sjálfbærni, umhverfismál, Blogg, Nýjasta nýtt - 25. apríl 2022

Hversu græn er tölvan þín?

Það skiptir máli hvaða tölvubúnaður er valinn og því ætti val á búnaði að vera liður í sjálfbærnivegferð fyrirtækja. Hér eru nokkrar leiðir til að meta hve umhverfisvæn tölvan þín er.

Það skiptir máli hvaða tölvubúnaður er valinn og því ætti val á búnaði að vera liður í sjálfbærnivegferð fyrirtækja. Hér eru nokkrar leiðir til að meta hve umhverfisvæn tölvan þín er.

Sigfús Jónasson, vörustjóri notendabúnaðar Advania, skrifar:

Aukin umræða og krafa um sjálfbærni hefur haft áhrif á tölvuframleiðendur víðsvegar um heim og hafa mörg skref verið tekin í átt að nýjum leiðum við vöruhönnun. Þar má nefna aukna áherslu á endurunnin og umhverfisvænni byggingarefni í vörum og pakkningum, orkusparnað og ýmsar aðrar lausnir – eins og tækni sem dregur úr magni blágeisla í skjáum. Neytendur eiga þó erfitt með að sannreyna þau loforð sem framleiðendur setja fram um vörur, draga ályktanir um umhverfisáhrif og sjá hvernig sjálfbærni er hluti af framleiðsluferlinu.

Á undanförnum árum hafa umhverfismerki rutt sér til rúms sem skoða vörur út frá mismunandi forsendum og gefa einkunn eða vottun um að ákveðnum skilyrðum sé mætt. Þar geta ólíkir eiginleikar verið til skoðunar þar sem sum umhverfismerki horfa afmarkað á meðan önnur horfa á fjölbreytta þætti sem snúa að samfélagi og umhverfi – eins og umhverfisleg áhrif frá framleiðslu, orkuþörf og aðbúnað starfsfólks.

Í einhverjum tilvikum setja framleiðendur fram hvaða umhverfismerki varan ber og þá er oft auðvelt að sjá hvaða niðurstaða eða einkunn liggur til grundvallar. Gott er að hafa í huga að til eru mörg merki og getur verið munur á áreiðanleika en með því að kynna sér þessi mál geta neytendur tekið upplýstari ákvarðanir út frá betri gögnum.

Til að nefna nokkur þekkt merki sem meta tölvubúnað út frá skilgreindum mælikvörðum má nefna Energy Star, Electronic Product Environmental Assessment Tool (EPEAT) og TCO Certified. Allir þessir aðilar bjóða upp á gagnabanka á sínum heimasíðum þar sem hægt er að skoða niðurstöður og á hverju viðkomandi mæling byggir.

Energy Star mælir orkunotkun og upplýsir til um orkusparnað. Til að öðlast merkið þarf vara að uppfylla kröfur sem snúa að sparneytni á rafmagn.

EPEAT er alþjóðlegt einkunnakerfi fyrir raftæki þar sem vörur geta hlotið eftirfarandi einkunnir: Gull, silfur eða brons. Ef Dell Latitude fartölva er skoðuð má sjá að hún er meðal annars mæld út frá notkun á efnum eins og bróm og klór, þjónustustuðningi, efnisvali á umbúðum, uppfærslumöguleikum og kolefnisfótspori.

TCO Certified er sjálfbærnivottun sem horfir á samfélagslega og umhverfislega ábyrgð í gegnum líftíma vara. Hugað er meðal annars að ábyrgð í framleiðsluferlinu, notendaöryggi og vinnuvistfræði. Á meðal þátta sem eru mældir má nefna samfélagslega ábyrga framleiðslu, heilsu og öryggi notenda, fækkun hættulegra efna og líftímalengingu vara.

Umhverfismerki spila hlutverk í að auka gagnsæi, ýta undir upplýsta afstöðu í vörukaupum og gera ferlið í kringum tölvubúnað ábyrgara. Um þetta fjallar hugtakið Green computing; að framleiðendur hanni vörur með umhverfið í huga, neytendur taki upplýsta ákvörðun og að vörur séu endurunnar á ábyrgan hátt, þar sem dregið er úr sóun. Það skiptir máli hvaða búnaður er valinn og því ætti val á tölvubúnaði að vera liður í sjálfbærnivegferð fyrirtækja.

Í vefverslun okkar má sjá hvaða umhverfismerki tölvur og skjáir bera sem eru í sölu hjá Advania, þær upplýsingar eru að finna undir hverri vöru fyrir sig og ef spurningar vakna um þessi mál er um að gera að senda okkur skilaboð á sala@advania.is.

Sigfús Jónsson
vörustjóri notendabúnaðar Advania

Fleiri fréttir

Blogg
15.01.2014
Þessi færsla á að vera gagnlegt innlegg í umræðu um skýjalausnir, kostnaðinn og ávinninginn sem hagnýting þeirra felur í sér.
Blogg
09.01.2014
Fyrirtæki byggja almennt velgengni sína á ánægju viðskiptavina sinna með því að veita réttu þjónustuna með réttum hætti á réttum tíma.
Blogg
31.12.2013
Það er vandi að spá, sérstaklega um framtíðina. Sérfræðingar greiningafyrirtækisins Gartner láta það ekki aftra sér.
Blogg
10.12.2013
Microsoft leggur nú áherslu á að fyrirtæki geti uppfært Microsoft Dynamics NAV hratt og örugglega.
Blogg
25.11.2013
Við hjá BN notum app til að skrár úttektir á íbúðum.
Blogg
20.11.2013
Vinnumálastofnun (VMST) hefur opnað nýjan endurbættan þjónustu- og skráningarvef sem ber heitið Mínar síður.
Blogg
13.11.2013
Að vera með lélegan skjá við góða tölvu er svipað að eiga nýjan og fínan bíl en keyra hann á gömlum og slitnum dekkjum.
Blogg
06.11.2013
Ráðgjafafyrirtækið Gartner telur að fjórir kraftar muni hafa hvað mest áhrif á þróun upplýsingatækni í næstu framtíð; Cloud, Big Data, Mobile og Social.
Blogg
30.10.2013
Hér eru nokkur ráð sem vonandi nýtast þeim sem reka vinsæla vefi, þ.e. vefi sem eiga við það lúxusvandamál að glíma við álagstoppa.
Blogg
23.10.2013
Til að ná sem bestum árangri verða stjórnendur og aðrir starfsmenn ávallt að vera með puttann á púlsinum.
Blogg
15.10.2013
Í nýrri útgáfu af TOK bókhaldskerfinu geta notendur sent og móttekið pappírslausa (rafræna) reikninga og sparað sér bæði tíma og peninga.
Blogg
02.10.2013
Nú er komin ný útgáfa af PowerPivot sem er hluti af Microsoft Excel 2013 Professional plus Edition.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.