Blogg - DD.11.YYYY

Hvað skal hafa í huga þegar tölvuskjár er keyptur?

Að vera með lélegan skjá við góða tölvu er svipað að eiga nýjan og fínan bíl en keyra hann á gömlum og slitnum dekkjum.

Oft áttar fólk sig ekki á því hvað tölvuskjár er stór hluti af þeirri upplifun sem fylgir því að eiga góða tölvu. Að vera með lélegan skjá við góða tölvu er svipað eins og að eiga nýjan og fínan bíl á gömlum og slitnum dekkjum. 

Af hverju skiptir máli að vera með rétta skjáinn?

Að vera með rétta skjáupplausn fyrir þau verkefni sem þú ert að vinna í á hverjum tíma sparar tíma og fyrirhöfn. Þá er nægt vinnuplás á skjánum þannig að skrun stórminnkar eða heyrir sögunni til.  Þegar þú velur skjá margborgar sig að vera með á hreinu í hvað þú ætlar að nota hann helst. Það er glettilega mikill munur á skjám sem eru ætlaðir til heimilsnota, skrifstofuvinnu eða í grafíska vinnslu. 


Skjáir fyrir heimilið

Skjáir fyrir heimilið eru gjarnan með  glerfilmu sem gera myndir meira lifandi og bjartari. Slíkt hentar ekki ef verið er að vinna myndir til prentunar þar sem litir á skjám með glerfilmu skila öðruvísi litum en á prenti. Skjáir með glerfilmu henta ekki þar sem gluggar eru fyrir aftan notandann sem er algengt á skrifstofum. Snertiskjáir eru spennandi kostur fyrir þá sem nota Windows 8 stýrikerfið og fela í sér nýja upplifun við að skoða vefsíður, spila leiki og skoða myndir. 


Skjáir fyrir fyrirtæki

Með sífellt minni og nettari fartölvum og notkun spjaldtölva á vinnustöðum er í raun meiri þörf fyrir stóra og myndarlega skjái.  Vinnuvistfræði er mikilvæg enda verjum við oft löngum tíma fyrir framan tölvuskjái í vinnunni. Vinnuaðstaða skiptir sköpum í heilsu og framleiðni starfsmanna. Á vinnustöðum er gott að hafa skjái sem auðvelt er að stilla að þörfum notandans. Nauðsynlegt er að hafa skjá með glampavörn og gott er að geta breytt hæð og sjónarhorni eftir því hvort horft er á skjáinn í skammsniði (e. Portrait) eða langsniði (e. Landscape). 

Skjáir fyrir grafíska vinnslu

Þeir sem kaupa skjái fyrir grafíska vinnslu ættu að velja þá með vandaðri IPS skjámottu (e. Display panel) en þeir eru með hærri upplausn en venjulegir skjáir sem ætlaðir til heimanota eða til notkunar á vinnustöðum. Skjáir í Ultrasharp línunni frá Dell eru dæmi um skjái sem ætlaðir eru fyrir grafíska vinnslu og henta sérstaklega vel fyrir vinnslu á kyrrmyndum og hreyfimyndum. Þeir sem starfa í prentiðnaðinum ættu að skoða skjái með svokallaðri „Premiercolor“ tækni sem skilar hárnákvæmum litum. 

Ef þú velkist í vafa um hvernig skjár hentar þér þá endilega kíktu í verslanir  Advania og fáðu ráðleggingar. 


Fleiri fréttir

Fréttir
03.11.2026
Hvernig geta sveitarfélög nýtt gervigreind og sjálfvirkni til að einfalda dagleg verkefni, bæta þjónustu við íbúa og draga úr handavinnu? Það var viðfangsefni morgunverðarfundar Advania um gervigreind og sjálfvirkni fyrir sveitarfélög sem haldinn var 2. nóvember.
Fréttir
30.10.2026
**Starfsmaður opnar viðhengi, slær inn lykilorðið og staðfestir innskráninguna með fjölþátta auðkenningu. Svo heldur hann áfram að vinna í tölvupóstinum eins og ekkert hafi í skorist. Á meðan situr árásaraðili inni í sömu lotu og undirbýr að fá falsaðan reikning greiddan.**
Fréttir
29.10.2026
Ingunn Guðmundsdóttir hefur tekið við starfi mannauðsstjóra Advania. Hún hefur starfað hjá Advania undanfarin þrjú ár við mannauðsmál og stjórnendaráðgjöf.
Fréttir
29.10.2026
Advania er í hópi Framúrskarandi fyrirtækja 2026 samkvæmt greiningu Creditinfo. Listinn var kynntur við hátíðlega athöfn í Hörpu í gær.
Fréttir
28.10.2026
Fyrir ári fór ný vefverslun Nathan í loftið, byggð á DynamicWeb í samstarfi við Advania. Við óskum Nathan innilega til hamingju með eins árs afmæli sameinaðs félags og nýju vefverslunarinnar.
Blogg
27.10.2026
Í morgun opnuðum við hliðin, og það sem beið hinum megin stóðst allar væntingar. Full stofa, ilmandi morgunverður og rafmagnað andrúmsloft. Morgunfundurinn Opnum hliðin með Genesys í Guðrúnartúni heppnaðist einstaklega vel, og við sitjum eftir með bros á vör og fullt af nýjum hugmyndum.
Blogg
26.10.2026
Hvernig geta fyrirtæki farið frá því að prófa gervigreind yfir í að nýta hana til að skapa raunverulegt virði? Á Innovation Day Reykjavík verður sjónum beint að næsta skrefi í þróun gervigreindar, þar sem fólk og gervigreindarerindrekar (e. AI agents) vinna saman.
Fréttir
26.10.2026
Fréttir af gervigreind sem brýst út og hakkar sig inn í kerfi af eigin vilja hljóma eins og vísindaskáldskapur. Á bak við slík tilvik er þó alltaf manneskja sem setti markmiðið. Gervigreindin fann bara leiðina sjálf.
Fréttir, businesscentral.advania.is
22.10.2026
Nýjungar í Business Central, gervigreind og aukin sjálfvirkni voru í brennidepli á morgunverðarfundi Advania sem haldinn var í gær. Þar var meðal annars farið yfir nýjungar í Business Central 29, hvernig Copilot og gervigreindarerindrekar geta einfaldað dagleg störf og nýjungar í viðbótum Advania. Einnig kynnti Pósturinn nýtt app fyrir Business Central.
Fréttir
21.10.2026
Fyrr í dag vakti CERT-IS athygli á tveimur alvarlegum öryggisveikleikum í PHP-forritunarmálinu sem knýr mikinn fjölda vefsíða. Rekstrarteymi Advania brást strax við.
Fréttir
20.10.2026
Tuttugu og sjö sekúndur. Það var tíminn sem það tók árásaraðila að komast frá fyrsta inngangspunkti yfir í önnur kerfi í hraðasta tilvikinu sem CrowdStrike mældi á árinu. Á þeim tíma ná flestir varla að skrá sig inn í vinnutölvuna.
Blogg
19.10.2026
Það var þétt setinn salur, kaffilykt í loftinu og góð stemning á árlegum dótadegi Advania á Akureyri. Þema ársins var skýrt: gervigreind er hætt að vera eitthvað sem gerist úti í skýi og komin inn í búnaðinn sjálfan, alla leið niður í heyrnartólin.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.