Erna Björk Sigurgeirsdóttir og Hildur Einarsdóttir í Hörpu. Mynd/Creditinfo

Fréttir - 29. október 2026

Framúrskarandi fyrirtæki níunda árið í röð

Sylvía Rut Sigfúsdóttir
samskiptastjóri Advania

Advania er í hópi Framúrskarandi fyrirtækja 2026 samkvæmt greiningu Creditinfo. Listinn var kynntur við hátíðlega athöfn í Hörpu í gær.

Hildur Einarsdóttir, forstjóri Advania á Íslandi, og Erna Björk Sigurgeirsdóttir, framkvæmdastjóri fjármála, mannauðs og samskipta, tóku við viðurkenningunni á viðburði Creditinfo, en þetta er níunda árið í röð sem Advania er á listanum.

Aðeins um 2,5% íslenskra fyrirtækja standast skilyrðin ár hvert og vottunin er eitt helsta mælitækið á stöðugan og traustan rekstur í íslensku atvinnulífi.

Hvað gerir fyrirtæki framúrskarandi?

Til að komast á listann þurfa fyrirtæki meðal annars að:

  • vera í lánshæfisflokki 1 til 3,
  • sýna jákvæðan rekstrarhagnað og jákvæða ársniðurstöðu þrjú ár í röð,
  • hafa eiginfjárhlutfall að minnsta kosti 20% þrjú ár í röð,
  • skila ársreikningi innan lögbundins frests,
  • svara spurningalista um sjálfbærni, ef rekstrartekjur eru yfir tveimur milljörðum króna.

Í ár hefur Creditinfo hert skilyrðin enn frekar. Fyrirtæki sem falla undir lög um kynjahlutföll í stjórnum þurfa nú að uppfylla þau lög til að teljast framúrskarandi, þar sem árangur er í auknum mæli metinn út frá stjórnarháttum og ábyrgð en ekki afkomu einni saman.

Listann yfir Framúrskarandi fyrirtæki 2026 má finna á Vísi.

Fleiri fréttir

Blogg
16.05.2012
Með markvissri notkun á góðum viðskiptagreindarhugbúnaði geta fyrirtæki og stofnanir hagrætt í rekstri og sparað peninga.
Blogg
14.05.2012
Nú í júní mun Dell setja á markað nýjar vélar í OptiPlex fjölskyldunni en slíkar vélar hafa reynst mörgum fyrirtækjum vel.
Blogg
09.05.2012
Gott mannauðskerfi styður við helstu aðgerðir mannauðsstjórnunar og styrkir starfsemi mannauðsdeilda. Með markvissri notkun mannauðskerfa hlýst hagræði og sparnaður.
Blogg
02.05.2012
Mikill áhugi er fyrir hugbúnaði fyrir snjallsíma og spjaldtölvur. Nýverið gaf Advania út ókeypis app fyrir Android stýrikerfið sem sýnir m.a. ódýrasta verðið á bensíni.
Blogg
25.04.2012
Microsoft ráðstefnan Convergence 2012 var haldin í Houston Texas dagana 18. til 21. mars 2012.
Blogg
17.04.2012
Tíminn er dýrmæt auðlind sem vert er að fara vel með. Margir kannast hins vegar við að eyða miklum tíma í að leita að skjölum.
Blogg
11.04.2012
Með útgáfu Windows Server 8 verða stórstígar framfarir í rekstri upplýsingatæknikerfa fyrirtækja.
Blogg
03.04.2012
Tölvuglæpir eru nú á dögum oft framdir af alþjóðlegum glæpasamtökum sem ýmist reyna að stela fjármunum eða verðmætum gögnum.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.