Blogg - 4. febrúar 2026

Advania CX Forum – Sameiginleg framtíðarsýn samskiptavera á Norðurlöndum

Sigurgeir Þorbjarnarson
Vörustjóri funda- og samskiptalausna

Advania CX Forum er árleg ráðstefna þar sem viðskiptavinir Advania frá öllum Norðurlöndunum koma saman til að fræðast, miðla reynslu og kynnast öðrum notendum Genesys kerfisins. Í ár var engin undantekning, ráðstefnan var einstaklega vel heppnuð, faglega sterk og skemmtileg í senn. Hún skapaði vettvang þar sem sérfræðingar, stjórnendur og tækniaðilar gátu rætt nýjustu lausnir í þjónustutækni og fengið dýpri innsýn í þróunina sem mótar framtíðina.

Þetta árið vorum við í Stokkhólmi en folk kýs um næstu staðsetningu ár hvert. Hver veit nema Ísland sé næst. Ferðin var ekki aðeins fróðleg heldur einnig frábær blanda af tengslamyndun, hagnýtum kynningum og lifandi umræðum. Slíkar ráðstefnur styrkja íslenska notendur í sinni vegferð og færa okkur nær norrænu Genesys-samfélaginu sem stækkar og þroskast ár frá ári.

Vaxandi Genesys-samfélag á Norðurlöndum

Genesys-samfélagið á Norðurlöndum hefur vaxið hratt síðustu ár. Sífellt fleiri fyrirtæki velja að byggja þjónustu sína á Genesys Cloud og þátttaka á viðburðum eins og Advania CX Forum sýnir svo ekki verður um villst að áhuginn fer vaxandi. Notendur sækjast mikið eftir að læra af öðrum fyrirtækjum, bera saman reynslu og fylgjast með hvaða lausnir og nálganir eru að skila árangri í mismunandi atvinnugreinum

Genesys Cloud – leiðandi og í stöðugri þróun

Genesys Cloud er í dag leiðandi á samskiptavers markaðnum. Enda lausnin framúrskarandi þegar kemur að sveigjanleika, áreiðanleika og möguleikum til að tengja saman allar samskiptaleiðir fyrirtækja á einum stað. Á ráðstefnunni komu vel fram helstu styrkleikar kerfisins:

  • Sveigjanleg samskiptaumsýsla fyrir síma, netspjall, tölvupóst, samfélagsmiðla og sjálfvirkar rásir.
  • Auðveld viðbótartækni og samþættingar, sem gera fyrirtækjum kleift að sérsníða lausnina að sínum ferlum.
  • Sterk þróunaráhersla þar sem uppfærslur eru reglulegar og nýir möguleikar bætast stöðugt við.

Genesys hefur jafnframt verið í fararbroddi þegar kemur að nýtingu gervigreindar. Þar má nefna:

  • Sjálfvirkar greiningar og innsýn, t.d. tón- og tilfinningagreining.
  • AI-knúnar leiðbeiningar fyrir þjónustufulltrúa í rauntíma.
  • Vitræn sjálfsafgreiðsla og spjallmenni sem geta leyst einfaldari mál og stytt biðraðir.

Gervigreindin er fljótt að verða nauðsynleg hluti af þjónustuferlum fyrirtækja og Genesys Cloud er vel í stakk búið til að leiða þá þróun áfram.

Advania CX Forum var einstaklega vel heppnað og sýndi glögglega hversu hratt og kraftmikið Genesys-umhverfið er að þróast á Norðurlöndunum. Þátttakendur fengu tækifæri til að fræðast um nýjustu lausnir, heyra af bestu starfsvenjum og byggja sterkara tengslanet við aðra notendur. Með öflugu samfélagi, sívaxandi möguleikum og hraðri þróun gervigreindar er ljóst að framtíð þjónustutækni er spennandi – og Genesys Cloud stendur þar fremstur í flokki.

Okkur er strax farið að hlakka til næsta árs.

