum fyrstu stigum er oft verið að prófa fjölbreyttar leiðir, greina mismunandi verkefni og skilja hvernig tæknin hagar sér áður en lausnir eru fluttar yfir í raunumhverfi. Hér spilar einnig inn í að Advania er í góðu samstarfi við NVIDIA. Þegar verkefni verða stærri og flóknari getum við leitað beint til þeirra sérfræðinga sem vinna að þróun þessara lausna dag frá degi. Auk þess höfum við frábært aðgengi að kollegum okkar í hinum Advania félögunum, sem búa yfir sérhæfðri þekkingu á ólíkum sviðum og geta stutt okkur í verkefnum sem kalla á sérfræðikunnáttu,“ segir Þórður Ingi.

Af þessum ástæðum hefur Advania því verið að aðstoða fyrirtæki við að velja hvort henti þeim betur að nýta skýjaþjónustur eða fjárfesta í búnaði til að byggja upp sitt eigið prófunarumhverfi.

„Lausnirnar eru fjölbreyttar, sum fyrirtæki hafa til dæmis nýtt Dell Pro Max með GB10 sem byggir á NVIDIA Grace Blackwell og er sambærileg við DGX Spark í afköstum. Í báðum tilfellum er hægt að nýta hluta af NVIDIA hugbúnaðarstakknum fyrirtækjum að kostnaðarlausu. Önnur fyrirtæki hafa kosið að fjárfesta í vélbúnað með NVIDIA skjákortum sem hentar vel fyrir sértækari eða flóknari prófanir,“ segir Ljósbrá.

Slík innanhúss prófunarumhverfi geta skipt sköpum. Þau skapa sveigjanleika til að prófa nýjar hugmyndir, gera tilraunir og jafnvel gera mistök, án þess að skýjakostnaður sé hindrun. Það flýtir fyrir lærdómi og styrkir grunninn fyrir markvissari innleiðingu gervigreindarlausna.

„Við viljum styðja við okkar viðskiptavini í þeirra gervigreindarvegferð. Við bjóðum því upp á tvenns konar ráðgjöf þegar kemur að búnaðarkaupum. Einföld ráðgjöf þegar verkefnið er þekkt og taka þarf skjótar ákvarðanir, og ítarlegri ráðgjöf þegar kemur að arkitektúr, innleiðingu og heildarhönnun gervigreindarumhverfis,“ segir Ljósbrá.

90 daga gervigreindarhraðall

Gervigreindarsetrið (e. AI Center of Excellence) innan Advania var sett af stað á síðasta ári og gegnir það lykilhlutverki í að samræma og þróa stefnu fyrirtækisins í gervigreind.

„Þróun á gervigreind hefur verið mjög hröð á undanförnum árum og mánuðum og þó mikill vilji sé hjá fyrirtækjum til að taka þátt í kapphlaupinu þá hefur það sýnt sig að það er hægara sagt en gert að innleiða gervigreindarlausnir í reksturinn sinn á skalanlegan og hagkvæman hátt. Það er nefnilega nokkuð auðvelt að sýna fram á virkni með frumgerð, en þegar frumgerð mætir gögnum í raunumhverfi er að ansi mörgu að huga og margt sem getur farið úrskeiðis. Því er mikilvægt að þeir sem ætla að innleiða gervigreind staldri við og greini núverandi stöðu, skoði gaumgæfilega hvar mesta virðið er að finna og leggi af stað í lítil verkefni sem koma hindrunum hratt upp á yfirborðið,“ segir Þórður Ingi.

„Þess vegna er markmið gervigreindarsetursins að aðstoða viðskiptavini við að skilja hvar virðið liggur í notkun gervigreindar í þeirra rekstri. Til þess höfum við sett upp svokallaðan 90 daga gervigreindarhraðal. Hraðallinn skiptist í grófum dráttum í þrjú stig þar sem byrjað er að finna hvernig tækni og menning starfseminnar getur stuðlað að eða spornað við notkun á gervigreind auk þess sem fundin eru helstu tilvik til notkunar. Því næst er hönnuð frumgerð fyrir lausn og Advania stingur upp á þeirri tækni sem væri líkleg til að þjóna því tilviki. Þessi frumgerð er þróuð og sett í gegnum notendaprófanir til að sjá hvort fýsilegt sé að halda áfram með lausnina. Ef það gengur eftir er lausninni loks komið í rekstur með gögnum á raunumhverfi þar sem skýr og mælanleg markmið eru sett um það virði sem lausnin á að skila. Í lokin er svo skýrum vegvísi stillt upp um næstu skref í innleiðingu gervigreindar,“ segir Þórður Ingi.

