Stekkjarvík jók rekstraröryggi og einfaldaði lykilferla með sjálfvirkni

Sinna móttöku og meðhöndlun á umfangsmiklu magni úrgangs á hverju ári

Stekkjarvík er urðunarstaður sorps á Norðurlandi og er rekinn af Norðurá bs. Starfsemin felur í sér móttöku og meðhöndlun á umfangsmiklu magni úrgangs á hverju ári og byggir á skilvirkum daglegum ferlum þar sem áreiðanleiki og gott upplýsingaflæði skipta miklu máli.

Áskorunin

Daglegir afgreiðsluferlar Stekkjarvíkur byggðu um árabil á Excel-skjali sem hafði þróast í mikilvægan þátt í rekstrinum. Með tímanum varð lausnin hins vegar sífellt viðkvæmari og skapaði bæði rekstraráhættu og takmarkaða yfirsýn.

Óstöðugar tengingar við gagnagrunna gátu valdið villum og stöðvað vinnu. Kerfið var bundið við eina tölvu og leiðréttingar á gögnum voru bæði tímafrekar og flóknar. Einnig fóru reikningar í gegnum handvirka vinnslu þar sem gögn voru slegin inn í Business Central og prentuð út áður en þau fóru til viðskiptavina.

Samhliða þessu fór töluverður tími í skýrslugerð og gagnaskil til ytri hagaðila.

Nálgunin

Markmiðið var að byggja upp örugga og skalanlega lausn sem myndi fjarlægja handvirka vinnu og styrkja rekstrargrunninn til framtíðar.

Áhersla var lögð á að sjálfvirknivæða lykilferli, tryggja örugga meðhöndlun gagna og skapa lausn sem gæti þróast áfram með starfseminni.

Lausnin

Innleidd var heildstæð lausn byggð á Microsoft Power Platform þar sem afgreiðsluferlar voru færðir yfir í Power Apps umhverfi. Starfsfólk getur nú unnið með kerfið á mörgum tækjum samtímis og allar upplýsingar eru vistaðar í Microsoft Dataverse í öruggu skýjaumhverfi.

Jafnframt var reikningagerð sjálfvirknivædd þannig að gögn fara beint yfir í Business Central og reikningar berast viðskiptavinum rafrænt. Skýrslugerð og gagnaskil til ytri aðila eru einnig sjálfvirk, sem hefur dregið verulega úr handvirkri vinnslu.

Við fórum úr brothættu Excel-skjali yfir í öruggt, sjálfvirkt og stöðugt kerfi sem sparar okkur bæði tíma og fyrirhöfn

Elvar Bjarki Gíslason, verkstjóri

Niðurstöður og árangur

Ávinningurinn kom fljótt í ljós eftir innleiðingu nýju lausnarinnar. Reikningagerð er nú sjálfvirk og viðskiptavinir fá reikninga rafrænt, sem hefur einfaldað ferlið og dregið úr þörf fyrir útprentanir og handvirka vinnu.

Skýrslugerð og gagnaskil hafa einnig orðið mun skilvirkari þar sem upplýsingar eru nú aðgengilegar án frekari úrvinnslu. Gögn berast sjálfkrafa til ytri hagaðila sem eykur áreiðanleika og dregur úr líkum á mistökum.

Jafnframt hefur ný lausn styrkt rekstraröryggi fyrirtækisins verulega. Vandamál tengd óstöðugleika gagna og takmörkunum eldri lausnar eru úr sögunni og Stekkjarvík hefur nú traustan grunn sem styður betur við áframhaldandi þróun.

Reynsla Stekkjarvíkur sýnir hvernig einföld sjálfvirknivæðing lykilferla getur haft áhrif langt út fyrir sjálfa tæknina. Með því að draga úr handvirkri vinnu og styrkja upplýsingaflæði hefur fyrirtækið byggt upp öruggari og skilvirkari rekstur.

Eru lykilferlar í þínum rekstri enn háðir Excel-skjölum eða handvirkri vinnslu?

Hafðu samband og skoðum hvernig hægt er að skapa einfaldari og öruggari ferla með sjálfvirkni.

Kynntu þér Power Platform