Brautryðjandi á Íslandi í hálfa öld
Ístak er eitt af öflugustu verktakafyrirtækjum landsins og hefur verið leiðandi í bygginga- og mannvirkjagerð á Íslandi i í yfir hálfa öld. Fyrirtækið sinnir fjölbreyttum framkvæmdum, allt frá jarðvinnu og hafnarframkvæmdum til brúa-, vega- og stórvirkjunarverkefna, bæði hérlendis og erlendis.