Hildur Einarsdóttir forstjóri Advania á Íslandi. Ljósmynd/Hörður Sveinsson.
Fréttir - 10. nóvember 2026Hildur Einarsdóttir verndar Mentorverkefni FKA Framtíðar
Sylvía Rut Sigfúsdóttir
samskiptastjóri Advania
Hildur Einarsdóttir, forstjóri Advania á Íslandi, er verndari Mentorverkefnis FKA Framtíðar starfsárið 2026 til 2027. Verkefnið verður formlega sett á opnunarviðburði í dag þar sem Hildur flytur erindi.
Mentorverkefnið tengir saman konur á ólíkum stigum starfsferilsins. Reyndir leiðtogar úr atvinnulífinu miðla þekkingu og reynslu, og markmiðið er að veita stuðning, leiðsögn og innblástur og byggja upp tengsl sem nýtast báðum aðilum. Verkefnið er eitt helsta verkefni FKA Framtíðar, deildar innan Félags kvenna í atvinnulífinu, sem fagnar tíu ára afmæli á starfsárinu.
Sem verndari styður Hildur bæði mentora og mentees allt starfsárið. Hún heldur fræðslufundi um hlutverk, væntingar og hvernig samstarfið skilar sem mestu, deilir eigin reynslu af mentorstarfi og tekur þátt í lykilviðburðum verkefnisins. Hún er jafnframt tengiliður verkefnisins við samstarfsaðila, meðal annars Leiðtogaauð. Markmiðið er að verkefnið byggi á gagnkvæmri virðingu, skýrum hlutverkum og raunverulegum þroska beggja aðila, mentora jafnt sem mentees.
Hildur tók við starfi forstjóra Advania á Íslandi 1. mars 2025. Áður starfaði hún í 16 ár hjá Embla Medical (áður Össur), síðast sem framkvæmdastjóri rannsókna og þróunar á heimsvísu og sat í framkvæmdastjórn félagsins. Hún er verkfræðimenntuð frá Háskóla Íslands og með meistaragráðu frá Imperial College London.
„Ég hef sjálf verið einstaklega heppin að eiga góða mentora að í gegnum minn starfsferil og veit af eigin raun hversu mikil áhrif rétt samtöl, góð ráð og stuðningur geta haft. Þess vegna stendur mentorverkefni FKA mér sérstaklega nærri og finnst mikill heiður að fá að leggja mitt af mörkum til að styðja við þetta mikilvæga framtak,“ segir Hildur Einarsdóttir um verkefnið.