Claus T. Hansen forstjóri Raffle. Ljósmynd/Hörður Sveinsson
Fréttir - 3. nóvember 2026Gervigreind og sjálfvirkni geta einfaldað þjónustu sveitarfélaga
Sylvía Rut Sigfúsdóttir
samskiptastjóri Advania
Hvernig geta sveitarfélög nýtt gervigreind og sjálfvirkni til að einfalda dagleg verkefni, bæta þjónustu við íbúa og draga úr handavinnu? Það var viðfangsefni morgunverðarfundar Advania um gervigreind og sjálfvirkni fyrir sveitarfélög sem haldinn var 2. nóvember.
Viðburðurinn fór fram í höfuðstöðvum Advania í Guðrúnartúni en gestir gátu einnig fylgst með í gegnum streymi. Þar fjölluðu sérfræðingar frá Advania og Raffle.ai um hagnýta notkun tækninnar og tækifæri sem felast í aukinni sjálfvirknivæðingu sveitarfélaga.
Eva Rut Bernhöft Reynisdóttir frá Evolv, sem nú er hluti af Advania, kynnti verkefni þar sem sjálfvirkni og gervigreind eru nýtt til að draga úr handavinnu í stjórnsýslu. Einnig var fjallað um Advania ALT, nýja gervigreindarlausn sem gerir íslenskum fyrirtækjum og stofnunum kleift að vinna með gögn sín innan íslenskrar lögsögu.
Claus T. Hansen, CEO hjá Raffle.ai, kynnti lausnir fyrirtækisins á sviði gervigreindardrifinnar leitar og erindreka og deildi reynslu af verkefnum með dönskum sveitarfélögum. Þar hefur gervigreind meðal annars verið nýtt til að auðvelda íbúum upplýsingaleit og styðja við sjálfsafgreiðslu.
Fundurinn var fyrst og fremst helgaður hagnýtum lausnum og raunverulegum tækifærum til að nýta gervigreind og sjálfvirkni í starfsemi sveitarfélaga, bæði til að einfalda vinnu starfsfólks og gera upplýsingar aðgengilegri fyrir íbúa.