Arnar Ágústsson stýrði fjórða og síðasta veffundinum okkar í Öryggisoktóber.
Fréttir - 30. október 2026Hakkarinn þarf ekki að brjótast inn ef hann getur skráð sig inn
Sylvía Rut Sigfúsdóttir
samskiptastjóri Advania
**Starfsmaður opnar viðhengi, slær inn lykilorðið og staðfestir innskráninguna með fjölþátta auðkenningu. Svo heldur hann áfram að vinna í tölvupóstinum eins og ekkert hafi í skorist. Á meðan situr árásaraðili inni í sömu lotu og undirbýr að fá falsaðan reikning greiddan.**
Á síðasta veffundi Advania í Öryggisoktóber ræddu Arnar Ágústsson, deildarstjóri rekstrarlausna hjá Advania, og Claus Madsen, kerfisverkfræðingur hjá Arrow, um hvers vegna lítil og meðalstór fyrirtæki eru orðin eftirsótt skotmörk. Fundurinn fór fram á ensku undir heitinu Handan Business Premium: Eru öryggismálin tilbúin fyrir tíma gervigreindar?
Þar kom meðal annars fram að árásaraðilar sækjast síður eftir því að koma spilliforritum inn á tölvur. Þeir beina sjónum sínum frekar að auðkennum notenda, með veiðipóstum, félagslegri verkfræði og djúpfölsunum. Spilliforrit er hægt að greina. Þegar árásaraðili hefur náð aðgangi að notandareikningi vinnur hann hins vegar sem notandinn sjálfur, og það sést ekki nema réttu tólin séu til staðar.
Microsoft 365 Business Premium var hannaður sem heildarlausn fyrir minni fyrirtæki fyrir sjö til átta árum, áður en gervigreindin fór að gefa þekktum árásaraðferðum aukinn kraft. Claus fer yfir hvað viðbótin Defender Suite bætir við, svo sem áhættumiðaða innskráningu og vernd fyrir auðkenni í blönduðu umhverfi. Hann leggur líka áherslu á að lausnin henti ekki öllum og að fyrsta skrefið sé alltaf að meta hvort fyrirtækið þurfi á henni að halda.
Arnar og Claus ræða einnig hvers vegna einhver þarf að vakta kerfin allan sólarhringinn. Árásaraðilar hætta ekki klukkan fjögur, og fæst lítil fyrirtæki hafa eigin öryggissérfræðinga á vakt.
Fundurinn var sá síðasti í veffundaröð Advania í Öryggisoktóber. Október er tileinkaður netöryggi víða um Evrópu. Öryggisoktóber, eða Evrópski netöryggismánuðurinn (European Cybersecurity Month), er haldinn ár hvert að frumkvæði Netöryggisstofnunar Evrópusambandsins (ENISA) og framkvæmdastjórnar ESB. Markmiðið er að efla vitund fyrirtækja, stofnana og almennings um netógnir og góðar öryggisvenjur.