Mynd/Jón Snær Ragnarsson

Blogg - 7. október 2024

Mannauðslausnir sem skapa meiri tími fyrir mannlega þáttinn

Berglind Lovísa Sveinsdóttir
vörustjóri H3

Megináhersla vinnustaða er að stjórnendur sem þar starfa hafi rými til að nýta tímann fyrir mannlega þáttinn, þar sem stjórnendur og mannauðsfólk mæta starfsfólki á þeim stað sem þau eru.

Undirstaða þess verkefnis er að vera með góðar lausnir til að vinna með sér í mannauðsmálum, lausnir sem styðja alla hagsmunaaðila, frá launa- og mannauðssérfræðingum til stjórnenda. Þaðan skilar virðið sér til starfsmanna með réttum launum og upplýsingum um launakjör og réttindi. Góðar mannauðslausnir skapa þannig meiri tíma fyrir mannlega þáttinn.

Fyrir launasérfræðinga sem sjá um útreikning og umsýslu launa þá þarf lausnin að bjóða upp á öflugar vinnslur til að létta vinnu þeirra, góða afstemmingarmöguleika og einnig rafræn skil á upplýsingum til banka, skuldareiganda og RSK. Lausnin þarf líka að styðja við öruggt flæði upplýsinga í aðrar lausnir. Fyrir faglega mannauðsstjórnun er nauðsynlegt að nýta lausnirnar sem best og að lausnirnar bjóði upp á þann sveigjanleika sem styður við aðstæður hvers og eins vinnustaðar. Þannig skila skráningar á upplýsingum starfsfólks sér í betri og réttari upplýsingum til starfsfólks, stjórnenda og inn í aðrar lausnir.

H3 er lausn fyrir launa -og mannauðssérfræðinga og er sérsniðið að íslenskri vinnumarkaðslöggjöf. Virkni H3 lausnarinnar miðar að því að auðvelda launavinnslu, spara tíma og auka yfirsýn yfir launakostnað og starfsmannaupplýsingar. Flóra mannauðslausn er með tengingu við H3 sem gefur starfsfólki og stjórnendum aðgang að sínum upplýsingum. Flóra er á íslensku og ensku og er aðgengileg notendum á öllum snjalltækjum þar sem hún er veflausn.

Flóra fyrir starfsfólk

Flóra birtir starfsfólki upplýsingar eins og orlof, starfsaldur, réttindi og launaseðla. Í Flóru er skipurit þar sem er hægt að leita eftir nafni til að sjá tengiliðaupplýsingar. Í Flóru getur starfsfólk einnig sótt um styrki eins og heilsustyrk, samgöngustyrk og símastyrk. Með auknu aðgengi að eigin upplýsingum getur starfsfólk fylgst með sínum launa- og starfsupplýsingum.

Flóra fyrir stjórnendur

Flóra gefur stjórnendum aðgang að mikilvægum launa- og mannauðsupplýsingum starfsfólks. Stjórnendur sjá þar upplýsingar um laun, orlof, réttindi og veikindi starfsfólks. Stjórnendur hafa aðgang að Launagátt sem heldur utan um ferli launabreytinga á þann veg að stjórnandi fær aðgang að upplýsingum um laun starfsmanns og skráningu í jafnlaunakerfi úr H3 launa- og mannauðslausninni. Stjórnendur geta skoðað í Launagátt núverandi starfaflokka og dreifingu launa í sinni deild, kynjahlutfall og stöðu gagnvart launaviðmiðum. Tilfærsla í starfi og breytingar á starfshlutfalli mun á næstu mánuðum einnig verða aðgengileg fyrir stjórnendur í Flóru veflausn. Það er mikils virði fyrir stjórnendur að geta verið sjálfstæðir í breytingum hjá sínu starfsfólki og miðlað þeim upplýsingum á sjálfvirkan máta til mannauðsdeildar.

Flóra fyrir mannauðsfólk

Þegar stjórnandi hefur klárað launabreytingaferlið í Launagátt Flóru fara þær upplýsingar til launafulltrúa og mannauðsfólks sem tekur þær breytingar inn í launakerfið. Viðauki vistast í skjalaskáp ásamt því að möguleiki er á tengingu við rafræna undirritun. Markmið lausnarinnar er að hjálpa mannauðsfólki að styðja við sína stjórnendur og því er næsta virkni sem verður gefin út í Flóru samþykktarferli launa fyrir stjórnendur. Með vefaðgangi geta stjórnendur samþykkt laun til útborgunar hvar og hvenær sem er. Með því að veita starfsfólki og stjórnendum aðgang að sínum upplýsingum í Flóru gefst mannauðsfólki rými í önnur verkefni en að svara fyrirspurnum um upplýsingar sem fólk getur sótt sér sjálft. Allt þetta skapar meiri tíma.

