Mynd/Hörður Sveinsson

Fréttir - 21. október 2026

Öryggisviðbragð við PHP veikleikum

Sylvía Rut Sigfúsdóttir
samskiptastjóri Advania

Fyrr í dag vakti CERT-IS athygli á tveimur alvarlegum öryggisveikleikum í PHP-forritunarmálinu sem knýr mikinn fjölda vefsíða. Rekstrarteymi Advania brást strax við.

PHP veikleikarnir sem um ræðir heita CVE-2026-109618 og CVE-2026-109619 og eru metnir mjög alvarlegir. PHP er mikið notað forritunarmál sem keyrir á vefþjónum og er notað á bak við fjölmörg vefkerfi og vefsíður.

Veikleikarnir geta gert óviðkomandi aðila kleift að keyra kóða á vefþjónum án auðkenningar. Þeir geta haft áhrif á vefþjóna sem keyra PHP og eru aðgengilegir frá internetinu, þar á meðal þjónustur sem Advania rekur fyrir viðskiptavini.

Rekstrarteymi Advania hafa frá því snemma í morgun unnið að því að ná utan um þær þjónustur sem gætu orðið fyrir áhrifum. Með öryggi og hagsmuni viðskiptavina að leiðarljósi hefur í einhverjum tilvikum þurft að loka tímabundið fyrir aðgang að viðkomandi þjónustum frá internetinu þar til lagfæring liggur fyrir.

Slík lokun er fyrirbyggjandi öryggisráðstöfun og er ein þeirra tímabundnu aðgerða sem mælt hefur verið með þar til hægt er að koma viðeigandi lagfæringu fyrir. Gefin var út lagfæring um kl. 14:00 í dag og verið að framkvæma viðeigandi uppfærslur áður en þjónustur verða gerðar aðgengilegar aftur.

Viðskiptavinir Advania sem eiga þjónustur sem orðið hafa fyrir áhrifum hefur nú þegar verið tilkynnt um aðgerðir og áhrif.

Fleiri fréttir

Blogg
11.04.2012
Með útgáfu Windows Server 8 verða stórstígar framfarir í rekstri upplýsingatæknikerfa fyrirtækja.
Blogg
03.04.2012
Tölvuglæpir eru nú á dögum oft framdir af alþjóðlegum glæpasamtökum sem ýmist reyna að stela fjármunum eða verðmætum gögnum.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.