Blogg - DD.05.YYYY

Stóri vinningurinn fyrir viðskiptagreind og áætlunargerð

Með markvissri notkun á góðum viðskiptagreindarhugbúnaði geta fyrirtæki og stofnanir hagrætt í rekstri og sparað peninga.

Markviss árangursstjórnun sem byggir á hagnýtingu öflugs hugbúnaðar fyrir viðskiptagreind og áætlunargerð getur skilað fyrirtækjum og stofnunum hagræðingu og fjárhagslegum ávinningi. IBM Cognos hefur um árabil verið meðal þeirra fremstu í hugbúnaðarlausnum þegar kemur að viðskiptagreind (BI), áætlanagerð og árangurstjórnun. 

Útgáfa með fjölda nýjunga og lægra verði

Hingað til hefur það aðeins verið á færi stórra fyrirtæki að nýta sér þennan öfluga hugbúnað. Nýverið gaf IBM út 10. útgáfuna af Cognos sem inniheldur fjölda nýjunga. Jafnframt hefur IBM endurskilgreint uppbyggingu Cognos notendaleyfa þannig að nú má skipta Cognos upp í þrjú stærðarþrep

     1. Cognos Insight
     2. Cognos Express
     3. Cognos Enterprise
Cognos Express er að mínu mati „stóri vinningurinn“ fyrir íslensk fyrirtæki sem vilja innleiða viðskiptagreind og stórbæta alla áætlunargerð hjá sér.

Samhæfð lausn sem mætir þörfum íslenskra fyrirtækja

IBM Cognos Express er fyrsta og eina samhæfða lausnin fyrir viðskiptagreind og áætlanagerð á markaðnum. Hámarks notendafjöldi fyrir Cognos Express eru 100 notendur en er að öðru leyti sambærilegur hugbúnaður og Cognos Enterprise. Þessi takmörkun hefur engin áhrif á flest  íslensk fyrirtæki en þýðir að verðið á Cognos Express er aðeins brot af því sem Cognos lausnir hafa kostað hingað til. Cognos Express getur því opnað dyr íslenskra stjórnenda að stórbættri áætlungargerð, rekstraryfirsýn og auknum árangri.

Cognos Express inniheldur:

  • Skýrslugerð
  • Greiningartæki
  • Mælaborð
  • Skorkort
  • Áætlanagerð

Markviss greining og upplýsingamiðlun í rauntíma

Með Cognos Express verður öll greining og miðlun upplýsinga úr rekstri fyrirtækisins markvissari og árangursríkari. Cognos Express Planning er einn öflugasti hugbúnaður fyrir áætlunargerð sem völ er á í dag. Hann byggir á IBM Cognos TM1 sem er 64 bita In-Memory OLAP sem gerir það að verkum að allar breytingar uppfærast í rauntíma. Þetta þýðir að ekki þarf að bíða eftir tímastilltum keyrslum. Samhæfing viðskiptagreindar- og áætlanagerðar hluta Cognos Express gerir hana að einni mest spennandi lausn fyrir áætlunargerð og viðskiptagreind sem fáanleg er.


Um höfundinn
Hallgrímur er með meistarpróf í reikningshaldi og fjármálum. Hann hefur sérhæft sig í upplýsingaþörf stjórnenda og starfað sem BI ráðgjafi hjá Advanina frá árinu 2007. Hallgrímur glamrar á píanó og semur dægurlög í frístundum.

Hafa samband

Ef þú vilt vita meira um viðskiptagreind hafðu þá samband við Hallgrím með því að senda honum tölvupóst

 

Fleiri fréttir

Fréttir, Power Platform
06.11.2026
Advania hélt í vikunni morgunverðarfund um næstu bylgju Microsoft Power Platform, þar sem fjallað var um hvernig öpp, sjálfvirkni og gervigreindarerindrekar eru að breyta vinnulagi fyrirtækja.
Fréttir
05.11.2026
Í tengslum við Haustráðstefnu Advania í ár héldum við sérstakan HPE Deep Dive viðburð þar sem sjónum var beint að þróun netkerfa, sjálfvirkni og hlutverki gervigreindar í rekstri þeirra.
Fréttir
03.11.2026
Hvernig geta sveitarfélög nýtt gervigreind og sjálfvirkni til að einfalda dagleg verkefni, bæta þjónustu við íbúa og draga úr handavinnu? Það var viðfangsefni morgunverðarfundar Advania um gervigreind og sjálfvirkni fyrir sveitarfélög sem haldinn var 2. nóvember.
Fréttir
30.10.2026
**Starfsmaður opnar viðhengi, slær inn lykilorðið og staðfestir innskráninguna með fjölþátta auðkenningu. Svo heldur hann áfram að vinna í tölvupóstinum eins og ekkert hafi í skorist. Á meðan situr árásaraðili inni í sömu lotu og undirbýr að fá falsaðan reikning greiddan.**
Fréttir
29.10.2026
Ingunn Guðmundsdóttir hefur tekið við starfi mannauðsstjóra Advania. Hún hefur starfað hjá Advania undanfarin þrjú ár við mannauðsmál og stjórnendaráðgjöf.
Fréttir
29.10.2026
Advania er í hópi Framúrskarandi fyrirtækja 2026 samkvæmt greiningu Creditinfo. Listinn var kynntur við hátíðlega athöfn í Hörpu í gær.
Fréttir
28.10.2026
Fyrir ári fór ný vefverslun Nathan í loftið, byggð á DynamicWeb í samstarfi við Advania. Við óskum Nathan innilega til hamingju með eins árs afmæli sameinaðs félags og nýju vefverslunarinnar.
Blogg
27.10.2026
Í morgun opnuðum við hliðin, og það sem beið hinum megin stóðst allar væntingar. Full stofa, ilmandi morgunverður og rafmagnað andrúmsloft. Morgunfundurinn Opnum hliðin með Genesys í Guðrúnartúni heppnaðist einstaklega vel, og við sitjum eftir með bros á vör og fullt af nýjum hugmyndum.
Blogg
26.10.2026
Hvernig geta fyrirtæki farið frá því að prófa gervigreind yfir í að nýta hana til að skapa raunverulegt virði? Á Innovation Day Reykjavík verður sjónum beint að næsta skrefi í þróun gervigreindar, þar sem fólk og gervigreindarerindrekar (e. AI agents) vinna saman.
Fréttir
26.10.2026
Fréttir af gervigreind sem brýst út og hakkar sig inn í kerfi af eigin vilja hljóma eins og vísindaskáldskapur. Á bak við slík tilvik er þó alltaf manneskja sem setti markmiðið. Gervigreindin fann bara leiðina sjálf.
Fréttir, businesscentral.advania.is
22.10.2026
Nýjungar í Business Central, gervigreind og aukin sjálfvirkni voru í brennidepli á morgunverðarfundi Advania sem haldinn var í gær. Þar var meðal annars farið yfir nýjungar í Business Central 29, hvernig Copilot og gervigreindarerindrekar geta einfaldað dagleg störf og nýjungar í viðbótum Advania. Einnig kynnti Pósturinn nýtt app fyrir Business Central.
Fréttir
21.10.2026
Fyrr í dag vakti CERT-IS athygli á tveimur alvarlegum öryggisveikleikum í PHP-forritunarmálinu sem knýr mikinn fjölda vefsíða. Rekstrarteymi Advania brást strax við.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.