Fréttir - DD.10.YYYY

Fullt út úr húsi á ráðstefnu um geðheilbrigði á vinnustað

Í tilefni af Alþjóðlegum degi geðheilbrigðis í dag, 10. október, stóðu Advania og Mental ráðgjöf fyrir ráðstefnu undir yfirskriftinni Geðheilbrigði á vinnustað.

Ráðstefnan fór fram í höfuðstöðvum Advania í Guðrúnartúni og er hluti af vitundarvakningu um geðheilbrigði þessa vikuna þar sem sérstök áhersla er lögð á geðheilbrigði vinnustaðarins með fyrirlestrum og fræðslu. Fyrirtæki um allt land tóku þátt en ætlunin er að vekja svo um munar máls á mikilvægi þess að vinnustaðir hlúi að andlegri heilsu starfsfólks og stuðli að geðheilbrigðu vinnuumhverfi.

Ketill Berg Magnússon, Mannauðsstjóri Marel í N-Evrópu, ræddi um vinnuna sem geðrækt. Sigrún Ósk Jakobsdóttir, Mannauðsstjóri Advania, talaði um mikilvægi vinnustaðarmenningar þegar kemur að geðheilbrigði. Sindri Már Hannesson, Markaðsstjóri Tixly, sagði frá þeirra vegferð þegar kemur að geðheilbrigði á vinnustað og Sigurbjörg Sigurpálsdóttir og Sóley Kristjándóttir sögðu frá stuðnings- og ráðgjafateymi Reykjavíkurborgar.

Helena Jónsdóttir, stofnandi Mental og forsprakki átaksins, lokaði ráðstefnunni og ræddi meðal annars um uppskrift að góðri geðheilsu og hvernig hægt er að viðhalda góðri geðheilsu á vinnustað. Að loknum erindum fyrirlesara fóru fram áhugaverðar pallborðsumræður um málefnið þar sem einnig var tekið við spurningum úr sal. Fundarstjóri ráðstefnunnar var Ásdís Eir Símonardóttir.

Upptökuna má sjá hér fyrir neðan.

Mental ráðgjöf stóð fyrir vitundarvakningunni þessa vikuna í  samstarfi við Advania, Visku – stéttarfélag, Reykjavíkurborg, Tixly – tix.is, Tryggingastofnun og Mannauð – félag mannauðsfólks á Íslandi. Þessi ráðstefna er hluti af vitundarvakningu 7.-11. september um geðheilbrigði á vinnustöðum þar sem ætlunin er að vekja svo um munar máls á mikilvægi þess að vinnustaðir hlúi að andlegri heilsu starfsfólks og stuðli að geðheilbrigðu vinnuumhverfi.

Fleiri fréttir

Blogg
03.06.2015
14. júlí hættir Microsoft stuðningi við Windows Server 2003/R2 sem mun hafa áhrif á þá fjölmörgu aðila sem enn keyra á því umhverfi.
Blogg
27.05.2015
Ef þú rekur mikilvæga þjónustu á netinu er aðeins tímaspursmál hvenær þú finnur beint eða óbeint fyrir DoS árás hafi það ekki gerst nú þegar.
Blogg
19.05.2015
Það eru spennandi breytingar á TOK bókhaldskerfinu.
Blogg
12.05.2015
Tæknimenn fá gjarnan einskonar tæknihroll þegar rætt er um að hýsa netþjóna hjá hýsingarfyrirtækjum.
Blogg
04.05.2015
Advania býður nú upp á nýja byltingarkennda lausn í rafrænum undirritunum sem kallast Signet.
Blogg
29.04.2015
Við hjá Opera Software tengjum um 350 milljón notendur við netið.
Blogg
22.04.2015
Dæmi um lausn sem skilar miklum ávinningi fyrir fyrirtæki er Advania Business Cloud sem er tölvuumhverfi í áskrift.
Blogg
14.04.2015
Þú getur aukið öryggi þitt á netinu verulega með nokkrum einföldum aðgerðum.
Blogg
07.04.2015
Nú eru þrjú ár síðan við Advania bloggið kom fyrst út og er þetta færsla númer 136.
Blogg
31.03.2015
Ný rannsókn frá greiningarfyrirtækinu Gartner sýnir mikla þörf hjá stjórnendum og sérfræðingum á að hafa lykilupplýsingar úr rekstri óháð stað og stund.
Blogg
24.03.2015
Planet Labs hannar, smíðar og rekur stóran flota af örsmáum gervihnöttum sem mynda yfirborð jarðarinnar oftar en áður en hefur þekkst.
Blogg
17.03.2015
Þann 11. mars síðastliðinn opnaði Fræðslusetrið Starfsmennt nýjan og glæsilegan náms- og þekkingarvef.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.