Blogg - DD.03.YYYY

Útflutningur á íslensku hugviti

Um 40 sérfræðingar Advania koma að verkefnum fyrir NAAFI (The UK Navy, Army and Air Force Institutes) sem felast í hýsingu, rekstri og endurskipulagningu á upplýsingakerfum.

Núna í febrúar var greint frá því að Advania og NAAFI (The UK Navy, Army and Air Force Institutes) hafi gert samning um að Advania hýsi, reki og endurskipuleggi upplýsingakerfi hjá NAAFI. Í fréttatilkynningu segir að samstarfið gangi út á að Advania aðstoði NAAFI við að besta viðskiptaferla og innleiða heildstæða Microsoft Dynamics NAV viðskiptalausn og smásölukerfi sem kemur í staðinn fyrir fjölda eldri kerfa. Eins og nafnið gefur til kynna þá rekur NAAFI mötuneyti og verslanir í breskum herstöðvum utan Englands, þær eru staðsettar í Þýskalandi, Gíbraltar, Norður Írlandi, Falklandseyjum, Ascensioneyjum, Brunei og Afganistan. 

Samstarf á traustum grunni

Samstarf NAAFI og Advania teygir sig aftur til ársins 2002 en NAAFI tók þá upp verslunarlausn frá Streng. Þar var um ræða Navision 3,7 viðskiptalausn ásamt Infostore verslunarkerfi og kassakerfi. Þetta kerfi var notað í verslunum í herstöðvum Breta í Þýskalandi og á Kýpur. 
 

Ný framtíðarsýn NAAFI

Þegar komið var fram á árið 2012 sat NAAFI uppi með flókið og óhagkvæmt upplýsingatækniumhverfi frá mörgum birgjum. Til dæmis voru níu mismunandi tölvukerfi notuð í rekstrinum:
  • Tvö verslunarkerfi
  • Eitt fjárhagskerfi
  • Eitt kerfi fyrir skönnun og samþykkt reikninga
  • Eitt uppskriftarkerfi
  • Þrjú mismunandi viðskiptagreindarkerfi 
  • Samþættingarlausn

Jafnframt rak NAAFI vélarsal fyrir tölvubúnað sinn í Darlington í Englandi með sýndarumhverfi. Varasalur var staðsettur í Newcastle. Þessu fylgdi mikill kostnaður sem fólst að stórum hluta í leyfisgjöldum og rekstri á tölvubúnaði. 

Upplýsingakerfi NAAFI fyrir breytingu

 

Á árinu 2013 lá fyrir framtíðarsýn NAAFI sem fól í sér breyttar þarfir í upplýsingatækni.  

  • Herstöðvum Breta í Þýskalandi verður lokað árið 2019
  • NAAFI vill úthýsa öllu nema kjarnastarfsemi sinni, 
  • Minnka á vöruframboð í verslunum og fækka á birgjum
  • Einfalda þarf upplýsingatækniumhverfi NAAFI og draga úr kostnaði
Á meðal aðgerða sem NAAFI vildi grípa til var að hætta að nota eldri lausnir eins og til dæmis Infostore lausnina sem var komin á virðulegan aldur, að minnsta kosti hvað hugbúnað varðar. Mikilvægt þótti að upplýsingatækniumhverfi NAAFI gæti skalast til eftir þörfum á hverjum tíma.
 

Umfang upplýsingatækniumhverfis hjá NAAFI 

• 60 verslanir 
• 223 afgreiðslukassar 
• 125 samtímanotendur á Microsoft Dynamics NAV 
• 216 Microsoft Office notendur
• 290 Microsoft Exchange pósthólf 
Við lögðumst í ítarlega þarfagreiningu og settum fram tillögu að framtíðarlausn sem kemur til móts við þarfir NAAFI. Lausnin byggir á Microsoft Dynamics NAV 6.0 viðskiptalausn með LS Retail verslunarkerfi. Jafnframt fól tillaga okkar í sér að Advania tæki að sér hýsingu og rekstur á tölvukerfum NAAFI ásamt því að við myndum veita NAAFI ráðgjöf varðandi bætta viðskiptaferla. Á þetta var fallist, NAAFI ákvað að úthýsa upplýsingatækni til Advania. Vinna við þetta stóra verkfefni hófst í janúar 2013 og koma um 40 sérfræðingar Advania að verkefninu sem nær til hýsingar,  reksturs á netkerfum, almennum hugbúnaðar- og viðskiptalausnum.
 

Nýtt upplýsingatækniumhverfi fyrir NAAFI

Uppsetningarvinna á nýju upplýsingatækniumhverfi NAAFI er langt komin og er síðasti áfangi hennar uppfærsla á netkerfum sem á að klárast í september á þessu ári. Advania hefur þegar lokið uppsetningu á Microsoft Dynamics NAV 6.0 viðskiptalausn fyrir NAAFI sem felur í sér eftirfarandi þætti: 

Fjárhagur
  • Birgðir
  • Innkaup
LSRetail 6.0
  • Miðlari í hverri verslun
  • LSPOS á afgreiðslukössum

LS Retail sérlausnir

  • LS Hospitality fyrir mötuneytin
  • LS Replenishment fyrir áfyllingar á verslanir

 

NAV sérlausnir Advania

  • Skönnun og samþykkt reikninga
  • EDI innkaupapantanir og móttaka reikninga
  • Bankagreiðslur og afstemmingar
  • Handtölvur

 

