Blogg - 19. desember 2024

Aukinn stuðningur við verðandi og nýbakaða foreldra hjá Advania

Sigrún Ósk Jakobsdóttir
mannauðsstjóri Advania á Íslandi

Advania hefur ákveðið að innleiða nýjar breytingar til að styðja verðandi og nýbakaða foreldra á þessu merkilega, frábæra en krefjandi tímabili í kringum barnseignir.  Með þessum breytingum vill fyrirtækið tryggja að starfsfólk fái þann stuðning sem það þarf til að takast á við ný hlutverk og ábyrgðir sem fylgja foreldrahlutverkinu.

Þessar breytingar sem taka gildi 1. janúar næstkomandi munu auðvelda foreldrum að samræma vinnu og fjölskyldulíf, sem stuðlar að betri líðan og jafnvægi í daglegu lífi, sem og auðvelda endurkomu aftur til vinnu að orlofi loknu.

Launað leyfi á lok meðgöngu
Öllum einstaklingum sem ganga með barn eða börn býðst að fara í launað leyfi mánuði fyrir áætlaðan fæðingardag. Fjarvera á þessu tímabili hefur ekki áhrif á veikindarétt starfsfólks. Þetta leyfi er óháð fjarveru á meðgöngu fram að því.

Ávinnsla orlofs
Starfsfólk í fæðingarorlofi ávinnur sér nú orlofsréttindi meðan á fæðingarorlofi stendur. Réttindin safnast hlutfallslega í takt við töku fæðingarorlofs.

Hlutastarf eftir fæðingarorlof
Við komu aftur til starfa að fæðingarorlofi loknu býðst starfsfólki að vera í 80% starfi á 100% launum í allt að þrjá mánuði. Þessu má dreifa innan 12 mánaða tímabils frá lok fæðingarorlofs.

Við vitum að það getur verið erfitt fyrir nýbakaða foreldra að snúa aftur til vinnu. Það þarf að aðlaga barnið í nýrri rútínu, hvort sem hitt foreldrið er að taka við eða barnið að fara í dagvistun. Við foreldrarnir þurfum ekki síður aðlögun, enda er oft erfitt að stíga aftur inn í starfið sitt eftir langa fjarveru.

Með þessu viljum við styðja fólk í gegnum þessar breytingar og auðvelda endurkomu að orlofi loknu.

Fleiri fréttir

Blogg
24.04.2026
Því hefur verið spáð í nokkur ár að það sé einungis tímaspursmál hvenær nútíma gervigreindarmódel nái því þroskastigi að geta framkvæmt heildstæðar netárásir og nýtt sér alla árásárkeðjuna svokölluðu sem netglæpamenn hafa haft að leiðarljósi í áratugi.
Blogg
22.04.2026
Á dögunum naut Advania þeirrar ánægju að fá í heimsókn Jabra snillingana Johnny Sønderby Poulsen og Rune Nørholm Møller‑Madsen. Heimsóknin var liður í nánu samstarfi Jabra og Advania og hafði það að markmiði að kynna nýjustu vörur og lausnir Jabra fyrir íslenskum neytendum. Skoðuðum við þá sérstaklega heyrnartól og fjarfundarlausnir.
Blogg
20.04.2026
Sjálfbærni snýst ekki bara um markmið heldur líka um aðgerðir, gagnsæi og upplýstar ákvarðanir. Þess vegna erum við hjá Advania á Íslandi afar stolt af því að kolefnisspor er nú sýnt á flestum vörum í vefverslun okkar.
Blogg
20.04.2026
Artome er hreyfanleg „allt í einni“ lausn fyrir fundi, kennslu og kynningar. Lausnin sameinar stóran skjá, hljóðkerfi og búnað fyrir myndfundi í einni stílhreinni og vel útfærðri einingu á hjólum.
Fréttir
16.04.2026
Advania hlaut titilinn Rísandi stjarna á Norðurlöndunum (e. Rising Star in the Nordics) á NVIDIA Partner Awards EMEA 2026.
Blogg
30.03.2026
Undanfarnar vikur og mánuði höfum við hjá Advania orðið vör við mikinn fjölda svikapósta sem auknar póstvarnir okkar hafa verið að grípa. Um er að ræða svokallaðar  „Adversary in The Middle“ – eða AiTM árásir sem lýsa sér þannig að fórnarlömb eru blekkt og vísað inn á falskar síður sem eru sérstaklega hannaðar til að stela aðgangsupplýsingum.
Blogg
24.03.2026
Undanfarin vikur hafa orðið sýnilegar breytingar í aðfangakeðju tæknibúnaðar. Þetta hefur áhrif á allan heimsmarkaðinn fyrir tölvu- og upplýsingatæknibúnað. Helsta vandamálið er skortur á mikilvægum íhlutum, sérstaklega vinnsluminni eins og DRAM og NAND.
Blogg
23.03.2026
Það er ótrúlegt hvað hugbúnaður hefur mikil áhrif á okkar daglega líf. Á um það bil hálfri öld höfum við byggt samfélög sem reiða sig að öllu leyti á hin ýmsu kerfi.
Fréttir, Power Platform
12.03.2026
Árlegur Viðskiptakerfadagur Advania 2026 fór fram á Hilton í gær. Um 400 gestir mættu þar og sóttu sér þekkingu um fjölbreyttar viðskiptalausnir, nýjungar og tækifæri í stafrænni vegferð fyrirtækja.
Fréttir
11.03.2026
 „Við vildum lausn eða kerfi sem myndi þróast með okkur inn í framtíðina,“ segir Anna Guðný Andersen ferlasérfræðingur hjá Orkuveitunni um af hverju þau völdu Dynamics F&O.
Fréttir
10.03.2026
Lager, verkstæði og vöruafhending færðu sig um set og opnuðu á nýjum stað í Skútuvogi 12 mánudaginn 30. mars.
Blogg
09.03.2026
Gervigreind er orðin hluti af stefnu flestra fyrirtækja. Hún á að auka skilvirkni, bæta þjónustu og styðja betri ákvarðanatöku. En ein lykilspurning gleymist oft. Á hvaða gögnum á gervigreindin að byggja? Svarið liggur í CRM.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.