Erla Harðardóttir og Þóra Rut Jónsdóttir

Blogg - 20. febrúar 2023

Verið velkomin, án þess að mæta á staðinn

Erla Harðardóttir
Vörustjóri

Þóra Rut Jónsdóttir
Forstöðumaður sjálfbærni

 Það er talið að stafrænar lausnir geti dregið úr þörf á ferðalögum vegna viðskipta um 50%.

Fólk og fyrirtæki eru almennt að verða meðvitaðri um umhverfisáhrif sín og hvernig ákvarðanir þeirra spila stórt hlutverk í að draga úr þeim. Við þurfum að gera það auðveldara að taka meðvitaðar og umhverfisvænar ákvarðanir. Eitt af því sem hægt er að nýta til þess er tæknin. Við hjá Advania höfum verið að leita leiða hvernig tæknin getur verið hluti af lausninni í þeim mörgu áskorunum sem blasa við viðskiptavinum okkar undir málaflokknum sjálfbærni.

Það sem við gerðum á árinu 2022 var að fara í gegnum vöruframboðið og skoða hvort og hvernig vörurnar okkar tengjast heimsmarkmiðum sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun. Þannig skoðuðum við sjálfbærni í víðum skilningi og horfðum á hvernig tæknin hefur áhrif á umhverfið en einnig t.d. félagslega þætti líkt og jafnrétti kynjanna. Eftir að rýna í niðurstöður þessarar vinnu gátum við séð ákveðið mynstur hvernig vörurnar okkar eru að tengjast þessum heimsmarkmiðum.

Eitt af því sem kom upp reglulega var að vörurnar okkar hjálpa við að nýta tæknina til að draga úr ferðalögum, pappírsnotkun og spara fólki tíma. Þar má nefna fjarfundarbúnað, rafrænar undirskriftir, rafrænir reikningar og Velkomin viðburðarlausn.

Er hægt að gera þetta stafrænt?

Velkomin viðburðarlausn er vara sem við hjá Advania þróuðum í miðjum heimsfaraldri til þess að geta haldið okkar árlegu Haustráðstefnu. Velkomin gerir viðskiptavinum kleift að streyma viðburði í stafrænum heimi sem er sérhannaður fyrir hvern viðburð fyrir sig. Samkvæmt Stockholm Resiliance Center getur nýting á tækni dregið beint úr 30% af þeirri losun sem þarf fyrir árið 2030. Tæknin er einnig talin hafa óbein áhrif á restina með því að breyta notendahegðun, skala upp deilihagkerfið og styðja við viðskiptaþróun í hringrásarhagkerfið.

Við sjáum nú þegar að með því að nota tæknina er ekki jafn nauðsynlegt að mæta á staðinn, heldur getum tengst hvaðan sem er. Það er talið að stafrænar lausnir geti dregið úr þörf á ferðalögum vegna viðskipta um 50% eða meira og það er eitthvað sem við sjáum að hefur mikil áhrif á t.d. losun vegna viðburðahalds. Þannig er breytt notendahegðun og tæknin að ýta undir að umhverfisáhrif minnki.

Við vildum sýna fram á það hvernig Velkomin getur hjálpað að draga úr losun og þróuðum því ásamt KPMG og Jökulá reiknivél til þess að finna kolefnisspor viðburða. Með reiknivélinni er mögulegt að bera saman losun á viðburði sem er eingöngu haldinn á staðnum, er haldinn í blönduðu formi og svo eingöngu á netinu. Hún sýnir einnig hvaða þættir það eru sem hafa mest áhrif og auðveldar því fólki  að taka upplýstar ákvarðanir til þess að draga úr umhverfisáhrifum.

Niðurstaðan var sú að það er unnt að draga úr yfir 90% af losun vegna viðburðahalds með því að færa viðburðinn eingöngu á netið. Það er að sjálfsögðu margt annað sem kemur að skipulagningu og uppbyggingu viðburða sem þarf að taka tillit til, svo sem mikilvægi þess að hittast augliti til auglitis, tengslamyndun og fleira sem staðbundnir viðburðir gera mögulegt. Því gæti verið ráð að halda viðburðinn í blönduðu formi til að draga úr óþarfa ferðalögum. Blandað form eykur einnig aðgengi að viðburðinum og gerir efnið aðgengilegt eftir á ef því er að skipta.

