Helgi Björgvinsson og Þóra Rut Jónsdóttir. Advania/Jón Snær Ragnarsson

Fréttir - 27. maí 2024

Lausn sem styður við sjálfbærnivegferð okkar viðskiptavina

Á Nýsköpunarvikunni 2024 kynnti Advania nýja lausn sem  hjálpar fyrirtækjum og stofnunum að ná utan um umhverfisþætti tengda sjálfbærniskýrslum og grænu bókhaldi. Lausnin hefur vinnuheitið Kolfinna.

„Lausnin okkar auðveldar við að finna kolefnisfótspor og aðrar þær upplýsingar sem þarf til að standa skil á umhverfisþáttum í rekstri fyrirtækja og stofnana,“ segir Helgi Björgvinsson forstöðumaður hugbúnaðarlausna hjá Advania.

„Við finnum það að okkar viðskiptavinir vilja vera hluti af lausninni og taka ábyrgð sinni á þessu sviði alvarlega. Kolfinna aðstoðar með sjálfbærniupplýsingagjöf þegar kemur að umhverfisþáttum.“

Það eru stöðugt vaxandi kröfur gerðar til ríkisstofnana og stærri fyrirtækja þegar kemur að upplýsingagjöf á sviði sjálfbærni. Það getur því verið mjög íþyngjandi vinna við að afla upplýsinga og vinna útreikninga til að standa skil á þessari upplýsingagjöf.

„Það kom til okkar viðskiptavinur sem færði það í tal við okkur hvort það væri virkilega ekki hægt að gera þetta á snjallari hátt – hvort það mætti ekki auka sjálfvirkni á þessu sviði. Við skoðuðum málið enda höfum við góða þekkingu á viðskiptakerfum og rafrænum reikningum. Í kjölfarið fórum við af stað með að þróa þessa lausn sem fellur vel að metnaði Advania í sjálfbærnimálum.“

Verðugt viðfangsefni

Advania á Íslandi hefur um árabil haft mikinn metnað til að vera leiðandi á sviði sjálfbærnimála – hvort sem það er tengt félagslegum þáttum, umhverfisþáttum eða stjórnarháttum.

„Þannig höfum við til dæmis lagt áherslu á að þekkja og lágmarka umhverfisáhrif Advania og styðja við hringrásarhagkerfið og einnig að tryggja jöfn tækifæri fólks af öllum kynjum,“ segir Þóra Rut Jónsdóttir forstöðumaður sjálfbærni Advania.

Advania/Jón Snær Ragnarsson

Advania/Jón Snær Ragnarsson

„Sem dæmi setjum við okkur sjálfbærnimarkmið fyrir árið – hver viðskiptaeining fyrir sig. Markmið sem ber hátt innan fyrirtækisins þetta árið er að auka skilning og þekkingu starfsfólks á málefnum tengdu sjálfbærni og höfum við til dæmis verið að halda námskeið fyrir fjölda starfsmanna í því sambandi. Þannig viljum við auka þekkingu og vitund innan félagsins og gera okkur betur fær að takast á við málefni tengd sjálfbærni með okkar viðskiptavinum.“

Helgi segir að viðbrögðin við nýju lausninni hafi verið mjög góð.

„Við erum komin með lausn sem getur virkilega hjálpað fjölda viðskiptavina og teymið á bakvið Kolfinnu hefur auðvitað afskaplega gaman af því að ná árangri í svo verðugu viðfangsefni sem er að styðja við sjálfbærnivegferð okkar viðskiptavina.“

Hér fyrir neðan má horfa á viðtal við Helga um verkefnið í Advania LIVE Nýsköpunarvikunni í Kolaportinu.

Fleiri fréttir

Blogg
29.05.2026
Nýverið fengum við í Advania heimsókn frá Stelpur, stálp og tækni sem er verkefni á vegum Háskólans í Reykjavík. Heimsóknin var hvetjandi og vakti mikilvæga spurningu: Hvernig tryggjum við að fleiri sjái sér framtíð í tæknigeiranum?
Fréttir
27.05.2026
Advania hefur nú lokið kaupum á íslenska hugbúnaðarfyrirtækinu Evolv.  Samruninn er mikilvægur þáttur í áframhaldandi framsækni Advania á Íslandi og stórt skref í þeirri stefnu að verða öflugur samstarfsaðili á sviði sjálfvirknivæðingar og gervigreindar á evrópskum markaði.
Blogg
21.05.2026
Við gerum þá kröfu á tækin okkar í dag að séu öflug og áreiðanleg hvar og hvenær sem er án þess að gefa eftir í gæðum. En hvað gerist þegar vinnan er ekki inná skrifstofu heldur verkstæði, byggingasvæði, vöruhúsi, löggæslustörfum eða utandyra? Þarna kemur Dell Pro Rugged línan inn. Hún gerð fyrir þá allra kröfuhörðustu!
Blogg
19.05.2026
Hvernig eru fyrirtæki að nota gervigreind í dag, ekki í prufuverkefnum, heldur í raunverulegum rekstri? Þann 4. júní fáum við svör við þeirri spurningu þegar Salesforce Summit verður haldið í Reykjavík.
Fréttir
18.05.2026
Advania og netöryggisfyrirtækið Keystrike hafa skrifað undir samstarfssamning sem gerir Advania kleift að bjóða viðskiptavinum sínum Keystrike sem hluta af öflugu netöryggisframboði félagsins.
Blogg
12.05.2026
Advania og Jabra frumsýna saman í dag PanaCast U30, glænýjan AllInOne búnað sem færir fyrsta flokks fundaupplifun inn í minnstu fundarherbergin. Þetta er nákvæmlega sá búnaður sem íslensk fyrirtæki hafa verið að bíða eftir og verðið kemur skemmtilega á óvart.
Blogg
07.05.2026
Þessa dagana snýst umræða um gervigreind mikið um það hvaða störf eru að verða úrelt og hvar fyrirtæki geti mögulega skorið niður og sparað stöðugildi. Þó það sé sannarlega eitthvað sem er mikilvægt að vera með augun á, þá segir það bara hálfa söguna.
Fréttir
06.05.2026
Advania hefur nú hlotið viðurkenningu sem LS Retail Diamond partner 2026 fyrir framúrskarandi árangur sem samstarfsaðili LS Retail.
Blogg
04.05.2026
Lemon Lin frá Yealink kom í heimsókn til okkar á dögunum til að kynna nýjustu heyrnartólin frá fyrirtækinu, Yealink BH78.
Blogg
30.04.2026
Ný stilling sem Microsoft hefur nú sjálfkrafa virkjað hjá hjá öllum Copilot notendum innan Evrópu hefur áhrif á hvar gagnaúrvinnsla gervigreindartólsins fer fram. Ég ráðlegg fólki að slökkva á þessari stillingu.
Fréttir
24.04.2026
Ársreikningur Advania á Íslandi hefur verið samþykktur fyrir árið 2025.
Fréttir
24.04.2026
Árs- og sjálfbærniskýrsla Advania Group kom út í dag en í skýrslunni er dregin upp heildstæð mynd af rekstri samstæðunnar, stefnu hennar og sjálfbærnimarkmiðum.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.