Frá viðburði Salesforce og Advania á Hilton.

Blogg - 26. október 2026

Gervigreind sem vinnur með þér – komdu á Innovation Day Reykjavík

Óli Þór Gunnarsson
Vörustjóri

Hvernig geta fyrirtæki farið frá því að prófa gervigreind yfir í að nýta hana til að skapa raunverulegt virði? Á Innovation Day Reykjavík verður sjónum beint að næsta skrefi í þróun gervigreindar, þar sem fólk og gervigreindarerindrekar (e. AI agents) vinna saman.

Miðvikudaginn 25. nóvember stendur Salesforce fyrir Innovation Day Reykjavík, hálfs dags viðburði þar sem leiðtogar í atvinnulífinu og sérfræðingar Salesforce fara yfir nýjungar í gervigreind og sýna hvernig fyrirtæki geta nýtt Agentforce, gögn og sjálfvirkni til að ná mælanlegum árangri. Viðburðurinn fer fram á Hilton Reykjavík Nordica kl. 8:30 – 13:00 og aðgangur er ókeypis.

Gervigreind, gögn og sjálfvirkni í raunverulegum rekstri

Á dagskránni verður meðal annars fjallað um hvernig gervigreind er að breyta sölu, þjónustu, markaðsmálum, fjármálaþjónustu og framleiðslu. Einnig verður farið yfir Agentforce, Slack, Data 360 og hvernig lausnirnar tengjast þróun fyrirtækja í átt að svokölluðu “Agentic Enterprise”.

Dagurinn hefst með morgunverði og aðalfyrirlestri um nýjustu fréttir frá Dreamforce. Í kjölfarið taka við styttri lotur, léttur hádegisverður og tengslamyndun.

Við hjá Advania verðum á staðnum

Advania er leiðandi Salesforce-samstarfsaðili á Íslandi og aðstoðar íslensk fyrirtæki við uppsetningu og innleiðingu Salesforce og við að skapa virði úr gögnum og gervigreind.

Hvort sem þú ert þegar að vinna með Salesforce eða vilt kynna þér hvernig gervigreind og Agentforce geta nýst í þínum rekstri, er Innovation Day Reykjavík góður vettvangur til að sjá lausnirnar í framkvæmd. Ráðgjafar okkar verða á staðnum og ræða gjarnan við þig um næstu skref.

Skoðaðu dagskrána og skráðu þig á Innovation Day Reykjavík.

Fleiri fréttir

Blogg
02.05.2012
Mikill áhugi er fyrir hugbúnaði fyrir snjallsíma og spjaldtölvur. Nýverið gaf Advania út ókeypis app fyrir Android stýrikerfið sem sýnir m.a. ódýrasta verðið á bensíni.
Blogg
25.04.2012
Microsoft ráðstefnan Convergence 2012 var haldin í Houston Texas dagana 18. til 21. mars 2012.
Blogg
17.04.2012
Tíminn er dýrmæt auðlind sem vert er að fara vel með. Margir kannast hins vegar við að eyða miklum tíma í að leita að skjölum.
Blogg
11.04.2012
Með útgáfu Windows Server 8 verða stórstígar framfarir í rekstri upplýsingatæknikerfa fyrirtækja.
Blogg
03.04.2012
Tölvuglæpir eru nú á dögum oft framdir af alþjóðlegum glæpasamtökum sem ýmist reyna að stela fjármunum eða verðmætum gögnum.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.