Advania hlýtur verðlaunin Samstarfsaðili 2026 ársins á Íslandi. Mynd/Microsoft
Fréttir - 11. nóvember 2026Advania er Microsoft samstarfsaðili ársins á Íslandi annað árið í röð
Sylvía Rut Sigfúsdóttir
samskiptastjóri Advania
Í kvöld var tilkynnt að Microsoft hefur valið Advania sem samstarfsaðila ársins 2026 á Íslandi (e. Regional Partner of the Year).
Þessi viðurkenning undirstrikar einstaka þekkingu og færni Microsoft sérfræðinga Advania. Þetta er annað árið í röð sem Advania á Íslandi hlýtur þessa viðurkenningu.
Fyrirtækið er með þessu heiðrað ásamt fremstu samstarfsaðilum Microsoft á heimsvísu fyrir framúrskarandi nýsköpun og innleiðingu á lausnum fyrir viðskiptavini, byggðum á Microsoft tækni.
„Ég er gríðarlega stoltur af þessum frábæra árangri og öllu því öfluga starfsfólki Advania sem gerði þessa viðurkenningu að veruleika. Að vera valin Microsoft Partner of the Year á Íslandi er mikil viðurkenning á þeirri sérþekkingu, metnaði og liðsheild sem býr í teyminu okkar. Þetta sýnir hverju við getum áorkað með þéttu samstarfi með viðskiptavinum okkar og Microsoft og hvetur okkur til að halda áfram að byggja ofan á þann góða grunn sem við höfum skapað,“ segir Sæmundur Valdimarsson, forstöðumaður hjá Rekstrarlausnum Advania, en hann tekur formlega við viðurkenningunni á Microsoft Ignite 2026 í San Francisco í næstu viku.
Microsoft Partner of the Year verðlaunin eru veitt til þeirra samstarfsaðila sem þóttu framúrskarandi á árinu en valið er úr þúsundum tilnefninga frá yfir hundrað löndum.
Nánar má lesa um viðurkenninguna á vef Microsoft.