Greinin birtist fyrst í Mannauðsblaði Morgunblaðsins 3. október 2024.

Fleiri fréttir

Blogg
10.12.2024
Þegar kemur að geymslu gagna þurfa lítil og meðalstór fyrirtæki afkastamiklar, áreiðanlegar og hagkvæmar gagnageymslur, ekki endilega einingar með fullt af eiginleikum sem aldrei verða notaðir.
Myndbönd, businesscentral.advania.is
29.11.2024
Á þessum veffundi var farið yfir splunkunýtt fyrirkomulag Business Central þjónustusamninga sem fela í sér töluverða breytingu á þjónustuveitingu Advania á Business Central.
Fréttir
27.11.2024
Advania og Data Dwell ehf. hafa komist að samkomulagi um kaup Advania á öllum Salesforce viðskiptum Data Dwell. Með kaupunum tekur Advania yfir allar skuldbindingar gagnvart þeim viðskiptavinum sem þetta snertir.
Fréttir
25.11.2024
Töluverð umræða skapaðist um öryggi gagna eftir fjölmiðlaumfjöllun um sæstreng sem slitnaði á milli Svíþjóðar og Litháen og skemmdir á öðrum sæstreng, á milli Finnlands og Þýskalands. Hafsteinn Guðmundsson framkvæmdastjóri Rekstrarlausna Advania ræddi málið í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni.
Blogg
25.11.2024
Að starfa í nýsköpun er skemmtileg og krefjandi blanda af því að þróa lausnir sem mæta þörfum nútímans en á sama tíma spá fyrir um framtíðarþarfir.
Fréttir
20.11.2024
Kristján Þorvaldsson hefur tekið við hlutverki forstöðumanns veflausna hjá Sérlausnum Advania. Kristján hefur mikla reynslu úr upplýsingatækni. Hann er með meistaragráðu í stjórnun og stefnumótun frá Háskóla Íslands og BS gráðu í rafmagns- og tölvuverkfræði frá sama skóla. Auk þess er Kristján vottaður IPMA verkefnastjóri á C stigi.
Fréttir
14.11.2024
Tölvur með innbyggðu 5G módemi opna fyrir ótal möguleika. Starfsfólk upplifir alvöru sveigjanleika með alvöru öryggi - svo til hvar sem er. Advania býður upp á 5G fartölvur frá Dell, sem eykur bæði öryggi og þægindi fyrir notendur.
Fréttir
12.11.2024
Advania tekur höndum saman með tæknifyrirtækjunum til að koma nútíma lausnum í gervigreind og reiknigetu í gagnaver á Íslandi.
Fréttir
12.11.2024
Sigrún Ósk Jakobsdóttir mannauðsstjóri Advania er tilnefnd til verðlauna á Women in Tech Awards sem afhent verða í Osló í Noregi í kvöld. Sigrún var valin sigurvegari á Íslandi í flokknum fjölbreytnileiðtogi ársins og er því fulltrúi landsins í þessum flokki á verðlaununum.
Blogg
12.11.2024
Í síðustu viku hélt Advania morgunverðarfund þar sem Verkada kynnti öryggislausn sína. Það var frábær mæting og þéttsetinn salur enda spennandi dagskrá.
Blogg
10.11.2024
Nú fer að líða að stærstu netverslunardögum ársins – Singles Day, Black Friday, Cyber Monday – ásamt almennri aukningu á kaupum á netinu í aðdraganda hátíðanna. Því miður, þá er þessi tími einnig háanna tími fyrir netsvik og þarf því að hafa varann á.
Fréttir
06.11.2024
Advania hefur skrifað undir að gerast þátttakandi í Global Compact Sameinuðu þjóðanna á Íslandi. Global Compact er sáttmáli Sameinuðu þjóðanna og atvinnulífs um ábyrga starfshætti og stærsta sjálfbærniframtak heims, þar sem fyrirtæki og stofnanir eru hvött til góðra verka í þágu samfélagsins með sjálfbærni að leiðarljósi.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.