Advania hlýtur verðlaunin Samstarfsaðili 2026 ársins á Íslandi. Mynd/Microsoft

Fréttir - 11. nóvember 2026

Advania er Microsoft samstarfsaðili ársins á Íslandi annað árið í röð

Sylvía Rut Sigfúsdóttir
samskiptastjóri Advania

Í kvöld var tilkynnt að Microsoft hefur valið Advania sem samstarfsaðila ársins 2026 á Íslandi (e. Regional Partner of the Year).

Þessi viðurkenning undirstrikar einstaka þekkingu og færni Microsoft sérfræðinga Advania. Þetta er annað árið í röð sem Advania á Íslandi hlýtur þessa viðurkenningu.

Fyrirtækið er með þessu heiðrað ásamt fremstu samstarfsaðilum Microsoft á heimsvísu fyrir framúrskarandi nýsköpun og innleiðingu á lausnum fyrir viðskiptavini, byggðum á Microsoft tækni.

„Ég er gríðarlega stoltur af þessum frábæra árangri og öllu því öfluga starfsfólki Advania sem gerði þessa viðurkenningu að veruleika. Að vera valin Microsoft Partner of the Year á Íslandi er mikil viðurkenning á þeirri sérþekkingu, metnaði og liðsheild sem býr í teyminu okkar. Þetta sýnir hvað við getum áorkað með þétti samstarfi með viðskiptavinum okkar og Microsoft og hvetur okkur til að halda áfram að byggja ofan á þann góða grunn sem við höfum skapað, segir Sæmundur Valdimarsson, forstöðumaður hjá Rekstrarlausnum Advania,“ en hann tekur formlega við viðurkenningunni á Microsoft Ignite 2026 í San Francisco í næstu viku.

Microsoft Partner of the Year verðlaunin eru veitt til þeirra samstarfsaðila sem þóttu framúrskarandi á árinu en valið er úr þúsundum tilnefninga frá yfir hundrað löndum.

Nánar má lesa um viðurkenninguna á vef Microsoft.

Fleiri fréttir

Blogg
07.11.2012
Dagsdaglega hugsa fáir um varnaðarorð um notkun snjallsíma. En hver er hin raunverulega áhætta við notkun snjallsíma?
Blogg
26.10.2012
Í dag föstudaginn 26. október hefur Microsoft formlega markaðssetningu á Windows 8. Nýtt stýrikerfi Windows RT er komið út og einnig nýjar vélar sem hlotið hafa nafnið Microsoft Surface.
Blogg
17.10.2012
Íslensk fyrirtæki hafa í auknum mæli innleitt Agile og Scrum aðferðarfræði sem orðið hefur til þess að tíminn frá hugmynd að veruleika styttist verulega. En um hvað snýst þessi aðferðarfræði?
Blogg
10.10.2012
Símalausn Advania er skýþjónusta þar sem notendur fá þjónustuna með öruggum hætti í gegnum Internetið.
Blogg
04.10.2012
Fjárhags- og mannauðskerfi ríkisins byggir á Oracle E-Business Suite frá Oracle Corporation, sem er stærsta hugbúnaðarfyrirtæki veraldar þegar kemur að lausnum fyrir stórar og flóknar rekstrareiningar með dreifðan rekstur og miklar kröfur til upplýsingatækni.
Blogg
19.09.2012
PowerPivot er ókeypis greiningartól sem notað er sem viðbót við Excel. Tólið uppfyllir vel auknar kröfur um betri upplýsingagjöf og sjálfbærni þeirra sem þurfa að finna og miðla upplýsingum á sínum vinnustað.
Blogg
12.09.2012
Advania hélt sína árlegu Haustráðstefnu 7. september 2012 þar sem rúmlega 800 manns komu saman til að kynna sér nýjustu strauma og stefnur í upplýsingatækni.
Blogg
05.09.2012
Inna er skólastjórnunarkerfi. Nýjasta viðbótin við Innu er vefviðmót sem hentar notendum snjallsíma og spjaldtölva.
Blogg
30.08.2012
Með innleiðingu á prentrekstri Advania á að vera hægt að ná allt að 30% lækkun á heildarkostnaði við prentun.
Blogg
22.08.2012
Vanræksla á öryggi nettenginga getur komið fyrirtækjum í mikinn vanda. Í mörgum tilfellum hefur truflun á netsambandi aðeins takmörkuð áhrif en stundum veldur netsambandsleysi því að starfsemi stöðvast eða það hægist verulega á henni. Truflun eða rof á netsambandi getur þýtt töpuð viðskipti og glataðar tekjur. Hvað er til ráða?
Blogg
15.08.2012
Haustráðstefna Advania verður haldin föstudaginn 7. september á Hilton-hótelinu í Reykjavík. Í ár verða um 40 fyrirlestrar í boði á ráðstefnunni á 4 mismunandi þemalínum sparnaðar, hagnýtingar, fróðleiks og virkni. Liðlega helmingur fyrirlesara er erlendir sérfræðingar. Hátt í eitt þúsund gestir eru væntanlegir.
Blogg
04.07.2012
Það getur verið mikil fjárfesting í viðskiptahugbúnaði sem ætlaður er stærri fyrirtækjum frá hugbúnaðarrisum eins og til dæmis Microsoft, SAP og Oracle. Slíkur hugbúnaður er gjarnan kallaður „Enterprise“ hugbúnaður sem þýðir að hann er ætlaður fyrir stórar skipulagseiningar.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.