Blogg - 30. september 2026

Hugrenningar vörustjóra H3

Nína Birna Þórsdóttir
vörustjóri H3

September er einstakur mánuður í mínum huga. Hann markar eins konar seinni meðbyr ársins.

Ég finn það sérstaklega sterkt þennan september, komandi inn í nýtt og spennandi hlutverk sem vörustjóri H3, full innblásturs og tilhlökkunar fyrir framtíðinni.

Fyrir mér táknar haustið bæði ákveðið framhald en á sama tíma nýtt upphaf.

Að halda áfram með þau verkefni sem þegar eru komin á flug og svo að taka á móti nýjum tækifærum, áskorunum og hugmyndum sem spretta upp.

Aðeins um mig.

Ég hef starfað sem ráðgjafi í H3 og Bakverði hjá Mannauðslausnum síðustu sex árin og þar áður sem launafulltrúi í ferðaþjónustu.

Sú reynsla hefur gefið mér góða innsýn í bæði daglega notkun kerfisins og þær áskoranir sem geta komið upp í launa- og mannauðsmálum.

Nú er fjórði og síðasti ársfjórðungurinn rétt handan við hornið og við hefjum hann af krafti á Mannauðsdeginum í Hörpu þann 2. október.

Ég hlakka til að hitta ykkur þar, hvort sem það verður í fyrirlestrasölunum, á göngunum eða við bás Mannauðslausna hjá Advania. Ekki síst hlakka ég til að heyra hvað ykkur finnst mest spennandi á döfinni í haust og hvaða tækifæri þið sjáið fram undan.

Sjáumst á Mannauðsdaginn!

Fleiri fréttir

Fréttir
15.10.2026
Í Öryggisoktóber bjóðum við upp á fjóra opna veffundi þar sem netöryggi á tímum gervigreindar er í fyrirrúmi.
Power Platform, Blogg
15.10.2026
Á Fjármálaráðstefnu sveitarfélaganna í ár var Advania með bás þar sem við kynntum Power Platform lausnir sem hjálpa sveitarfélögum að einfalda ferla, bæta þjónustu og nýta tíma starfsfólks betur.
F&O, Blogg
14.10.2026
Viðskiptalausnasvið Advania hélt morgunverðarfund þann 13. október 2026. Kynntar voru íslenskar sérlausnir fyrir Dynamics 365 Finance & Operations.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.