Við héldum áhugaverðan veffund þar sem  ferlið við að reikna út kolefnissporið í reiknivélinni var sýnt og settum losunina í samhengi. Þú getur nálgast veffundinn hér.

Við hvetjum þig til að leika þér í reiknivélinni, prófa þig áfram og athuga hvort þú getir fundið leiðir til þess að gera þinn viðburð umhverfisvænni.

Fleiri fréttir

Fréttir
24.04.2026
Ársreikningur Advania á Íslandi hefur verið samþykktur fyrir árið 2025.
Fréttir
24.04.2026
Árs- og sjálfbærniskýrsla Advania Group kom út í dag en í skýrslunni er dregin upp heildstæð mynd af rekstri samstæðunnar, stefnu hennar og sjálfbærnimarkmiðum.
Blogg
24.04.2026
Því hefur verið spáð í nokkur ár að það sé einungis tímaspursmál hvenær nútíma gervigreindarmódel nái því þroskastigi að geta framkvæmt heildstæðar netárásir og nýtt sér alla árásárkeðjuna svokölluðu sem netglæpamenn hafa haft að leiðarljósi í áratugi.
Blogg
22.04.2026
Á dögunum naut Advania þeirrar ánægju að fá í heimsókn Jabra snillingana Johnny Sønderby Poulsen og Rune Nørholm Møller‑Madsen. Heimsóknin var liður í nánu samstarfi Jabra og Advania og hafði það að markmiði að kynna nýjustu vörur og lausnir Jabra fyrir íslenskum neytendum. Skoðuðum við þá sérstaklega heyrnartól og fjarfundarlausnir.
Blogg
20.04.2026
Sjálfbærni snýst ekki bara um markmið heldur líka um aðgerðir, gagnsæi og upplýstar ákvarðanir. Þess vegna erum við hjá Advania á Íslandi afar stolt af því að kolefnisspor er nú sýnt á flestum vörum í vefverslun okkar.
Blogg
20.04.2026
Artome er hreyfanleg „allt í einni“ lausn fyrir fundi, kennslu og kynningar. Lausnin sameinar stóran skjá, hljóðkerfi og búnað fyrir myndfundi í einni stílhreinni og vel útfærðri einingu á hjólum.
Fréttir
16.04.2026
Advania hlaut titilinn Rísandi stjarna á Norðurlöndunum (e. Rising Star in the Nordics) á NVIDIA Partner Awards EMEA 2026.
Blogg
30.03.2026
Undanfarnar vikur og mánuði höfum við hjá Advania orðið vör við mikinn fjölda svikapósta sem auknar póstvarnir okkar hafa verið að grípa. Um er að ræða svokallaðar  „Adversary in The Middle“ – eða AiTM árásir sem lýsa sér þannig að fórnarlömb eru blekkt og vísað inn á falskar síður sem eru sérstaklega hannaðar til að stela aðgangsupplýsingum.
Blogg
24.03.2026
Undanfarin vikur hafa orðið sýnilegar breytingar í aðfangakeðju tæknibúnaðar. Þetta hefur áhrif á allan heimsmarkaðinn fyrir tölvu- og upplýsingatæknibúnað. Helsta vandamálið er skortur á mikilvægum íhlutum, sérstaklega vinnsluminni eins og DRAM og NAND.
Blogg
23.03.2026
Það er ótrúlegt hvað hugbúnaður hefur mikil áhrif á okkar daglega líf. Á um það bil hálfri öld höfum við byggt samfélög sem reiða sig að öllu leyti á hin ýmsu kerfi.
Fréttir, Power Platform
12.03.2026
Árlegur Viðskiptakerfadagur Advania 2026 fór fram á Hilton í gær. Um 400 gestir mættu þar og sóttu sér þekkingu um fjölbreyttar viðskiptalausnir, nýjungar og tækifæri í stafrænni vegferð fyrirtækja.
Fréttir
11.03.2026
 „Við vildum lausn eða kerfi sem myndi þróast með okkur inn í framtíðina,“ segir Anna Guðný Andersen ferlasérfræðingur hjá Orkuveitunni um af hverju þau völdu Dynamics F&O.
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.