Blogg - 19. desember 2024

Aukinn stuðningur við verðandi og nýbakaða foreldra hjá Advania

Sigrún Ósk Jakobsdóttir
mannauðsstjóri Advania á Íslandi

Advania hefur ákveðið að innleiða nýjar breytingar til að styðja verðandi og nýbakaða foreldra á þessu merkilega, frábæra en krefjandi tímabili í kringum barnseignir.  Með þessum breytingum vill fyrirtækið tryggja að starfsfólk fái þann stuðning sem það þarf til að takast á við ný hlutverk og ábyrgðir sem fylgja foreldrahlutverkinu.

Þessar breytingar sem taka gildi 1. janúar næstkomandi munu auðvelda foreldrum að samræma vinnu og fjölskyldulíf, sem stuðlar að betri líðan og jafnvægi í daglegu lífi, sem og auðvelda endurkomu aftur til vinnu að orlofi loknu.

Launað leyfi á lok meðgöngu
Öllum einstaklingum sem ganga með barn eða börn býðst að fara í launað leyfi mánuði fyrir áætlaðan fæðingardag. Fjarvera á þessu tímabili hefur ekki áhrif á veikindarétt starfsfólks. Þetta leyfi er óháð fjarveru á meðgöngu fram að því.

Ávinnsla orlofs
Starfsfólk í fæðingarorlofi ávinnur sér nú orlofsréttindi meðan á fæðingarorlofi stendur. Réttindin safnast hlutfallslega í takt við töku fæðingarorlofs.

Hlutastarf eftir fæðingarorlof
Við komu aftur til starfa að fæðingarorlofi loknu býðst starfsfólki að vera í 80% starfi á 100% launum í allt að þrjá mánuði. Þessu má dreifa innan 12 mánaða tímabils frá lok fæðingarorlofs.

Við vitum að það getur verið erfitt fyrir nýbakaða foreldra að snúa aftur til vinnu. Það þarf að aðlaga barnið í nýrri rútínu, hvort sem hitt foreldrið er að taka við eða barnið að fara í dagvistun. Við foreldrarnir þurfum ekki síður aðlögun, enda er oft erfitt að stíga aftur inn í starfið sitt eftir langa fjarveru.

Með þessu viljum við styðja fólk í gegnum þessar breytingar og auðvelda endurkomu að orlofi loknu.

Fleiri fréttir

Blogg
23.01.2013
"Eitthvað ferskt!" Með þau orð var lagt af stað í að skapa nýtt andlit Advania; verslun, móttöku, fundarstað, kaffihús, sýningarsvæði - allt í einu rými.
Blogg
16.01.2013
Hjá Advania hafa verið þróuð tvö tímaskráningarkerfi, Bakvörður og Vinnustund.
Blogg
09.01.2013
Ávinningur af árangursríkri innleiðingu á viðskiptagreind getur skilað fyrirtækjum og stofnunum margháttuðum ávinningi.
Blogg
12.12.2012
Gæði gagna eru mörgum hugleikin en misjafnt getur verið hversu vel gengur að sigrast á lélegum gæðum gagna.
Blogg
05.12.2012
Megináherslan á ráðstefnunni var á nýja útgáfu, SharePoint 2013, en hún leysir af hólmi eldri útgáfu sem sett var á markað árið 2010.
Blogg
29.11.2012
Advania hefur opnað aðgang að Mínum síðum fyrir þau fyrirtæki sem eru í viðskiptum við fyrirtækið.
Blogg
22.11.2012
Skýrsla Ríkisendurskoðunar um Oracle kerfið fyrir íslenska ríkið liggur nú fyrir.
Blogg
21.11.2012
Oft er talað um að hjarta fyrirtækis sé birgðirnar. Án birgða flæðir ekki fjármagn inn í fyrirtækið og ef birgðir eru of miklar þá er of mikið fjármagn bundið í birgðunum. Eins mikilvægt og það er fyrir okkur mennina að hugsa vel um hjartað þá gildir það sama um birgðirnar.
Blogg
14.11.2012
Dagana 15. til 17. október hélt þýska fyrirtækið Software AG (SAG) sína árlegu ProcessWorld ráðstefnu í Orlando á Flórida.
Blogg
07.11.2012
Dagsdaglega hugsa fáir um varnaðarorð um notkun snjallsíma. En hver er hin raunverulega áhætta við notkun snjallsíma?
Blogg
26.10.2012
Í dag föstudaginn 26. október hefur Microsoft formlega markaðssetningu á Windows 8. Nýtt stýrikerfi Windows RT er komið út og einnig nýjar vélar sem hlotið hafa nafnið Microsoft Surface.
Blogg
17.10.2012
Íslensk fyrirtæki hafa í auknum mæli innleitt Agile og Scrum aðferðarfræði sem orðið hefur til þess að tíminn frá hugmynd að veruleika styttist verulega. En um hvað snýst þessi aðferðarfræði?
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.