Nýjasta nýtt - 08.03.2010
Morgunverðarfundur 12. mars: Árangur og hagnaður með CRM
Skýrr býður atvinnulífinu til morgunverðarfundar um viðskiptatengsl með CRM núna á föstudaginn kemur, 12. mars.
Á fundinum munu fjórir sérfræðingar í CRM fjalla um bættan árangur og aukinn hagnað í rekstri með notkun aðferðafræði og tóla CRM-viðskiptengsla til að stýra markvisst samskiptum, verkefnum og tengslum við viðskiptavini. Auk þess verða kynntar rannsóknir fræðifólks um ávinning innleiðingar CRM.
Fundurinn verður haldinn í ráðstefnusal Skýrr að Ármúla 2 í Reykjavík (gengið inn frá Háaleitisbraut).
Ljúffengur morgunverður að hætti hússins verður framreiddur á föstudaginn frá kl. 8:00, en formleg dagskrá hefst kl. 8:30. Fundarlok eru kl. 10:00. Sjá nánar dagskrá hér að neðan.
Skráðu þig með því að senda póst á skyrr@skyrr.is
Þátttaka er gestum að kostnaðarlausu. Fundurinn er öllum opinn, meðan húsrúm leyfir.

Dagskrá
- Skýrr býður góðan dag! Gestur G. Gestsson, forstjóri Skýrr
- Áhrif CRM-innleiðingar á hagnað: Hvað segja fræðin? Friðrik Eysteinsson, aðjúnkt við Háskóla Íslands
- Áskriftakerfi 365 miðla: Tugþúsundir viðskiptavina? CRM leysir málið! Ágúst Valgeirsson, framkvæmdastjóri tæknisviðs 365 miðla
- Innleiðing CRM hjá Vodafone: Samþætting CRM við önnur upplýsingakerfi Einar Þórarinsson, forstöðumaður stoðkerfa hjá tæknisviði Vodafone
- CRM-innleiðingar: Hvað ber að varast? Erlendur Eyvindarson, ráðgjafi hjá Skýrr
- Fundarstjóri Bjarmi Guðlaugsson, ráðgjafi hjá Skýrr