Sigríður Sía Þórðardóttir

Fréttir - 23. nóvember 2022

Sía í framkvæmdastjórn Advania

Sigríður Sía Þórðardóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri viðskiptalausna Advania. Hún fer fyrir öflugu teymi sérfræðinga sem aðstoða fyrirtæki á sinni skýjavegferð.

Sía tekur við keflinu af Heimi Fannari Gunnlaugssyni sem lætur af störfum hjá Advania. Hún hefur rúmlega tveggja áratuga reynslu úr upplýsingatæknigeiranum og hefur starfað hjá Advania og forverum þess í 14 ár. Nú síðast gegndi hún starfi forstöðumanns á viðskiptalausnasviði. Sía er með BS-próf í upplýsingakerfum frá Háskólanum í Skövde og lauk nýlega MBA-gráðu frá AVT Business School í Kaupmannahöfn.

„Ég er mjög ánægð með að vera treyst til að leiða þetta öfluga teymi sérfræðinga. Með frábærum samstarfsaðilum okkar höldum við áfram að aðstoða fyrirtæki upp í skýið, auka skilvirkni þeirra og gera stjórnendum kleift að taka gagnadrifnar ákvarðanir. Það eru því spennandi tímar framundan hjá viðskiptavinum okkar,” segir Sía.

„Á undanförnum árum hefur Advania unnið frábært starf við að færa viðskiptavini inn í framtíðina með áherslu á skýið. Sía býr yfir mikilli þekkingu á þessu sviði og í hennar nýja hlutverki gefast enn fleiri tækifæri á að miðla reynslu hennar til okkar sérfræðinga og viðskiptavina. Heimi Fannari þakka ég gott samstarf og óska velfarnaðar á nýjum vettvangi,” segir Ægir Már Þórisson, forstjóri Advania.

Framkvæmdastjórn Advania skipa nú þau Sigurður Sæberg Þorsteinsson, Jón Brynjar Ólafsson, Sigríður Sía Þórðardóttir, Margrét Gunnlaugsdóttir, Sigrún Ámundadóttir, Hinrik Sigurður Jóhannesson, Hafsteinn Guðmundsson og Ægir Már Þórisson forstjóri fyrirtækisins.

Fleiri fréttir

Microsoft, Blogg
22.05.2019
Fimm mikilvægir eiginleikar Teams sem auka sveigjanleika og veita þægindi í vinnuumhverfi starfsmanna.
Blogg
10.05.2019
Hvað getur sagan kennt okkur um fjórðu iðnbyltinguna? Það skyldi þó aldrei vera að sagan endurtaki sig eða við gætum lært af henni? Að ný tækni taki ekki almennilega á sprett fyrr en hún hefur náð ákveðinni lágmarks viðspyrnu.
Blogg
09.05.2019
Notendur Windows 7, Office 2010, SQL 2008/R2 og Windows Server 2008/R2 þyrftu að gera ráðstafanir í tengslum við að Microsoft hættir stuðningi við þessar útgáfur á næstunni.
Blogg
06.05.2019
Ef vinur þinn segir þér að þú hafir sent undarlegan tölvupóst eða sett skrýtin innlegg á samfélagsmiðla sem þú ert ekki líklegur að gera, þá ættu viðvörunarbjöllur að hringja Líklegast hefur einhver komist inn á reikninginn þinn án þess að þú tækir eftir því.
Blogg
30.04.2019
Rafrænt kosningakerfi sem þróað er af Advania, er vel í stakk búið til að annast þjóðaratkvæðagreiðslu. Kerfið nýttist vel í kosningum um Lífskjarasamningana og sparaði stéttarfélögum landsins tugi milljóna.
Myndbönd
04.04.2019
Þegar kemur að útvistun á tölvuumhverfi er mikilvægt að velja öflugan og áreiðanlegan þjónustuaðila. Með rekstrarþjónustu Advania sjá sérfræðingar okkar um daglegan rekstur upplýsingakerfa, þjónustu við notendur og fyrirbyggjandi aðgerðir.
Myndbönd
04.04.2019
Þegar tengingin skiptir öllu máli, er eins gott að tæknin sé í lagi.
Myndbönd
04.04.2019
Þegar þú ert með mikilvæga bókun, er eins gott að tæknin sé í lagi.
Myndbönd
04.04.2019
Advania er bakhjarl Knattspyrnusambands Íslands. Advania vill auðvelda úrlausn á þeim fjölmörgu flóknu tæknimálum sem Knattspyrnusambandið stendur frammi fyrir og gera því kleift að einbeita sér að sínu sérsviði, fótbolta.
Myndbönd
04.04.2019
Hér má heyra hvernig Friðrik Heiðar Blöndal upplýsingatæknitækistjóri Ölgerðarinnar hefur upplifað alrekstrarþjónustu Advania.
Myndbönd, Nýjasta nýtt
04.04.2019
Nú er sjálfsafgreiðsla valkostur í öllum stærstu matvörukeðjum landsins. Við spurðum neytendur hvernig þeim líkar sjálfsafgreiðslan og þetta eru svörin sem við fengum.
Myndbönd
04.04.2019
50skills er nú hluti af mannauðslausnamengi Advania. Svona lýsa notendur upplifun sinni af mannauðslausninni 50skills.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.