Jabra Evolve 3 – Ný kynslóð heyrnartóla þar sem gæði og útlit fer saman.
Jabra hefur kynnt til leiks Evolve 3 seríuna. Glænýja kynslóð heyrnartóla sem sameinar hágæða hljóð, smekklega hönnun og háþróaða tækni fyrir bæði vinnu og afþreyingu. Tvær tegundir eru komnar til Advania: Evolve3 85 (yfir eyru) og Evolve3 75 (ofan á eyru), og báðar sporta nýrri nálgun á hönnun og virkni.
Sigurgeir Þorbjarnarson
Vörustjóri funda- og samskiptalausna
Ný hugsun í hönnun
Ein stærsta breytingin í Evolve3 seríunni er boomless hönnunin – enginn sjáanlegur hljóðnemi. Þrátt fyrir það skilar heyrnartólið kristaltæru tali þökk sé Jabra ClearVoice, djúpnámsreknu raddvinnslukerfi sem einangrar röddina frá umhverfishljóðum. Þetta gerir heyrnartólin mun nútímalegri og stílhrein, og þau líta út eins og svölustu og vinsælustu heyrnatólin á markaðnum en viðhalda faglegum gæðum.
Hönnunin er mjög létt, samanbrjótanleg og þægileg – fullkomin fyrir ferðalög, skrifstofuna eða kaffihúsið. Flatir toppar heyrnartólanna gera þau einnig hlaðanleg beint á venjulegum þráðlausum hleðslupúðum, sem eykur þægindin til muna. Hægt er að fá þau með eða án hleðslu en hleðslan getur þá einnig hlaðið símann þinn. Það er einnig nýjung að þau koma í tveim litum, hvít og svört. Ný gerð púða er á tólunum sem eru úr léttu efni og þægileg.
Sjáðu í vefverslun:

Jabra Evolve3 85, MS, Link390a, Black

Helstu kostir Evolve 3 heyrnartólanna
1. Frábær hljóðgæði og ný kynslóð raddvinnslu
- Jabra ClearVoice tryggir skýra rödd í samtölum án þess að þurfa sjáanlegan hljóðnema.
2. Eyðing á umhverfishljóðum (Adaptive ANC)
- Heyrnartólin greina hljóðumhverfið í rauntíma og aðlaga hávaðadeyfingu bæði í samtölum og tónlist – ólíkt mörgum samkeppnisaðilum.
3. Mjög löng rafhlöðuending og skjót hleðsla
- Allt að 120 klukkustundir af tónlist og 25 klukkustundir af samtölum á einni hleðslu.
- 10 mínútna hraðhleðsla skilar allt að 10 klukkustundum notkunar.
4. Hönnuð fyrir bæði vinnu og einkanot „work & life“
- Þau eru hugsuð sem heyrnartól sem duga bæði í fjarfundi og fyrir tónlist á ferðinni.
- Létt, nýtískuleg og með skipan sem höfðar til notenda sem vilja ekki „skrifstofu útlit“.
5. Endingargóð og útskiptanlegir íhlutir
- Hægt er að skipta um bæði rafhlöðu og púða í heyrnatólunum og þannig lengja líftímann og auka sjálfbærni.
Sjáðu í vefverslun:

Jabra Evolve3 75, MS, Link390c, Warm Gray

Teams vottun
Jabra Evolve3 er hannað fyrir fyrirtækjaumhverfi og styður allar helstu samskipta og samvinnulausnir á markaðnum.
Bæði Evolve3 85 og 75 eru vottaðar fyrir Microsoft Teams, með örugga og aðlögunarhæfa Bluetooth tengingu og möguleika á miðlægu stýringu í Jabra Plus hugbúnaðinum.
Þetta tryggir að heyrnartólin virki hnökralaust í fundum eða daglegt símtalaflæði hjá starfsmönnum.