Þórður Ingi Guðmundsson og Viðar Pétur Styrkársson stýrðu öðrum veffundi Advania í Öryggisoktóber.

Fréttir - 26. október 2026

Gervigreind í netárásum: hver heldur á vopninu?

Sylvía Rut Sigfúsdóttir
samskiptastjóri Advania

Fréttir af gervigreind sem brýst út og hakkar sig inn í kerfi af eigin vilja hljóma eins og vísindaskáldskapur. Á bak við slík tilvik er þó alltaf manneskja sem setti markmiðið. Gervigreindin fann bara leiðina sjálf.

Í öðrum veffundi Advania í Öryggisoktóber ræddu Þórður Ingi Guðmundsson, forstöðumaður Gervigreindarseturs Advania, og Viðar Pétur Styrkársson, vörustjóri og viðskiptastjóri hjá Gervigreindarsetrinu, um gervigreind í netárásum og netvörnum.

Þar kom meðal annars fram að árásaraðilar geta nú gert á klukkutíma það sem áður tók hóp hakkara margar vikur. Veikleikarnir sem þeir nýta eru þó sjaldnast nýir, heldur sömu gömlu veiðipóstarnir og aðgangsstýringar sem ekki eru í lagi.

Góðu fréttirnar eru að sömu gervigreindarlíkön eru jafn öflugt vopn í höndum þeirra sem verjast. Þórður og Viðar ræða líka hvers vegna fullveldi yfir gögnum og gervigreindarinnviðum skiptir sífellt meira máli, hvað fylgir því að vibe-kóða lausnir sem fara í raunverulega notkun og hvers vegna bann við gervigreind á vinnustaðnum gerir oftast illt verra.

Upptakan frá fundinum er nú aðgengileg á vefnum okkar.

Veffundaröð í Öryggisoktóber

Október er tileinkaður netöryggi víða um Evrópu. Öryggisoktóber, eða Evrópski netöryggismánuðurinn (European Cybersecurity Month), er haldinn ár hvert að frumkvæði Netöryggisstofnunar Evrópusambandsins (ENISA) og framkvæmdastjórnar ESB. Markmiðið er að efla vitund fyrirtækja, stofnana og almennings um netógnir og góðar öryggisvenjur. Í ár bjóðum við upp á veffundaröð í Öryggisoktóber og þetta var annar fundurinn í röðinni. Á næstu fundum verður meðal annars fjallað um öryggi í Microsoft 365, með reynslusögu frá Sjóvá.

Allir fundirnir eru sýndir á vefnum okkar. Næstu fundir fara fram 27. október og 29. október. Fundirnir hefjast slaginu kl. 10:00 og skráning er ókeypis og öllum opin.

Fleiri fréttir

Blogg
02.05.2012
Mikill áhugi er fyrir hugbúnaði fyrir snjallsíma og spjaldtölvur. Nýverið gaf Advania út ókeypis app fyrir Android stýrikerfið sem sýnir m.a. ódýrasta verðið á bensíni.
Blogg
25.04.2012
Microsoft ráðstefnan Convergence 2012 var haldin í Houston Texas dagana 18. til 21. mars 2012.
Blogg
17.04.2012
Tíminn er dýrmæt auðlind sem vert er að fara vel með. Margir kannast hins vegar við að eyða miklum tíma í að leita að skjölum.
Blogg
11.04.2012
Með útgáfu Windows Server 8 verða stórstígar framfarir í rekstri upplýsingatæknikerfa fyrirtækja.
Blogg
03.04.2012
Tölvuglæpir eru nú á dögum oft framdir af alþjóðlegum glæpasamtökum sem ýmist reyna að stela fjármunum eða verðmætum gögnum.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.