Bætt þjónusta við viðskiptavini með Dynamicweb
Nathan er eitt rótgrónasta heildsölufyrirtæki landsins með yfir aldargamla sögu, allt aftur til ársins 1912. Fyrirtækið þjónustar bæði verslanir og stóreldhús og byggir starfsemi sína á sterku vöruúrvali og traustum samstarfssamböndum.
Til að styðja við áframhaldandi vöxt og auknar kröfur markaðarins ákvað Nathan að ráðast í innleiðingu á nýrri vefverslun sem myndi einfalda rekstur og bæta þjónustu við viðskiptavini.