Vöxtur hefst með rétta fólkinu

Teamtailor sameinar ráðningar, upplifun umsækjenda og stuðning við vörumerki vinnustaðarins í eina einfalda lausn, svo þið getið laðað að rétta fólkið og skapað betri upplifun á leiðinni.

Ráðningar þurfa ekki að vera flóknar

Þegar ráðningar fara fram í tölvupósti, Excel, mörgum kerfum og ótal handvirkum skrefum verður erfitt að halda utan um umsækjendur og enn erfiðara að skapa góða upplifun.

Teamtailor sameinar allt ráðningarferlið á einum stað og hjálpar mannauðsteymum að vinna með skilvirkari hætti, eiga betri samskipti við umsækjendur og byggja upp sterkari tengsl við framtíðarstarfsfólk.

Spjöllum saman

Allt frá fyrsta smelli að ráðningu

Laðaðu að rétta fólkið

Skapaðu sterka fyrstu upplifun og láttu vinnustaðinn þinn skera sig úr. Sýndu menninguna, fólkið og tækifærin sem gera vinnustaðinn þinn einstakan og skapaðu góða upplifun fyrir umsækjendur.

Skapaðu sterk tengsl

Byggðu sterk tengsl við umsækjendur og haltu þeim áhugasömum. Sjálfvirkni og markviss samskipti hjálpa þér að halda utan um sambandið án aukinnar handavinnu.

Ráðningarferlið einfaldað

Finndu rétta fólkið og taktu betri ákvarðanir. Vinnið saman sem teymi, nýtið gögn og gervigreind og finnið réttu aðilana sem henta bæði starfinu og fyrirtækinu.

Góð upplifun frá fyrsta degi

Gefðu nýju starfsfólki góða byrjun. Skapaðu skipulagt og sjálfvirkt móttökuferli sem kemur umsækjandanum mjúklega inn í nýtt starf.

„Teamtailor einfaldar ráðningarferlið, sparar tíma og tengist öðrum mannauðslausnum okkar eins og H3, þannig að upplifunin verður heildstæð, bæði fyrir umsækjendur og vinnuveitendur."
Díana Björk Olsen
forstöðumaður Mannauðslausna
Advania

Fólk velur ekki bara starf. Það velur vinnustað.

Starfasíðan er oft fyrsta raunverulega snertingin sem framtíðarstarfsmaður hefur við fyrirtækið. Með Teamtailor getið þið byggt upp starfasíðu þar sem fólk upplifir raunverulega vörumerkið ykkar, en ekki bara einhvern annan stað þar sem störf eru auglýst.

Sýnið fólkið ykkar, teymin, menninguna og það sem gerir ykkur einstök.

Teamtailor býður meðal annars upp á sérsniðna starfasíðu, sögur af teymum, myndbönd og möguleika fyrir fólk að tengjast fyrirtækinu án þess að sækja strax um starf.

Minni handavinna. Meiri tími fyrir mannlega þáttinn

Teamtailor sjálfvirknivæðir endurtekin verkefni í ráðningarferlinu, allt frá samskiptum við umsækjendur til skipulagningar og eftirfylgni. Þú sparar tíma við handavinnu og getur einbeitt þér að því sem skiptir mestu máli, fólkinu.

Með AI Co-pilot færðu greindan aðstoðarmann í gegnum ráðningarferlið. Co-pilot hjálpar þér meðal annars að finna rétta fólkið í umsækjendagrunninum, meta umsækjendur út frá þínum viðmiðum, undirbúa viðtöl, draga saman ferilskrár og skrifa skýrar og aðlaðandi atvinnuauglýsingar.

Finndu rétta fólkið. Sparaðu tíma. Taktu betri ákvarðanir.

Meira en 13.000 fyrirtæki um heim allan treysta Teamtailor

Teamtailor er notað af fyrirtækjum í yfir 90 löndum til að laða að, ráða og taka vel á móti nýju starfsfólki.

Sjá nánar á síðu Teamtailor

Allt sem þú þarft til að ráða rétta fólkið, á einum stað

Starfasíða
Byggðu upp starfasíðu sem gerir vörumerki vinnustaðarins sýnilegt.
Ferill umsækjenda
Hafðu fulla yfrsýn á umsóknum og ráðningarferlinu frá upphafi til enda.
Sjálfvirkni
Sjálfvirknivæddu endurtekin verkefni og samskipti.
Upplifun umsækjenda
Gerðu upplifun umsækjenda faglega, einfalda og persónulega.
Gervigreind
Fáðu gervigreindar-stuðning við verkefni sem annars taka mikinn tíma.
Tölfræði
Fylgstu með árangri ráðninga og fáðu betri innsýn í ferlið.
SPJÖLLUM SAMAN

Vöxtur hefst með rétta fólkinu

Er ekki kominn tími til að einfalda ráðningarferlið og lyfta upp vörumerki vinnustaðarins?