Ennfremur tekur Advania að sér hýsingu og rekstur á upplýsingaumhverfi NAAFI ásamt því að veita notendum aðgang að þeim hugbúnaði sem þeir nýta í daglegum störfum.
  • Hýsing á öllum miðlægum þjónum og sýndarþjónum
  • Rekstur á netkerfum, miðlægum kerfum og þjónustum
  • Notendur nýta hugbúnað í gegnum Citrix tengingu
  • Tækniþjónusta og kerfisrekstur (1. level og 2. level support)

Tímalína verkefnisins

  • Byrjað í janúar 2013
  • Fjárhagur - maí 2013
  • Verslunarkerfi – október 2013
  • Uppfærsla á verslunum fyrir utan Þýskaland – desember 2013 
  • Uppfæra verslanir í Þýskalandi – febrúar 2014
  • Hýsing og rekstur (tölvupóstur – Microsoft Exchange og Microsoft Office)  – febrúar 2014
  • Uppfærð símalausn – apríl 2014
  • Uppfærð netkerfi – september 2014

Nýtt upplýsingatækniumhverfi NAAFI
 

 

Ávinningur NAAFI

Eftir breytinguna er NAAFI með einfalt og skalanlegt upplýsingatækniumhverfi sem er mun hagkvæmara í rekstri en fyrri uppsetning. Kostnaður NAAFI af rekstrinum ræðst nú af fjölda notenda og þeirra verslana sem fyrirtækið rekur á hverjum tíma. Með öðrum orðum þá er NAAFI nú vel á veg komið með að vera með upplýsingatækniumhverfi sem styður við framtíðarsýn fyrirtækisins. Okkur hjá Advania þykir ánægjulegt að hafa náð þessum árangri með NAAFI. Lykillinn honum var að mínu mati skýr framtíðarsýn NAAFI og vel skilgreindar þarfir. Við gátum mætt þeim með því að nýta okkur breiddina í starfsemi okkar og styrkleika á sviði viðskiptalausna, nettenginga, hýsingar og reksturs. 
 

 

Fleiri fréttir

Fréttir, Power Platform
06.11.2026
Advania hélt í vikunni morgunverðarfund um næstu bylgju Microsoft Power Platform, þar sem fjallað var um hvernig öpp, sjálfvirkni og gervigreindarerindrekar eru að breyta vinnulagi fyrirtækja.
Fréttir
05.11.2026
Í tengslum við Haustráðstefnu Advania í ár héldum við sérstakan HPE Deep Dive viðburð þar sem sjónum var beint að þróun netkerfa, sjálfvirkni og hlutverki gervigreindar í rekstri þeirra.
Fréttir
03.11.2026
Hvernig geta sveitarfélög nýtt gervigreind og sjálfvirkni til að einfalda dagleg verkefni, bæta þjónustu við íbúa og draga úr handavinnu? Það var viðfangsefni morgunverðarfundar Advania um gervigreind og sjálfvirkni fyrir sveitarfélög sem haldinn var 2. nóvember.
Fréttir
30.10.2026
**Starfsmaður opnar viðhengi, slær inn lykilorðið og staðfestir innskráninguna með fjölþátta auðkenningu. Svo heldur hann áfram að vinna í tölvupóstinum eins og ekkert hafi í skorist. Á meðan situr árásaraðili inni í sömu lotu og undirbýr að fá falsaðan reikning greiddan.**
Fréttir
29.10.2026
Ingunn Guðmundsdóttir hefur tekið við starfi mannauðsstjóra Advania. Hún hefur starfað hjá Advania undanfarin þrjú ár við mannauðsmál og stjórnendaráðgjöf.
Fréttir
29.10.2026
Advania er í hópi Framúrskarandi fyrirtækja 2026 samkvæmt greiningu Creditinfo. Listinn var kynntur við hátíðlega athöfn í Hörpu í gær.
Fréttir
28.10.2026
Fyrir ári fór ný vefverslun Nathan í loftið, byggð á DynamicWeb í samstarfi við Advania. Við óskum Nathan innilega til hamingju með eins árs afmæli sameinaðs félags og nýju vefverslunarinnar.
Blogg
27.10.2026
Í morgun opnuðum við hliðin, og það sem beið hinum megin stóðst allar væntingar. Full stofa, ilmandi morgunverður og rafmagnað andrúmsloft. Morgunfundurinn Opnum hliðin með Genesys í Guðrúnartúni heppnaðist einstaklega vel, og við sitjum eftir með bros á vör og fullt af nýjum hugmyndum.
Blogg
26.10.2026
Hvernig geta fyrirtæki farið frá því að prófa gervigreind yfir í að nýta hana til að skapa raunverulegt virði? Á Innovation Day Reykjavík verður sjónum beint að næsta skrefi í þróun gervigreindar, þar sem fólk og gervigreindarerindrekar (e. AI agents) vinna saman.
Fréttir
26.10.2026
Fréttir af gervigreind sem brýst út og hakkar sig inn í kerfi af eigin vilja hljóma eins og vísindaskáldskapur. Á bak við slík tilvik er þó alltaf manneskja sem setti markmiðið. Gervigreindin fann bara leiðina sjálf.
Fréttir, businesscentral.advania.is
22.10.2026
Nýjungar í Business Central, gervigreind og aukin sjálfvirkni voru í brennidepli á morgunverðarfundi Advania sem haldinn var í gær. Þar var meðal annars farið yfir nýjungar í Business Central 29, hvernig Copilot og gervigreindarerindrekar geta einfaldað dagleg störf og nýjungar í viðbótum Advania. Einnig kynnti Pósturinn nýtt app fyrir Business Central.
Fréttir
21.10.2026
Fyrr í dag vakti CERT-IS athygli á tveimur alvarlegum öryggisveikleikum í PHP-forritunarmálinu sem knýr mikinn fjölda vefsíða. Rekstrarteymi Advania brást strax við.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.