NETÖRYGGI

Frá flóknum ógnum yfir í markvissar varnir

VIð hjálpum þér að ná betri stjórn á netöryggi fyrirtækisins. Með því að tengja saman fólk, tækni og áhættustýringu í markvissa vegferð sem þróast með rekstrinum. Þú færð réttu lausnirnar í réttri röð, skýrari yfirsýn og einn samstarfsaðila sem heldur utan um heildina.

Netöryggi snýst um meira en einstakar lausnir

Þegar netöryggismálum er sinnt með mörgum aðskildum lausnum og birgjum getur heildarmyndin tapast. Ábyrgðin verður óskýr, forgangsröðunin flókin og erfitt að sýna fram á árangur.

Við trúum á aðra nálgun. Netöryggi þarf að vera samfelld vegferð þar sem aðgerðir vinna saman og taka mið af raunverulegri áhættu fyrirtækisins.

Dregið úr áhættu í skrefum

Þið þarft ekki að gera allt í einu. Við hjálpum ykkur að greina hvar áhættan liggur og forgangsraða næstu skrefum út frá þörfum fyrirtækisins.

Vitið hvar þið standið og getið sýnt fram á það

Fáið betri yfirsýn yfir netöryggismálin og stuðning við að sýna fram á framvindu, ábyrgð og eftirfylgni.

Einn samstarfsaðili með skýra ábyrgð

Við samhæfum lausnir og samstarfsaðila svo þið þurfið ekki að halda utan um hvert verkefni sjálf.

Þegar netöryggislausnir eru keyptar frá mörgum birgjum getur ábyrgðin orðið óskýr og utanumhaldið tímafrekt. Hjá Advania fær þitt fyrirtæki samhæfða netöryggisnálgun. Við vinnum með völdum samstarfsaðilum og höldum utan um lausnirnar sem hluta af heildstæðri þjónustu. Þú færð aðgang að sérhæfðri þekkingu og lausnum án þess að þurfa sjálf að samhæfa hvert verkefni og birgja.
Guðmundur Arnar Sigmundsson
forstöðumaður netöryggis og gagnaþróunar
Advania

Byggjum upp sterkari varnir í fjórum skrefum

Engin tvö fyrirtæki eru eins. Þess vegna byggjum við varnirnar upp í skrefum, út frá þörfum, stöðu og áhættu hvers fyrirtækis. Þú byrjar þar sem þörfin er mest og bætir við skrefum eftir því sem þarfirnar þróast og varnirnar styrkjast.

Þjálfun starfsfólks

Starfsfólkið er mikilvægur hluti af vörnum fyrirtækisins. Með fræðslu og reglulegum vefveiðiprófunum hjálpum við starfsfólki að þekkja ógnir og bregðast rétt við.

Minnkum áhættuflötinn

Þið getið ekki varið það sem þið hafið ekki yfirsýn yfir. Með kortlagningu eigna og veikleikastjórnun fáið þið betri mynd af tækniumhverfinu og getið betur forgangsraðað úrbótum.

Örugg notkun gervigreindar

Notkun gervigreindar skapar ný tækifæri en einnig nýjar öryggisáskoranir. Mikilvægt er að huga að áhættu og öryggi þegar gervigreind er innleidd og notuð í rekstri.

Styrkjum viðnámsþol

Netöryggi þarf að vera meira en góð áform. Með ráðgjöf í áhættu- og regluvörslu er unnið að því að meta stöðu fyrirtækisins, styðja við kröfur og sýna fram á framvindu.

Netöryggi sem styður við kröfur og ábyrgð

Kröfur um netöryggi og viðnámsþol kalla á markvissa og samfellda vinnu. Fyrirtæki þurfa ekki aðeins að grípa til aðgerða heldur einnig að geta sýnt fram á hvernig öryggismálum er sinnt.

Advania hjálpar fyrirtækjum að fá betri yfirsýn yfir áhættu, fylgja eftir úrbótum og byggja upp gögn og skýrslugjöf sem styðja við kröfur og innra eftirlit.

Nálgunin tekur mið af viðeigandi regluverki og þörfum fyrirtækisins, meðal annars þar sem lög nr. 78/2019, NIS2 eða DORA eiga við.

Netöryggi sem þróast með fyrirtækinu

Netöryggi er ekki verkefni sem klárast. Ógnir, tækni og kröfur breytast sífellt og varnirnar þurfa að þróast með þeim.

Með skýrri vegferð geturðu tekið upplýstar ákvarðanir, forgangsraðað fjárfestingum í öryggi og byggt upp varnir í takt við þarfir fyrirtækisins.

Netöryggislausnir sem vinna saman

Frá öryggisþjálfun starfsfólks til vöktunar, veikleikastjórnunar og gagnaöryggis. Við hjálpum ykkur að finna lausnirnar sem henta ykkar umhverfi og tengja þær við heildstæða nálgun í netöryggi.

SKJÖLDUR

Netöryggi allan sólarhringinn

Netöryggisvöktun og stuðningur við greiningu og viðbrögð hjálpa ykkur að bregðast við ógnum og styrkja varnir fyrirtækisins.

MICROSOFT SECURITY

Verndaðu stafræna vinnuumhverfið

Styrkið öryggi notenda, tækja og gagna með öryggislausnum Microsoft. Dragið úr áhættu og byggið upp öruggara stafrænt vinnuumhverfi.

ADVANIA VITUND

Öflugri varnir byrja hjá fólkinu

Hjálpið starfsfólki að þekkja vefveiðar og aðrar netógnir með fræðslu og reglulegri þjálfun. Eflið öryggisvitundina og minnkið áhættu í daglegum rekstri.

NANITOR

Finndu veikleikana og forgangsraðaðu

Fáið betri yfirsýn yfir eignir og veikleika í upplýsingatækniumhverfinu. Greinið hvar áhættan liggur svo hægt sé að forgangsraða úrbótum út frá raunverulegri áhættu.

KEYSTRIKE

Styrktu varnir upplýsingakerfa

Sérhæfð netöryggislausn sem er hluti af samstarfi Advania og Keystrike. Kynntu þér hvernig lausnin getur stutt við öryggi í þínu tæknilega umhverfi.

microsoft pureview

Verndaðu verðmætustu gögnin

Bættu yfirsýn og stjórn á viðkvæmum upplýsingum. Með markvissri gagnavernd getið þið dregið úr áhættu og stutt við örugga meðhöndlun gagna.

Skoða Microsoft Pureview

Þekking og samstarf sem styrkir varnirnar

Netöryggi krefst sérhæfðrar þekkingar, réttra lausna og samstarfs sem byggir á trausti. Advania starfar með mörgum af öflugustu  samstarfsaðilum heims í netöryggi við að byggja upp lausnir sem taka mið af raunverulegum þörfum og áskorunum fyrirtækja.

SPJÖLLUM UM NETÖRYGGI

Byrjum á að kortleggja fyrsta skrefið

Þú þarft ekki að hafa allt á hreinu áður en þú byrjar. Við hjálpum þér að meta stöðuna, greina helstu áhættufleti og kortleggja fyrsta skrefið sem skipta mestu máli fyrir fyrirtækið þitt.