Blogg - DD.05.YYYY

Fjármálahreysti: Tölvuleikur sem styður við fjármálalæsi

Í apríl gaf Landsbankinn út nýjan tölvuleik, Fjármálahreysti, sem er ætlað að efla fjármálalæsi ungmenna.

Í apríl gaf Landsbankinn út nýjan tölvuleik, Fjármálahreysti, sem smíðaður var frá grunni af Vefdeild Landsbankans með liðsinni sérfræðinga frá Advania. Leikurinn var þróaður í samstarfi við Ómar Örn Magnússon, aðstoðarskólastjóra Hagaskóla og er leiknum ætlað að efla fjármálalæsi ungmenna. Allir geta tekið þátt í leiknum en nemendur í efstu bekkjum grunnskóla keppa sérstaklega sín á milli. Sú keppni hófst 8. apríl og lýkur á sunnudaginn, 11. maí. 
  
 

Sérstaklega hannaður fyrir snjalltæki

Leikurinn er sérstaklega ætlaður til spilunar í snjalltækjum. Um er að ræða vefsvæði sem skrifað er í AngularJS, .NET og C#. Vefurinn nýtir sér REST-vefþjónustu ofan á Oracle-gagnagrunni. Vefurinn var hannaður í Adobe Illustrator þar sem vigrum (e. vectors) var beitt til hins ítrasta.
 

Frábær þátttaka

Keppnin hefur farið vel af stað og nú hafa um 2.500 þátttakendur hafið leik. Keppendur fá ekki bara stig fyrir að standa sig vel, heldur geta þeir einnig unnið orður fyrir framgang sinn og frammistöðu í leiknum. Þeir geta síðan deilt orðunum á Facebook.
 

Farsælt samstarf um fjármálafræðslu

Landsbankinn og Ómar Örn hafa í rúman áratug unnið saman að fjármálafræðslu í efstu bekkjum grunnskóla, lengst af undir merkjum Raunveruleiksins sem var stór keppni á milli nemenda í grunnskóla. Í Raunveruleiknum þurftu nemendur að glíma við verkefni sem flestir þurfa að leysa á lífsleiðinni: stilla útgjöld af miðað við tekjur, sækja um lán, safna fyrir íbúð og svo framvegis. Raunveruleikurinn hlaut á sínum tíma verðlaun Norrænu ráðherranefndarinnar sem besta námsefnið í fjármála- og neytendafræðslu. 

Fjármálahreysti tekur við hlutverki Raunveruleiksins. Við hönnun leiksins var lögð áhersla á að hann yrði í senn fróðlegur, spennandi og skemmtilegur. Og hann er líka gagnlegur því rannsóknir sýna að þeir sem notið hafa kennslu í fjármálum eru líklegri til að spara og skipuleggja fjármál sín betur en aðrir.

Fjölbreyttur og skemmtilegur leikur

Við gerð leiksins var miðað við ramma OECD í fjármálafræðslu fyrir 15 ára gömul ungmenni sem er sami rammi og notaður er í PISA-rannsóknunum. Þessi rammi byggist á þekkingu, færni og viðhorfum. Miðað er við að 15 ára unglingar eigi að kunna skil á fjármálum einstaklinga, fjármálum heimilis og samfélags ásamt fjármálum náms- og atvinnuumhverfis. Þátttakendur í leiknum þurfa að þekkja ýmis hugtök, reikna og skilja myndrit. Þeir þurfa líka að mynda sér skoðun á því hvað er skynsamlegast að gera við mismunandi aðstæður. 


Leikurinn gengur út á að leysa 64 verkefni í sem fæstum tilraunum. Verkefnin eru á fjórum efnissviðum og í jafnmörgum þyngdarstigum. Efnissviðin fjögur eru: ég, heimilið, nám og atvinna og samfélagið. Spurningum er raðað í sextán verkefni sem hvert inniheldur fjögur skref. Byrjað er á efnissviðinu "ég" sem er auðveldast, síðan er tekist á við "heimilið" sem er aðeins erfiðara (eins og flestir vita) og svo koll af kolli þar til erfiðasta þyngdarstiginu er náð, þ.e. "samfélaginu". 

