Erna Björk Sigurgeirsdóttir og Hildur Einarsdóttir í Hörpu. Mynd/Creditinfo
Fréttir - 29. október 2026Framúrskarandi fyrirtæki níunda árið í röð
Sylvía Rut Sigfúsdóttir
samskiptastjóri Advania
Advania er í hópi Framúrskarandi fyrirtækja 2026 samkvæmt greiningu Creditinfo. Listinn var kynntur við hátíðlega athöfn í Hörpu í gær.
Hildur Einarsdóttir, forstjóri Advania á Íslandi, og Erna Björk Sigurgeirsdóttir, framkvæmdastjóri fjármála, mannauðs og samskipta, tóku við viðurkenningunni á viðburði Creditinfo, en þetta er níunda árið í röð sem Advania er á listanum.
Aðeins um 2,5% íslenskra fyrirtækja standast skilyrðin ár hvert og vottunin er eitt helsta mælitækið á stöðugan og traustan rekstur í íslensku atvinnulífi.
Hvað gerir fyrirtæki framúrskarandi?
Til að komast á listann þurfa fyrirtæki meðal annars að:
- vera í lánshæfisflokki 1 til 3,
- sýna jákvæðan rekstrarhagnað og jákvæða ársniðurstöðu þrjú ár í röð,
- hafa eiginfjárhlutfall að minnsta kosti 20% þrjú ár í röð,
- skila ársreikningi innan lögbundins frests,
- svara spurningalista um sjálfbærni, ef rekstrartekjur eru yfir tveimur milljörðum króna.
Í ár hefur Creditinfo hert skilyrðin enn frekar. Fyrirtæki sem falla undir lög um kynjahlutföll í stjórnum þurfa nú að uppfylla þau lög til að teljast framúrskarandi, þar sem árangur er í auknum mæli metinn út frá stjórnarháttum og ábyrgð en ekki afkomu einni saman.
Listann yfir Framúrskarandi fyrirtæki 2026 má finna á Vísi.