Ný vefverslun Nathan fagnar eins árs afmæli
Sylvía Rut Sigfúsdóttir
samskiptastjóri Advania
Fyrir ári fór ný vefverslun Nathan í loftið, byggð á DynamicWeb í samstarfi við Advania. Við óskum Nathan innilega til hamingju með eins árs afmæli sameinaðs félags og nýju vefverslunarinnar.
Markmiðið með nýju vefversluninni var að einfalda rekstur og bæta þjónustu við viðskiptavini eins rótgrónasta heildsölufyrirtækis landsins, sem rekur sögu sína aftur til ársins 1912 og þjónustar bæði verslanir og stóreldhús.
Árangurinn lét ekki á sér standa. Færri kerfi, færri samþættingar og miklu færri handtök í vörustýringu þýða meiri tíma fyrir það sem skiptir mestu máli, viðskiptavinina.
„Við erum búin að græða alveg ótrúlegt magn af mínútum inn í vinnudaginn sem við getum nýtt í önnur verkefni,“ sagði Elísabet Erlendsdóttir, vef- og verkefnastjóri Nathan, um verkefnið.
Árið hefur verið viðburðaríkt hjá Nathan. Í byrjun október skráðu um 700 gestir sig á stærsta viðburð í sögu félagsins, þar sem nýjum kafla var fagnað eftir sameiningu og endurmörkun síðasta árs. Hópur frá Advania var á meðal gesta og það var gaman að sjá kraftinn í félaginu.
Við hlökkum til að halda áfram að stækka saman.