Ráð til gesta Haustráðstefnu Advania

Nú er um að gera að setja sig í stellingar því Haustráðstefnan er handan við hornið. Við erum að tengja síðustu kaplana og spennan magnast.
Við höfum tekið saman nokkur atriði sem vert er að hafa í huga fyrir rafræna ráðstefnu eins og þessa:
- Kynntu þér dagskrána fyrirfram og vertu búin/n að ákveða eða taka frá tíma fyrir þá fyrirlestra sem þú vilt fylgjast með í beinni.
- Til þess að taka þátt í Haustráðstefnunni í ár þarft þú að skrá þig inn á vef ráðstefnunnar með því netfangi sem þú notaðir við skráningu.
- Mættu tímanlega og komdu þér vel fyrir. Við mælum með því að þú skráir þig inn 10-15 mínútum áður en fyrsti fyrirlestur hefst og kynnir þér stafrænan heim ráðstefnunnar.
- Við mælum með því að þú notir heyrnartól. Þá verður upplifunin eins og best verður á kosið.
- Þú getur horft á fyrirlestrana í beinni útsendingu í gegnum hvaða tæki sem er, í fartölvu, síma eða spjaldtölvu. Besta upplifunin á ráðstefnuvefnum fæst hins vegar í tölvu.
- Það skiptir ekki máli hvaða vafri er valinn, allar nýjustu útgáfur af Chrome, Firefox. Safari, Microsoft Edge virka vel. Við mælum samt sem áður með að nota Chrome.
- Ef þú ert með veika tengingu á þráðlausu neti þá mælum við með að þú tengir þig með netsnúru.
- Tilvalið að samstarfsfélagar komi saman og horfi á ráðstefnuna. Munum þó að virða fjarlægðarmörk og tryggja sóttvarnir ;)
- Þú getur sent inn athugasemdir og spurningar meðan á fyrirlestrum stendur í gegnum spurningakerfið Slideo. Það verður sýnilegt hægra megin við útsendingagluggann.
- Ef þú lendir í vandræðum við að skrá þig inn eða að spila einstaka fyrirlestra, ekki hika við að hafa samband í radstefna@advania.is. Okkar fólk verður á vaktinni og svarar fyrirspurnum eins fljótt og auðið er.
- Ef þú missir af fyrirlestri í beinni, ekki örvænta! Upptökur verða aðgengilegar eftir á.
Ráðstefnan er lifandi vettvangur til að sækja innblástur og heyra áhugaverðar reynslusögur. Sérstök áhersla verður lögð á hvernig upplýsingatæknin nýtist á tímum heimsfaraldurs og hvernig við tæklum þetta með tækninni.
Á ráðstefnuvefnum verður hægt að horfa á fyrirlestra í beinni útsendingu, skoða sýningarsvæði, kynna sér viðburði haustsins og fylgjast með hliðardagskrá.