Starfsemin hefur vaxið jafnt og þétt frá árinu 1996
Olíudreifing hf. var stofnuð árið 1996 til að annast dreifingu og birgðahald eldsneytis fyrir eigendur sína. Frá fyrsta degi hefur starfsemin vaxið jafnt og þétt og sinnir félagið í dag dreifingu alls fljótandi eldsneytis á Íslandi, að flugvöllum undanskildum.
Í dag starfa um 130 manns hjá fyrirtækinu við fjölbreytt verkefni í þjónustu við eldsneytissala, viðskiptavini og samstarfsaðila. Félagið rekur birgðastöðvar víðs vegar um landið með samtals 350 milljóna lítra geymslurými, auk umfangsmikils flota tankbíla og annarra farartækja. Jafnframt sér fyrirtækið sjálft um viðhald og uppbyggingu tæknibúnaðar með eigin verkstæðum.