Þau segja mikilvægt að fyrirtæki leggi af stað í þessa vegferð með skýra sýn og þar getur Advania komið að og hjálpað til.

„Gervigreind er ekki bara einhver ein lausn sem fyrirtæki innleiðir, heldur er það vegferð og ný nálgun á upplýsingatækni, gögn og upplifun notenda. Það er mikilvægt að hugsa stórt, en það er líka mikilvægt að byrja, og byrja smátt,“ segir Ljósbrá að lokum.

Fleiri fréttir

Fréttir
03.11.2026
Hvernig geta sveitarfélög nýtt gervigreind og sjálfvirkni til að einfalda dagleg verkefni, bæta þjónustu við íbúa og draga úr handavinnu? Það var viðfangsefni morgunverðarfundar Advania um gervigreind og sjálfvirkni fyrir sveitarfélög sem haldinn var 2. nóvember.
Fréttir
30.10.2026
**Starfsmaður opnar viðhengi, slær inn lykilorðið og staðfestir innskráninguna með fjölþátta auðkenningu. Svo heldur hann áfram að vinna í tölvupóstinum eins og ekkert hafi í skorist. Á meðan situr árásaraðili inni í sömu lotu og undirbýr að fá falsaðan reikning greiddan.**
Fréttir
29.10.2026
Ingunn Guðmundsdóttir hefur tekið við starfi mannauðsstjóra Advania. Hún hefur starfað hjá Advania undanfarin þrjú ár við mannauðsmál og stjórnendaráðgjöf.
Fréttir
29.10.2026
Advania er í hópi Framúrskarandi fyrirtækja 2026 samkvæmt greiningu Creditinfo. Listinn var kynntur við hátíðlega athöfn í Hörpu í gær.
Fréttir
28.10.2026
Fyrir ári fór ný vefverslun Nathan í loftið, byggð á DynamicWeb í samstarfi við Advania. Við óskum Nathan innilega til hamingju með eins árs afmæli sameinaðs félags og nýju vefverslunarinnar.
Blogg
27.10.2026
Í morgun opnuðum við hliðin, og það sem beið hinum megin stóðst allar væntingar. Full stofa, ilmandi morgunverður og rafmagnað andrúmsloft. Morgunfundurinn Opnum hliðin með Genesys í Guðrúnartúni heppnaðist einstaklega vel, og við sitjum eftir með bros á vör og fullt af nýjum hugmyndum.
Blogg
26.10.2026
Hvernig geta fyrirtæki farið frá því að prófa gervigreind yfir í að nýta hana til að skapa raunverulegt virði? Á Innovation Day Reykjavík verður sjónum beint að næsta skrefi í þróun gervigreindar, þar sem fólk og gervigreindarerindrekar (e. AI agents) vinna saman.
Fréttir
26.10.2026
Fréttir af gervigreind sem brýst út og hakkar sig inn í kerfi af eigin vilja hljóma eins og vísindaskáldskapur. Á bak við slík tilvik er þó alltaf manneskja sem setti markmiðið. Gervigreindin fann bara leiðina sjálf.
Fréttir, businesscentral.advania.is
22.10.2026
Nýjungar í Business Central, gervigreind og aukin sjálfvirkni voru í brennidepli á morgunverðarfundi Advania sem haldinn var í gær. Þar var meðal annars farið yfir nýjungar í Business Central 29, hvernig Copilot og gervigreindarerindrekar geta einfaldað dagleg störf og nýjungar í viðbótum Advania. Einnig kynnti Pósturinn nýtt app fyrir Business Central.
Fréttir
21.10.2026
Fyrr í dag vakti CERT-IS athygli á tveimur alvarlegum öryggisveikleikum í PHP-forritunarmálinu sem knýr mikinn fjölda vefsíða. Rekstrarteymi Advania brást strax við.
Fréttir
20.10.2026
Tuttugu og sjö sekúndur. Það var tíminn sem það tók árásaraðila að komast frá fyrsta inngangspunkti yfir í önnur kerfi í hraðasta tilvikinu sem CrowdStrike mældi á árinu. Á þeim tíma ná flestir varla að skrá sig inn í vinnutölvuna.
Blogg
19.10.2026
Það var þétt setinn salur, kaffilykt í loftinu og góð stemning á árlegum dótadegi Advania á Akureyri. Þema ársins var skýrt: gervigreind er hætt að vera eitthvað sem gerist úti í skýi og komin inn í búnaðinn sjálfan, alla leið niður í heyrnartólin.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.