Fréttir - DD.10.YYYY

Fullt út úr húsi á ráðstefnu um geðheilbrigði á vinnustað

Í tilefni af Alþjóðlegum degi geðheilbrigðis í dag, 10. október, stóðu Advania og Mental ráðgjöf fyrir ráðstefnu undir yfirskriftinni Geðheilbrigði á vinnustað.

Ráðstefnan fór fram í höfuðstöðvum Advania í Guðrúnartúni og er hluti af vitundarvakningu um geðheilbrigði þessa vikuna þar sem sérstök áhersla er lögð á geðheilbrigði vinnustaðarins með fyrirlestrum og fræðslu. Fyrirtæki um allt land tóku þátt en ætlunin er að vekja svo um munar máls á mikilvægi þess að vinnustaðir hlúi að andlegri heilsu starfsfólks og stuðli að geðheilbrigðu vinnuumhverfi.

Ketill Berg Magnússon, Mannauðsstjóri Marel í N-Evrópu, ræddi um vinnuna sem geðrækt. Sigrún Ósk Jakobsdóttir, Mannauðsstjóri Advania, talaði um mikilvægi vinnustaðarmenningar þegar kemur að geðheilbrigði. Sindri Már Hannesson, Markaðsstjóri Tixly, sagði frá þeirra vegferð þegar kemur að geðheilbrigði á vinnustað og Sigurbjörg Sigurpálsdóttir og Sóley Kristjándóttir sögðu frá stuðnings- og ráðgjafateymi Reykjavíkurborgar.

Helena Jónsdóttir, stofnandi Mental og forsprakki átaksins, lokaði ráðstefnunni og ræddi meðal annars um uppskrift að góðri geðheilsu og hvernig hægt er að viðhalda góðri geðheilsu á vinnustað. Að loknum erindum fyrirlesara fóru fram áhugaverðar pallborðsumræður um málefnið þar sem einnig var tekið við spurningum úr sal. Fundarstjóri ráðstefnunnar var Ásdís Eir Símonardóttir.

Upptökuna má sjá hér fyrir neðan.

Mental ráðgjöf stóð fyrir vitundarvakningunni þessa vikuna í  samstarfi við Advania, Visku – stéttarfélag, Reykjavíkurborg, Tixly – tix.is, Tryggingastofnun og Mannauð – félag mannauðsfólks á Íslandi. Þessi ráðstefna er hluti af vitundarvakningu 7.-11. september um geðheilbrigði á vinnustöðum þar sem ætlunin er að vekja svo um munar máls á mikilvægi þess að vinnustaðir hlúi að andlegri heilsu starfsfólks og stuðli að geðheilbrigðu vinnuumhverfi.

Fleiri fréttir

Fréttir
16.09.2026
Þegar aðaldagskrá Haustráðstefnu Advania lauk í Silfurbergi Hörpu fimmtudaginn 10. september var dagurinn ekki alveg búinn. Hildur Einarsdóttir forstjóri Advania á Íslandi bauð gestum yfir á sýningarsvæði ráðstefnunnar í Norðurljósum í mat og drykk.
Fréttir
16.09.2026
Við hófum Haustráðstefnuvikuna á skemmtilegum og fræðandi viðburði fyrir ungt fólk í tækni í samstarfi við Dell Technologies og NVIDIA.
Fréttir, F&O
16.09.2026
Nýverið tók Advania á móti samstarfsfólki frá Ferranti vegna innleiðingar á Microsoft Dynamics 365 Finance & Operations og MECOMS 365 hjá Orkusölunni. Heimsóknin var mikilvægur þáttur í verkefninu og gaf tækifæri til að vinna saman á sama stað, efla tengslin og undirbúa lokasprett verkefnisins.
Blogg
14.09.2026
Það er eitthvað að gerast í kennslustofum landsins, og það gerist á snertihraða. Þar sem áður stóð tússtafla og skjávarpi með flöktandi peru er að koma stór, skýr og snertinæmur skjár sem kennarinn stýrir með fingrinum. Ekki bara sýningartæki, heldur miðja kennslunnar.
Blogg
14.09.2026
Haustráðstefnu Advania er lokið og við sitjum eftir með bros á vör. Hliðarviðburðurinn okkar með Verkada, „Blurring Faces, Not the Rules“ eða  „Andlit í móðu en ekki reglurnar“, var vel sóttur, umræðurnar líflegar og viðtökurnar frábærar. Takk til allra sem mættu, kíktu á básinn og tóku þátt í spjallinu. Fyrir þau sem misstu af deginum (eða vilja rifja hann upp) tókum við saman það helsta.
Fréttir
03.09.2026
Advania ALT (Advania AI Layer Technology) er ný lausn sem gerir fyrirtækjum og stofnunum kleift að nýta leiðandi gervigreindarlíkön á öruggan og ábyrgan hátt.
Fréttir
31.08.2026
Haustráðstefna Advania fer fram í 32. sinn í Hörpu fimmtudaginn 10. september 2026 þar sem gervigreind, netöryggi og nýsköpun mætast. Á dagskrá eru sautján erindi og tvær pallborðsumræður svo á svið stíga yfir 20 sérfræðingar en uppselt er á ráðstefnuna á hverju ári.
Blogg
24.08.2026
Verkada er á mikilli siglingu á íslenskum markaði, og það er engin tilviljun. Sífellt fleiri íslensk fyrirtæki og stofnanir eru að færa sig yfir í öryggislausn sem er hönnuð fyrir skýið frá grunni, uppfærist sjálfkrafa og verður snjallari með hverri uppfærslu.  En af hverju einmitt núna? Svarið liggur meðal annars á óvæntum stað: verðmiðanum á minni.
Blogg
18.06.2026
Ársskýrsla Advania kom út á dögunum og þar er fjallað um sjálfbærni og fjárhag á sama grundvelli, þar sem þessir þættir eru metnir til jafns hjá samstæðunni allri. Sjálfbærni er þannig orðin mun stærri og dýpri hluti af rekstri Advania en áður og sífellt meira nýtt sem virkur hluti af stefnumótun, áhættustýringu og verðmætasköpun. Megináherslur skýrslunnar verða gefnar út á næstu vikum í formi styttri blogga.
Blogg
05.06.2026
Þjónustuhugsun skiptir meira máli en nokkru sinni fyrr.
Blogg
04.06.2026
Fyrir stuttu heyrði ég manneskju sem ég þekki segja; „Til hvers að vera að eyða tímanum í að læra tölvunarfræði ef gervigreind er hvort sem er að fara að leysa þetta í framtíðinni?“
Blogg
02.06.2026
Noona hefur lokið innleiðingu á Salesforce í samstarfi við Advania og markar það mikilvægan áfanga í áframhaldandi þróun á þjónustu og samskiptum við viðskiptavini.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.