Til mikils að vinna

Til mikil er að vinna fyrir þátttakendur í Fjármálahreysti. Í fyrstu verðlaun er iPhone 5s en annað og þriðja sæti hljóta iPad mini. Einnig eru veittar viðurkenningar til skóla sem eiga hlutfallslega flesta þátttakendur. 

 

Fleiri fréttir

Fréttir, Power Platform
06.11.2026
Advania hélt í vikunni morgunverðarfund um næstu bylgju Microsoft Power Platform, þar sem fjallað var um hvernig öpp, sjálfvirkni og gervigreindarerindrekar eru að breyta vinnulagi fyrirtækja.
Fréttir
05.11.2026
Í tengslum við Haustráðstefnu Advania í ár héldum við sérstakan HPE Deep Dive viðburð þar sem sjónum var beint að þróun netkerfa, sjálfvirkni og hlutverki gervigreindar í rekstri þeirra.
Fréttir
03.11.2026
Hvernig geta sveitarfélög nýtt gervigreind og sjálfvirkni til að einfalda dagleg verkefni, bæta þjónustu við íbúa og draga úr handavinnu? Það var viðfangsefni morgunverðarfundar Advania um gervigreind og sjálfvirkni fyrir sveitarfélög sem haldinn var 2. nóvember.
Fréttir
30.10.2026
**Starfsmaður opnar viðhengi, slær inn lykilorðið og staðfestir innskráninguna með fjölþátta auðkenningu. Svo heldur hann áfram að vinna í tölvupóstinum eins og ekkert hafi í skorist. Á meðan situr árásaraðili inni í sömu lotu og undirbýr að fá falsaðan reikning greiddan.**
Fréttir
29.10.2026
Ingunn Guðmundsdóttir hefur tekið við starfi mannauðsstjóra Advania. Hún hefur starfað hjá Advania undanfarin þrjú ár við mannauðsmál og stjórnendaráðgjöf.
Fréttir
29.10.2026
Advania er í hópi Framúrskarandi fyrirtækja 2026 samkvæmt greiningu Creditinfo. Listinn var kynntur við hátíðlega athöfn í Hörpu í gær.
Fréttir
28.10.2026
Fyrir ári fór ný vefverslun Nathan í loftið, byggð á DynamicWeb í samstarfi við Advania. Við óskum Nathan innilega til hamingju með eins árs afmæli sameinaðs félags og nýju vefverslunarinnar.
Blogg
27.10.2026
Í morgun opnuðum við hliðin, og það sem beið hinum megin stóðst allar væntingar. Full stofa, ilmandi morgunverður og rafmagnað andrúmsloft. Morgunfundurinn Opnum hliðin með Genesys í Guðrúnartúni heppnaðist einstaklega vel, og við sitjum eftir með bros á vör og fullt af nýjum hugmyndum.
Blogg
26.10.2026
Hvernig geta fyrirtæki farið frá því að prófa gervigreind yfir í að nýta hana til að skapa raunverulegt virði? Á Innovation Day Reykjavík verður sjónum beint að næsta skrefi í þróun gervigreindar, þar sem fólk og gervigreindarerindrekar (e. AI agents) vinna saman.
Fréttir
26.10.2026
Fréttir af gervigreind sem brýst út og hakkar sig inn í kerfi af eigin vilja hljóma eins og vísindaskáldskapur. Á bak við slík tilvik er þó alltaf manneskja sem setti markmiðið. Gervigreindin fann bara leiðina sjálf.
Fréttir, businesscentral.advania.is
22.10.2026
Nýjungar í Business Central, gervigreind og aukin sjálfvirkni voru í brennidepli á morgunverðarfundi Advania sem haldinn var í gær. Þar var meðal annars farið yfir nýjungar í Business Central 29, hvernig Copilot og gervigreindarerindrekar geta einfaldað dagleg störf og nýjungar í viðbótum Advania. Einnig kynnti Pósturinn nýtt app fyrir Business Central.
Fréttir
21.10.2026
Fyrr í dag vakti CERT-IS athygli á tveimur alvarlegum öryggisveikleikum í PHP-forritunarmálinu sem knýr mikinn fjölda vefsíða. Rekstrarteymi Advania brást strax við.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.