Laus við alla handavinnu og gjörbreytt starfsumhverfi í bókhaldinu

Business Central gjörbreytti bókhaldi Jarðborana

Jarðboranir starfa í orkugeiranum og bora eftir heitu vatni til framleiðslu á rafmagni og hita, bæði á Íslandi og erlendis. Fyrirtækið leggur ríka áherslu á fagmennsku, öryggi og nýtingu nútímalegra tæknilausna í allri starfsemi.

Áskorunin

Jarðboranir störfuðu um árabil með gamalt og úrelt bókhaldskerfi sem var ekki lengur í takt við umfang, eðli og kröfur starfseminnar. Fyrirtækið starfar í orkugeiranum bæði hérlendis og erlendis og er með um 200 starfsmenn, þar af um 50 á Filippseyjum, urðu ferlar orðnir flóknir og handavinna mikil.
Við vorum með gamalt og úrelt bókhaldskerfi og vildum nútímavæða allt bókhaldskerfið og birgðakerfið hjá okkur.
Kristín Þorvaldsdóttir, sérfræðingur á fjármálasviði Jarðborana.

Nálgunin

Þörfin var skýr. Þau þurftu lausn sem gæti sameinað bókhald, sölureikninga, birgðastýringu og innkaup í einu samþættu kerfi, án þess að vera of smátt eða of stórt.
Við leituðum lengi. Við skoðuðum bókhaldskerfi sem voru bæði minni og stærri en Business Central. Við vorum ekkert ákveðin í að taka það alveg frá upphafi og sáum það að Business Central var sú stærð af kerfi sem hentaði okkur best og uppfyllti okkar þarfir.

Lausnin

Eftir ítarlega greiningu og samanburð á mismunandi lausnum varð Microsoft Dynamics 365 Business Central niðurstaðan.

Innleiðingin

Innleiðingin fól meðal annars í sér mikilvægar ákvarðanir um gagnaflutning úr gamla kerfinu. Áhersla var lögð á að nýta stafrænar og sjálfvirkar lausnir til fulls og fækka handvirkum ferlum.
Ein stóra ákvörðunin hjá okkur var að taka ákvörðun um hvað við ætluðum að flytja yfir úr gamla kerfinu. Við vorum búin að vera í fjölda ára með gamla kerfið og þetta var orðið stórt og mikið.
Guðrún Hauksdóttir, gjaldkeri hjá Jarðborunum

Árangurinn

Með Business Central hafa Jarðboranir gjörbreytt starfsumhverfi fjármáladeildarinnar.

Allar lausnir eru núna tæknilausnir. Við erum alveg hætt allri þessari handavinnu,“ segir Kristín. Rafrænir reikningar, birgðakerfi, innkaupapantanir og samþykktir í síma hafa gert ferlana mun skilvirkari.

„Rafrænir reikningar og sölureikningar og birgðakerfið og við erum farin að vera með innkaupapantanir og samþykktir í símanum. Þannig að þetta hefur bara gjörbreytt öllu starfsumhverfi í bókhaldinu hjá okkur.

Rafrænir reikningar og sölureikningar og birgðakerfið og við erum farin að vera með innkaupapantanir og samþykktir í símanum. Þannig að þetta hefur bara gjörbreytt öllu starfsumhverfi í bókhaldinu hjá okkur.

Dynamics 365 Business Central

Business Central er viðskiptakerfi sem byggt er á traustum grunni Dynamics Nav. Kerfið er öflug lausn fyrir fjárhag, viðskiptatengsl, mannauð og birgðastýringu - miklu meira en bara bókhaldskerfi.
Tölum saman