Hugi Freyr Einarsson opnaði viðburðinn. Mynd/Hörður Sveinsson

Fréttir, businesscentral.advania.is - 22. október 2026

Gervigreind og nýjungar í Business Central í brennidepli

Sylvía Rut Sigfúsdóttir
samskiptastjóri Advania

Nýjungar í Business Central, gervigreind og aukin sjálfvirkni voru í brennidepli á morgunverðarfundi Advania sem haldinn var í gær. Þar var meðal annars farið yfir nýjungar í Business Central 29, hvernig Copilot og gervigreindarerindrekar geta einfaldað dagleg störf og nýjungar í viðbótum Advania. Einnig kynnti Pósturinn nýtt app fyrir Business Central.

Frá umræðu til hagnýtrar notkunar gervigreindar

Hugi Freyr Einarsson, forstöðumaður Business Central hjá Advania, fór yfir hvernig fyrirtæki geta nýtt Copilot, agenta og aðrar gervigreindarlausnir með Business Central. Meðal annars var fjallað um sölupöntunar-, innkaupareikninga- og kostnaðarerindreka sem geta tekið að sér skilgreinda ferla, en notandinn hefur áfram lokaorðið í vinnslunni.

Einnig voru sýnd hagnýt dæmi um hvernig hægt er að eiga samskipti við Business Central á mannamáli með Claude eða Copilot, meðal annars til að taka saman upplýsingar um rekstur, skoða viðskiptamenn og greiðslur og vinna með gögn úr kerfinu.

Samhliða var lögð áhersla á að innleiðing gervigreindar þurfi að byggja á skýrum forsendum. Fyrirtæki þurfi meðal annars að huga að gervigreindarstefnu, persónuvernd, kröfum eftirlitsaðila og gæðum niðurstaðna.

Nýjungar í Business Central 29

Dagný Björk Stefánsdóttir, deildarstjóri þróunar hjá Advania, kynnti helstu nýjungar í Business Central 29. Microsoft gefur út tvær stórar Business Central uppfærslur á ári, í apríl og október, auk minni mánaðarlegra uppfærslna.

Meðal nýjunga sem farið var yfir voru breytingar á leit og greiningarstillingum, samsett útlit skjala, nýjungar í Shopify-tengingum, sjálfbærni og möguleikar á stjórnun aðalgagna milli umhverfa. Einnig var fjallað um væntanlega tengingu Business Central gagna við Microsoft Fabric.

Mynd/Hörður Sveinsson

Mynd/Hörður Sveinsson

Nýjungar í viðbótum Advania

Hjörtur Geirmundsson, ráðgjafi og vörueigandi hjá Advania, fór yfir breytingar og nýjungar í viðbótum Advania. Þar á meðal voru nýjungar í samþykktum, banka- og greiðslulausnum, launakerfi, áskriftarreikningum, rafrænum reikningum og verkefnabókhaldi.

Mynd/Hörður Sveinsson

Mynd/Hörður Sveinsson

Nýtt Business Central app Póstsins

Auður Ósk Vilhjálmsdóttir, stafrænn vörustjóri hjá Póstinum, kynnti nýtt app Póstsins fyrir Business Central. Markmiðið er að auðvelda aðgengi að þjónustu Póstsins og færa umsýslu sendinga inn í Business Central, með einfaldari ferlum, aukinni sjálfvirkni og betri yfirsýn.

Í appinu er meðal annars hægt að vinna beint úr sölupöntun, flytja upplýsingar viðskiptamanns sjálfkrafa yfir, stofna strikamerki sjálfkrafa og sjá upplýsingar um stöðu sendinga innan Business Central.

Mynd/Hörður Sveinsson

Mynd/Hörður Sveinsson

Mynd/Hörður Sveinsson

Mynd/Hörður Sveinsson

Mynd/Hörður Sveinsson

Mynd/Hörður Sveinsson

Fleiri fréttir

Blogg
11.05.2016
Advania rekur tvö fullkomin gagnaver.
Blogg
04.05.2016
í nýju myndbandi er farið yfir ávinning fyrirtækisins Völku af notkun á Office 365.
Blogg
25.04.2016
Við fjöllum um gagnaöryggi í nýju myndbandi og minnum á morgunverðarfund um þennan mikilvæga málaflokk sem haldinn verður 29. apríl.
Blogg
19.04.2016
Þeim fyrirtækjum sem hafa tekið Office 365 í notkun hefur fjölgað hratt að undanförnu.
Blogg
13.04.2016
Allflest fyrirtæki eiga það sammerkt öll hafa þau mikla hagsmuni af því að haldið sé vel utan um grunngögn (e. MasterData).
Blogg
05.04.2016
Dell býr sig undir notkun sýndarveruleika í viðskiptalífinu.
Blogg
30.03.2016
Undanfarin ár höfum við hjá Advania unnið náið með afritunarfyrirtækinu Veeam í þróun og innleiðingu afritunarkerfa.
Blogg
16.03.2016
Hvert sem litið er má sjá að upplýsingatæknin er á fleygiferð.
Blogg
08.03.2016
Þeir sem ætla að ná árangri í verslun á netinu þurfa að átta sig á því að á netinu er það viðskiptavinurinn sem er kominn í bílstjórasætið.
Blogg
29.02.2016
Uppbygging á tækniakademíu fyrir stelpur er eitt af meginmarkmiðum samstarfs Advania og Skema.
Blogg
24.02.2016
Internetið olli straumhvörfum í miðlun upplýsinga og nú stöndum við á álíka tímamótum í miðlun verðmæta.
Blogg
16.02.2016
Power BI er ekki bara snilld fyrir fyrirtæki. Það má líka nota til afþreyingar og í tómstundirnar með skemmtilegum árangri.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.