Ársskýrsla Advania samstæðunnar er aðgengileg í heild sinni á vefnum okkar.

Blogg - 18. júní 2026

Sjálfbærni er orðin samofin daglegum ákvörðunum og langtímastefnu

Ásta Maack
verkefnastjóri sjálfbærni hjá Advania

Ársskýrsla Advania kom út á dögunum og þar er fjallað um sjálfbærni og fjárhag á sama grundvelli, þar sem þessir þættir eru metnir til jafns hjá samstæðunni allri. Sjálfbærni er þannig orðin mun stærri og dýpri hluti af rekstri Advania en áður og sífellt meira nýtt sem virkur hluti af stefnumótun, áhættustýringu og verðmætasköpun. Megináherslur skýrslunnar verða gefnar út á næstu vikum í formi styttri blogga.

Það er mikilvægt að setja sjálfbærni í samhengi við kjarnastarfsemi fyrirtækisins. Sjálfbærni er ekki afmörkuð við umhverfismál, heldur tengd beint við lykilrekstrarsvið Advania. Það er mikil uppbygging á þessum sviðum og er sjálfbærni samofin þeim áherslum sem skapa tekjur og samkeppnisforskot á markaði, í stað þess að vera álitið sem íþyngjandi skylda eða óþarfa skýrsluskrif.

Til að halda utan um forgangsröðun verkefna byggir Advania sjálfbærnivinnu sína á tvöfaldri mikilvægisgreiningu (e. Double Materiality Assessment eða DMA). Slík greining felur í sér mat á bæði áhrifum fyrirtækisins á samfélag og umhverfi og þeim sjálfbærniþáttum sem hafa fjárhagsleg áhrif á fyrirtækið sjálft. Með þessu fæst óháð og traust mat sem styður við forgangsröðun, áhættustýringu og stefnumótun.

Út frá tvöföldu mikilvægisgreiningunni eru það sérstaklega fimm svið sem standa upp úr: loftslagsbreytingar, hringrásarhagkerfi, mannauður, netöryggi og ábyrg notkun gervigreindar (Responsible AI). Áhersla á ábyrga notkun gervigreindar kemur nú inn sem nýtt og sjálfstætt efnislegt málefni og endurspeglar þá þróun að gervigreind er farin að hafa bæði umhverfisleg, félagsleg og siðferðisleg áhrif sem þarf að stýra sérstaklega.

Í ársskýrslunni 2025 er jafnframt mikil áhersla sett á virðiskeðju samstæðunnar, sérstaklega í Umfangi 3 (e. Scope 3). Langstærstur hluti umhverfisáhrifa Advania tengist keyptum tæknibúnaði, framleiðslu hans og notkun hjá viðskiptavinum. Þegar litið er á kolefnislosun samstæðunnar sést að 70–85% af heildarlosun tengist tæknibúnaði, sem skýrir aukna áherslu á að umbreyta þessum hluta rekstrarins. Þar gegnir hringrás búnaðar lykilhlutverki, með áherslu á að lengja líftíma búnaðar, auka endurnýtingu og minnka úrgang, bæði fyrir eigin starfsemi og viðskiptavini.

Ef horft er sérstaklega á breytingar milli 2024 og 2025 varð verulegt stökk í framþróun á ferlum og stjórnkerfum. ESRS/CSRD kröfur hafa nú raunveruleg áhrif á uppbyggingu gagna, verklag og innri stjórnunarkerfi, en ekki eingöngu framsetningu skýrslunnar. Á sama tíma hefur færst áhersla úr kosntnaðartengdri (e. spend-based) nálgun í birgjamati yfir í mat á birgjum út frá raunverulegum áhættuþáttum, meðal annars með innleiðingu ESG Due Diligence kerfa og aukinni áherslu á mannréttindi í virðiskeðjunni.

Í rekstrartölum sést einnig að breytingarnar eru ekki línulegar. Heildarlosun samstæðunnar jókst á árinu, einkum vegna yfirtaka og stækkunar í Bretlandi. Á sama tíma lækkar hlutfall hringrásarbúnaðar tímabundið vegna vaxtar í sölu nýs búnaðar, sem undirstrikar áskorunina við að skala sjálfbærar lausnir samhliða vexti.

Í heild sýnir ársskýrslan að sjálfbærni er að verða samofin bæði daglegum ákvörðunum og langtímastefnu, með skýrari forgangsröðun, sterkari ferlum og beinni tengingu við virðissköpun. Sjálfbærni er þannig orðin hluti af rekstrarlíkani Advania.

Fleiri fréttir

Blogg
17.04.2013
Rafræn staðfesting á vöruafhendingu gerir fyrirtækjum kleift að staðfesta hvenær vara var afhent og hver tók á...
Blogg
10.04.2013
Ég skora á stjórnvöld og fyrirtæki landsins að leggja okkur lið við innleiðingu á forritunarkennslu í skólum landsins.
Blogg
03.04.2013
MobileNAV appið gerir notendum kleift að tengjast Microsoft Dynamics NAV, hvar og hvenær sem er, í farsíma eða í spjaldtölvu.
Blogg
27.03.2013
Ávinningur fyrirtækja af því að innleiða Lync samskiptaforritið er margvíslegur og verður hér aðeins stiklað á stóru í þeim efnum.
Blogg
20.03.2013
Ég vil gefa fólki tilfinningu fyrir því að það sem við í tölvubransanum vinnum við að framleiða getur haft gríðarleg áhrif á líf fólks.
Blogg
13.03.2013
Á tímum örra tæknibreytinga í verslunar- og þjónustulausnum þurfa rekstraraðilar að gæta að sambandi sínu við viðskiptavini.
Blogg
05.03.2013
Hér er farið yfir það allra helsta sem til nýjunga horfir í SharePoint 2013.
Blogg
26.02.2013
Þjálfun og fræðsla eru mikilvægir þættir í starfsemi fyrirtækja og stofnana.
Blogg
20.02.2013
Flest erum við háð tölvunni okkar í leik og starfi og finnst afleitt ef hún bilar. Hér eru fimm einföld ráð til að komast hjá vandræðum.
Blogg
12.02.2013
Hvað einkennir gott launakerfi? Hvernig er hægt að fá sem mest út úr launakerfinu?
Blogg
06.02.2013
Hin árlega Citrix Synergy ráðstefna var haldin í Barcelona í lok síðasta árs.
Blogg
30.01.2013
Hvernig eru snjalltækin að birta vefina okkar? Er skalanleg vefhönnun enn ein tískubóla í vefhönnun eða er hún komin til að vera?
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.