Nýjasta nýtt - 4. desember 2018

Með eina æðstu gráðu frá Cisco

Einn af netkerfasérfræðingum Advania, Steinn Örvar Bjarnarson, lauk nýlega stífu námi og hlaut eina æðstu gráðu sem hægt er að fá frá Cisco. Sérþekking Steins Örvars nýtist sérstaklega í bilanagreiningu, ráðgjöf og gæðamati á netkerfum.

Einn af netkerfasérfræðingum Advania, Steinn Örvar Bjarnarson, lauk nýlega stífu námi og hlaut eina æðstu gráðu sem hægt er að fá frá Cisco. Sérþekking Steins Örvars nýtist sérstaklega í bilanagreiningu, ráðgjöf og gæðamati á netkerfum.

Við hjá Advania fögnum því að Steinn Örvar hafi öðlast CCIE R&S-gráðu en hún stendur fyrir Cisco Certified Internetworking Expert Routing and Switching. Þekking Steins nýtist vel í netdeild Advania sem rekur og hýsir netkerfi fjölmargra fyrirtækja og stofananna.

Cisco er leiðandi í netbúnaði og netöryggislausnum í heiminum og býður uppá ýmiskonar nám fyrir sérfræðinga á þessu sviði. Steinn Örvar er aðeins 27 ára gamall og sá yngsti á landinu til að öðlast CCIE R&S vottunina. Hann er annar starfsmaður Advania með slíka vottun. Nú er hann kominn í hópi 10-15 sérfræðinga á landinu sem öðlast hafa þessa vottun.

Rekstur netkerfa er að verða mörgum fyrirtækjum ofviða. Sífellt stærri hluti starfsemi þeirra er að færast upp í skýið og samhliða því aukast kröfur um stöðugan uppitíma og öryggi netkerfa. Þar af leiðandi hefur gríðarlegur vöxtur orðið í þeim hluta þjónustu Advania sem snýr að rekstri, hýsingu, vöktun og ráðgjöf á netkerfum fyrirtækja

Netdeild Advania hefur fjórfaldast á tveimur árum og skipar nú um 20 tæknimenn og sérfræðinga sem annast sólarhringsvöktun á kerfum fjölmargra fyrirtækja. „Oftast eru það öryggismálin sem verða fyrirtækjum svolítið ofviða. Við erum í síþróandi tækniumhverfi þar sem hætturnar sem steðjuðu að okkur fyrir tveimur árum eru alls ekki þær sömu og í dag. Öryggisráðstafanir úreldast hratt og því getur það verið fyrirtækjum nauðsynlegt að hafa öflugan hóp sérfræðinga til að tryggja uppitíma og öryggi sinna kerfa,“ segir Steinn Örvar.


Fleiri fréttir

Blogg
20.01.2016
Nýtt myndband um álagsárásir, afleiðingar þeirra og hvernig fyrirtæki og stofnanir geta varið tölvukerfi sín fyrir þeim
Blogg
15.01.2016
Ölgjörvi er vel humlað fölöl, þróað af tveimur meðlimum bjórklúbbs Advania, og bruggað af Gæðingi í Skagafirði.
Blogg
30.12.2015
Árið 2015 var sannarlega viðburðarríkt fyrir bæði okkur hér hjá Advania og hjá viðskiptavinum okkar.
Blogg
16.12.2015
Convergence ráðstefna Microsoft var að þessu sinni haldin í Barcelona um síðustu mánaðamót.
Blogg
09.12.2015
Nokkur hollráð um hvernig bæta má þjónustu fyrirtækja.
Blogg
02.12.2015
Haustið 2013 var ákveðið að SAk skyldi sækja um alþjóðlega vottun.
Blogg
18.11.2015
LiSA vefumsjónarkerfið hefur verið í stöðugri þróun frá árinu 1997 og er núverandi kerfi í sjöttu útgáfu.
Blogg
11.11.2015
Atvinnulífið hefur nú fengið í hendurnar álíka öflugan miðil og Facebook til að halda utan um samskipti, vinskap og verkefni á vinnustöðum.
Blogg
03.11.2015
Team Spark tekur þátt í hinni alþjóðlegu Formula Student mótaröð.
Blogg
28.10.2015
Með nýrri útgáfu af Microsoft Dynamics NAV renna upp nýir tímar fyrir þá fjölmörgu aðila sem nýta sér þetta öfluga viðskiptakerfi
Blogg
21.10.2015
Á dögunum tilkynntu forstjórarar Dell Inc. og EMC Inc.um samruna þessara tveggja fyrirtækja.
Blogg
14.10.2015
Dómur Evrópudómstólsins um ákvörðun um „öruggar hafnir“ útskýrður.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.