Blogg - DD.06.YYYY

Það ætti að vera skylda að fara á TechEd

Hin árlega Microsoft TechEd ráðstefna var haldin í Orlando, Florida 11. - 14. júní. Fyrirlestrarnir sem Microsoft bauð upp á voru afar fjölbreyttir. Fjallað var um hluti sem tengdust tölvutækni og hugbúnaði, allt frá hugbúnaðarþróun til umsýslu og reksturs á netþjónum og útstöðvum.

Hin árlega Microsoft TechEd ráðstefna var haldin í Orlando, Florida í Orange County Convention Center  11. - 14. júní. Stærðin á þessum viðburði var hreint ótrúleg. Þáttakendur voru um 11 þúsund og ráðstefnusvæðið um 200 þúsund fermetrar. Tímafrekt var að fara milli fyrirlestrarsala þar sem fjarlægðin á milli þeirra var mikil. Þess vegna var nauðsynlegt að skipuleggja dagskrána sína mjög vel fyrirfram. 

Fjöldi fyrirlestra í boði

Fyrirlestrarnir sem Microsoft bauð upp á voru afar fjölbreyttir og gat hver og einn þátttakandi fundið eitthvað á sínu áhuga- og fagsviði. Fjallað var um flest allt sem tengist tölvutækni og hugbúnaði, allt frá hugbúnaðarþróun til umsýslu og reksturs á netþjónum og útstöðvum. Ráðstefnunni var skipt niður í nokkra flokka. Innan þeirra voru fjöldi fyrirlestra sem haldnir voru af mörgum þekktustu hugbúnaðar-forritunarsérfæðingum heims. 

Tæknin reynd á eigin skinni

Á ráðstefnunni var sérstakt „Hands-On“ svæði með hundruðum tölva þar sem þátttakendur á ráðstefnunni gátu sest og prófað nýjustu tækni. Á „Exam Cram“ svæðinu var hægt að læra um nýjustu tæknina og búa sig undir að taka Microsoft prófgráður. Einnig var gaman að skoða auglýsingasvæðið þar sem stuðningsaðilar TechEd ráðstefnunnar kynntu vörur sínar og þjónustu. Ýmsum brögðum var beitt til að fá fólk til að skoða kynningarbása og má þar nefna töfrabrögð, leiki, gjafir og vinninga sem voru dregnir út daglega, á bilinu 25 til 1000 dollarar.  

Byltingarkenndar nýjungar kynntar

Microsoft lagði mikla áherslu á að kynna Windows Server 2012 og nýjungar í því stýrikerfi. Að mínu mati er tilkoma Windows Server 2012 jafn mikið stökk fram á við eins og uppfærslan úr Windows XP yfir í Windows 7 var á sínum tíma. Helsta sem ég tók eftir var ný VDI tækni með „VDI Pooling“ og ný Storage tækni með SMB 3.0 sem styður ODX í SAN diskastæðum. Einnig var mikið um einföldun og sameiningu þjónustu en slíkt felur í sér miklar umbætur frá eldri stýrikerfum og hugbúnaði.  Síðan var mikið rætt um Metro þemað sem er sjálfgefið í Windows 8 og kosti þess. 

Ráðstefnan var bæði afar fróðleg og skemmtileg. Niðurstaðan er eiginlega sú að það ætti að vera skylda fyrir hvern og einn tölvunörd að mæta á TechEd, bæði til að skilja nýja tækni og þróast í starfi með nýjar og ferskar hugmyndir.

 

Fleiri fréttir

Fréttir, Power Platform
06.11.2026
Advania hélt í vikunni morgunverðarfund um næstu bylgju Microsoft Power Platform, þar sem fjallað var um hvernig öpp, sjálfvirkni og gervigreindarerindrekar eru að breyta vinnulagi fyrirtækja.
Fréttir
05.11.2026
Í tengslum við Haustráðstefnu Advania í ár héldum við sérstakan HPE Deep Dive viðburð þar sem sjónum var beint að þróun netkerfa, sjálfvirkni og hlutverki gervigreindar í rekstri þeirra.
Fréttir
03.11.2026
Hvernig geta sveitarfélög nýtt gervigreind og sjálfvirkni til að einfalda dagleg verkefni, bæta þjónustu við íbúa og draga úr handavinnu? Það var viðfangsefni morgunverðarfundar Advania um gervigreind og sjálfvirkni fyrir sveitarfélög sem haldinn var 2. nóvember.
Fréttir
30.10.2026
**Starfsmaður opnar viðhengi, slær inn lykilorðið og staðfestir innskráninguna með fjölþátta auðkenningu. Svo heldur hann áfram að vinna í tölvupóstinum eins og ekkert hafi í skorist. Á meðan situr árásaraðili inni í sömu lotu og undirbýr að fá falsaðan reikning greiddan.**
Fréttir
29.10.2026
Ingunn Guðmundsdóttir hefur tekið við starfi mannauðsstjóra Advania. Hún hefur starfað hjá Advania undanfarin þrjú ár við mannauðsmál og stjórnendaráðgjöf.
Fréttir
29.10.2026
Advania er í hópi Framúrskarandi fyrirtækja 2026 samkvæmt greiningu Creditinfo. Listinn var kynntur við hátíðlega athöfn í Hörpu í gær.
Fréttir
28.10.2026
Fyrir ári fór ný vefverslun Nathan í loftið, byggð á DynamicWeb í samstarfi við Advania. Við óskum Nathan innilega til hamingju með eins árs afmæli sameinaðs félags og nýju vefverslunarinnar.
Blogg
27.10.2026
Í morgun opnuðum við hliðin, og það sem beið hinum megin stóðst allar væntingar. Full stofa, ilmandi morgunverður og rafmagnað andrúmsloft. Morgunfundurinn Opnum hliðin með Genesys í Guðrúnartúni heppnaðist einstaklega vel, og við sitjum eftir með bros á vör og fullt af nýjum hugmyndum.
Blogg
26.10.2026
Hvernig geta fyrirtæki farið frá því að prófa gervigreind yfir í að nýta hana til að skapa raunverulegt virði? Á Innovation Day Reykjavík verður sjónum beint að næsta skrefi í þróun gervigreindar, þar sem fólk og gervigreindarerindrekar (e. AI agents) vinna saman.
Fréttir
26.10.2026
Fréttir af gervigreind sem brýst út og hakkar sig inn í kerfi af eigin vilja hljóma eins og vísindaskáldskapur. Á bak við slík tilvik er þó alltaf manneskja sem setti markmiðið. Gervigreindin fann bara leiðina sjálf.
Fréttir, businesscentral.advania.is
22.10.2026
Nýjungar í Business Central, gervigreind og aukin sjálfvirkni voru í brennidepli á morgunverðarfundi Advania sem haldinn var í gær. Þar var meðal annars farið yfir nýjungar í Business Central 29, hvernig Copilot og gervigreindarerindrekar geta einfaldað dagleg störf og nýjungar í viðbótum Advania. Einnig kynnti Pósturinn nýtt app fyrir Business Central.
Fréttir
21.10.2026
Fyrr í dag vakti CERT-IS athygli á tveimur alvarlegum öryggisveikleikum í PHP-forritunarmálinu sem knýr mikinn fjölda vefsíða. Rekstrarteymi Advania brást strax við.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.