Fleiri fréttir

Fréttir, Power Platform
06.11.2026
Advania hélt í vikunni morgunverðarfund um næstu bylgju Microsoft Power Platform, þar sem fjallað var um hvernig öpp, sjálfvirkni og gervigreindarerindrekar eru að breyta vinnulagi fyrirtækja.
Fréttir
05.11.2026
Í tengslum við Haustráðstefnu Advania í ár héldum við sérstakan HPE Deep Dive viðburð þar sem sjónum var beint að þróun netkerfa, sjálfvirkni og hlutverki gervigreindar í rekstri þeirra.
Fréttir
03.11.2026
Hvernig geta sveitarfélög nýtt gervigreind og sjálfvirkni til að einfalda dagleg verkefni, bæta þjónustu við íbúa og draga úr handavinnu? Það var viðfangsefni morgunverðarfundar Advania um gervigreind og sjálfvirkni fyrir sveitarfélög sem haldinn var 2. nóvember.
Fréttir
30.10.2026
**Starfsmaður opnar viðhengi, slær inn lykilorðið og staðfestir innskráninguna með fjölþátta auðkenningu. Svo heldur hann áfram að vinna í tölvupóstinum eins og ekkert hafi í skorist. Á meðan situr árásaraðili inni í sömu lotu og undirbýr að fá falsaðan reikning greiddan.**
Fréttir
29.10.2026
Ingunn Guðmundsdóttir hefur tekið við starfi mannauðsstjóra Advania. Hún hefur starfað hjá Advania undanfarin þrjú ár við mannauðsmál og stjórnendaráðgjöf.
Fréttir
29.10.2026
Advania er í hópi Framúrskarandi fyrirtækja 2026 samkvæmt greiningu Creditinfo. Listinn var kynntur við hátíðlega athöfn í Hörpu í gær.
Fréttir
28.10.2026
Fyrir ári fór ný vefverslun Nathan í loftið, byggð á DynamicWeb í samstarfi við Advania. Við óskum Nathan innilega til hamingju með eins árs afmæli sameinaðs félags og nýju vefverslunarinnar.
Blogg
27.10.2026
Í morgun opnuðum við hliðin, og það sem beið hinum megin stóðst allar væntingar. Full stofa, ilmandi morgunverður og rafmagnað andrúmsloft. Morgunfundurinn Opnum hliðin með Genesys í Guðrúnartúni heppnaðist einstaklega vel, og við sitjum eftir með bros á vör og fullt af nýjum hugmyndum.
Blogg
26.10.2026
Hvernig geta fyrirtæki farið frá því að prófa gervigreind yfir í að nýta hana til að skapa raunverulegt virði? Á Innovation Day Reykjavík verður sjónum beint að næsta skrefi í þróun gervigreindar, þar sem fólk og gervigreindarerindrekar (e. AI agents) vinna saman.
Fréttir
26.10.2026
Fréttir af gervigreind sem brýst út og hakkar sig inn í kerfi af eigin vilja hljóma eins og vísindaskáldskapur. Á bak við slík tilvik er þó alltaf manneskja sem setti markmiðið. Gervigreindin fann bara leiðina sjálf.
Fréttir, businesscentral.advania.is
22.10.2026
Nýjungar í Business Central, gervigreind og aukin sjálfvirkni voru í brennidepli á morgunverðarfundi Advania sem haldinn var í gær. Þar var meðal annars farið yfir nýjungar í Business Central 29, hvernig Copilot og gervigreindarerindrekar geta einfaldað dagleg störf og nýjungar í viðbótum Advania. Einnig kynnti Pósturinn nýtt app fyrir Business Central.
Fréttir
21.10.2026
Fyrr í dag vakti CERT-IS athygli á tveimur alvarlegum öryggisveikleikum í PHP-forritunarmálinu sem knýr mikinn fjölda vefsíða. Rekstrarteymi Advania brást strax við.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.